Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1972, Síða 13

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1972, Síða 13
TÍMARIT VFl 1972 3 Kennsla til BS prófs í verkfrœði við Háskóla íslands Haustið 1970 innritaðist fyrsti stúdentahópurinn í Verkfræði- og raunvísindadeild háskólans sem stefnir að BS-prófi í verkfræði. Með þessu hefst nýr þáttur í starfi deild- arinnar. Fullt verkfræðinám við Háskóla Islands hefur oft borið á góma, en segja má að kveikja þessarar þróun- ar, sem leitt hefur til núverandi áætlunar, sé álitsgerð, sem Trausti Einarsson prófessor, þáverandi deild- arforseti, lagði fram á deildarfundi hinn 10. október 1964. Taldi hann óhjákvæmilegt að farið yrði að und- irbúa síðarihlutanám í verkfræði við háskólann. Skömmu síðar óskaði deildin þess að menntamálaráðuneyt- ið léti kanna möguleikana á síðari- hlutakennslu í verkfræði. Undirtekt- ir stjómvalda voru daufar. Tímarit VFl reyndi að vekja at- hygli á máli þessu og lagði eftirfar- andi spurningu fyrir sjö kunna verk- fræðinga: Teljið þér æskilegt að hefja kennslu í seinnihluta verkfræði við Háskóla Islands? Hvaða greinar verkfræðinnar koma þá helzt til greina ? Svör verkfræðinganna voru flest á þann veg að hiö fyrsta þyrfti að taka upp slíka kennslu. Þessar jákvæðu undirtektir verk- fræðinganna megnuðu þó ekki að vekja verulegan áhuga fyrir málinu innan verkfræðingastéttarinnar eða Háskólans. Var nú um hríð hljótt um þetta mál, eða fram til þess að störf Háskólanefndar komust á lokastig í árslok 1968. 1 desember 1968 skipaði stjórn Verkfræðingafélags Islands Gunnar Sigurðsson, Hjalta Einars- son, Jakob Björnsson og Jóhannes Zoega í nefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan verkfræðideild- ar Háskóla Islands. Nefndin skilaði álitsgerð sinni í maí 1970 (álitsgerð- in var birt í 1. hefti Tímarits VFl 1970) og lagði hún þar til að tekin yrði upp kennsla til lokaprófs eftir 4 ára nám. Samtímis þessu var á veg- um verkfræðideildar unnið að frum- áætlun kennslu til BS-prófa í verk- fræði, en starf háskólanefndar VFl hafði mótað þessa hugmynd. Þessi frumáætlun deildarinnar var lögð fram í janúar 1970, en þar eru meg- indrættir hins nýja verkfræðináms mótaðir, og á grundvelli þessarar frumáætlunar var kennsla til BS- prófs i verkfræði hafin haustið 1970. Frumáætlunin er birt í þessu hefti Timarits VFÍ. Ritnefnd tímaritsins telur nauð- synlegt að kynna hið nýja nám vel og er þetta hefti og hið næsta því helgað kennslu í verkfræði við Há- skóla Islands. gerður að tæknilegum menntaskóla, þar sem ekki væri ástæða til að starfrækja tvo skóla, sem i reynd mundu báðir brautskrá menn með almennu verkfræðiprófi (BS-prófi). Aðrir töldu að starfrækja ætti hann með svipuðum hætti og nú og þá einkum til að annast framhalds- menntun þeirra, sem lokið hefðu iðnprófi. Háskólanefnd lauk störfum í sept- ember 1969. 1 skýrslu nefndarinnar eru ekki gerðar tillögur um, hvernig skipuleggja eigi nám hinna ýmsu deilda í einstökum atriðum, og bent er á, að það hljóti að verða verkefni deildanna sjálfra. Jafn- framt er tekið fram, að tillögur ein- stakra deilda þyrftu að liggja fyrir í ársbyrjun 1970, ef unnt eigi að i'eynast ao endurskoða þær og sam- ræma nægjanlega tímanlega fyrir undirbúning fjárlaga ársins 1971. Háskólaráð hefur nú falið einstök- um deildum umrædda tillögugerð og hefur það fallið í hlut verkfræðiskor- ar, að fjalla um nám, er miðar að undirbúningi að verkfræðistörfum, og gera tillögur um þær sérnámsgreinir, er veita þarf kennslu í af þessu til- efni. Fyrirkomulag kennslu og prófa Meðfylgjandi eru tillögur um fjög- urra ára nám í byggingarverkfræði, véla- og skipaverkfræði og rafmagns- verkfræði. 1 tillögunum er gerð grein fyrir skiptingu kennsluársins, náms- greinum og niðurröðun þeirra á kennslumisseri. Eins og þar kemur fram, er gert ráð fyrir, að háskóla- árið verði lengt, þannig að árlegur kennslu- og próftími verði fullir níu mánuðir. Að auki er svo að jafnaði gert ráð fyrir starfsskyldu eða sér- stökum námskeiðum mikinn hