Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004
Síðast en ekki síst 0V
Nýr kvikmyndarisi í burðarliðnum
Ha?
Jón Þór Hannesson, höfuðpaur-
inn í Sagafilm, sem er stærsta kvik-
myndagerðarfyrirtækið á sviði aug-
lýsingagerðar, sér ákveðin tækifæri
opnast í kjölfar þess að Hin
íslenska kvikmyndasam-
steypa Friðriks Þórs Frið-
rikssonar riðar tii falls. í mörg ár hef-
ur verið talað um þreifingar milli
Saga film og ‘Steypunnar’ en aldrei
hefur neitt gerst. Nú er sagt að Jón
Þór sé að berjast fyrir því að Saga film
og hið nýja fyrirtæki Friðriks Þórs og
Önnu Maríu Karlsdóttir, Ex hf., verði
sameinuð og til verði eitt stórt fyrir-
tæki sem yrði þá langstærst á íslandi
í hvers kyns framleiðslu: kvikmynd-
um, auglýsingum og leiknu sjón-
varpsefni.
Menn í kvikmyndageiranum eru
furðu rólegir þrátt fyrir að ‘Steypan’
sé að falli komin. Má það heita ein-
kennilegt því fyrirtækið hefur verið
langöflugast á sviði kvikmyndagerðar
árum saman. Menn sjá hins vegar
ekki að þetta muni breyta mildu þrátt
fyrir allt. Skuldir fyrirtækisins nema á
sjötta hundrað milljónir en stærsti
kröfuhafinn er Landsbankinn. Tíma-
ritið Land & synir, í ritstjóm Ásgrfms
Sverrissonar, telur sig hafa heimildir
fyrir því að Björgólfúr Guðmundsson
og hans menn hjá bankanum ætli sér
að stofna nýtt fyrirtæki með þátttöku
Friðrik Þór Friðriksson Gefst ekki upp þótt
á móti blási.
Friðriks Þórs en að við hlið hans
muni starfa aðili sem hafi umsjón
með fjármálastjóm. Með öðrum orð-
um, Landsbankamenn hafa fulla trú
á Friðriki sem kvikmyndagerðar-
manni en minni sem fjármálamanni.
• Ritstjórnarfulltrúar tímaritsins
Mannlífs stoppa stutt við í starfi sínu
viðhlið Gerðar
Kristnýjar ritstjóra.
Núer Snæfríður
Ingadóttir búin að
segja upp eftir að
hafa haft vetursetu.
Engin opinber skýr-
ing er á skyndilegu
brotthvarfi hennar ________________
sem ber álíka skjótt
að og hjá Friðrik Þór Guðmundssyni
sem entist í fjóra mánuði...
Síðast en ekki síst
• Ástandið innan Framsóknarflokks-
ins er bágborið þessa dagana og tal-
að er um forystukreppu þar innan
borðs. HaildórÁsgiímsson formaður
hefur að mestu snúið baki við
GuðnaÁgústssyni, réttkjömum
varaformanni, og ráðgast við Áma
Magnússon, sem kallaður hefur verið
krónprins flokksins.
Guðni er maður
stórlátur og hefur
að sögn samherja
illa þolað fram-
komu formannsins.
Þar er vísað til þess
þegar ísland varð
I aðili að íraksstríð-
inu með því að fylkja liði með hinum
viljugu þjóðum. Guðni var ekki með í
ráðum þá fr emur en þegar Halldór
hleypti upp suðunni á fjölmiðla-
ffumvarpi Davíðs...
• Samskipti formanns og varafor-
manns Framsóknarflokksins eru við
frostmark og þeir ræðast varla við.
Víst er talið að HaildórÁsgrímsson
^ sárlangi til að
henda Guðna
Ágústssyni fyrir
borð þegar hann
þarf að losa sig við
einn ráðherra í
haust. En þetta er
þó talið óvinnandi
verk þar sem Guðni
nýtur í senn aðdáunar og trausts víða
um land sökum kímnigáfu sinnar og
pólitískrar meðvitundar með lands-
byggðarfólki. Aftaka landbúnaðar-
ráðherrans yrði því til að kljúfa flokk-
inn. Halldóri er því talið ráðlegast að
* fórna Siv, sem talið er að muni ekki
efna til uppreisnar þótt hún fjúki. En
uppgjör formanns og varaformanns
bíður þó síns tíma...
FLOTT hjá Gunnari I. Birgissyni aö
gefa sig ekki fyrr en skattalækkanir
nái fram að ganga.Ætlar bara að
sitja á þingi þar til hann fær sitt fram
tyrir landann.
„Jájá, platan kemur út 4. maí og
af því tilefni verð ég með tónleika í
Grímsey það sama kvöld. Þar búa
95 manns og ég bind vonir við að
slegið verði aðsóknarmet miðað
við höfðatölu. Með mér verður
fakírinn Stefán Már Magnússon
sem leikur bæði á greiðu og sög,“
segir Jón Ólafsson tónlistarmaður,
sem nú bíður þess spenntur að
hans fyrsta sólóplata komi til
landsins en hún er nú í framleiðslu
í Austurríki. Þar munu menn vera
fremstir meðal jafningja að bren-
na geisladiska.
Nafn disksins er eitthvað og
ekkert. „Já, framan á honum
stendur bara Jón Ólafsson. Búið,"
segir Jón. Á plötunni verða 11 lög
sem öll eru eftir Jón og textahöf-
undarnir eru svo hann sjálfur,
Hallgrímur Helgason, Ólafur
Haukur, Kristján Hreinsson og
Steinn Steinarr, en ekki hvað? Jón
ætlar sér að fylgja útgáfunni
hraustlega eftir, „enda selst ekkert
svona af sjálfu sér“. í fyrstu verður
það landsbyggðin sem fær að
njóta tónlistarflutnings Jóns en
hann byrjar á ísafirði, svo Grímsey
og þá Hrísey.
„Ástæðan fyrir Grímseyjarför
minni er aðallega sú að þangað
hef ég aldrei kornið," segir Jón.
„Mér fannst bráðsniðugt að slá
tvær flugur í einu höggi - heilsa
upp á þetta ágæta fólk og komast
nær heimskautsbaugnum fræga.
Annar staður sem ég mun heim-
sækja og er úr alfaraleið er Borgar-
fjörður eystri sem telur 120
Ný plata Jóns Ólafssonar
Hún einkennist af akústískum
rólegheitum þarsem hin fræga
og kynþokkafulla Ikea-rödd
Jóns fær notið sin til fulls í ein-
lægum og melódiskum lögum.
manns, en þar verð ég 25. maí.“
Eins og mönnum er í fersku minni
var Jón Ólafsson kosinn kyn-
þokkafyllsti maður landsins af
hlustendum Rásar tvö. Aðspurður
segist hann ekki gera sér grein fyr-
ir því hvort þessi sami kynþokki
svífi yfir vötnum á plötunni. „Eng-
ar tilraunir í þá áttina af minni
hálfu. Einlægnin er hins vegar al-
ger.“ Og tónlistina segir hann
akústísk rólegheit að hætti húss-
ins. „Ikea-röddin fær að njóta sín í
melódískum lögum. Einfalt og
gott.“
Jón segir það fara algerlega eft-
ir viðtökunum hvort gera megi ráð
fyrir meiru af svo góðu. „Ef ég verð
jarðaður í plötudómum, enginn
mætir á tónleikana og ég næ ekki
að selja 500 eintök þá verður mað-
ur að endurskoða þetta allt saman,
ekki satt? Ef einhver hefur hins
vegar áhuga á þessu og einhverj-
um líður betur af því að innbyrða
músíkina þá væri auðvitað bráð-
sniðugt að gerast einherji."
jakob@dv.is
Krossgátan
Lárétt: 1 hring, 4 bás, 7
menn, 8 hornmyndun,
10 truflun, 12 fugl, 13
urgur, 14 mjög, 15 ónn,
16 ferill, 18 súrefni, 21
tjón,22 niður,23 muldra.
Lóðrétt: 1 ákall, 2
hræðslu,33 gyllt,4 hljóð-
færi,5 hugarburð,6 hest,
9 duglegur, 11 tími, 16
sjáðu, 17 bergmála, 19
trjákróna, 20 svelgur.
Lausn á krossgátu
-BQ! 0Z 'lu!|6L'bujozi
'o>is 9i 'punjs 11 j|njo 6 'jej 9'ejo g 'njjiuouueL! 'ujgoJnnB £'66n j'uæq i :))ajgo-|
•e|iun £3'uejo 33'ijSiui L2 '!PI! 8L 'QO|s
9L 'ujo St 'Jnjo t7l 'JJmj £t 'ujo| 3L '>|seJ 01 '|Bou 8 'Jeuin6 l '1194 Þ '6neq l niajei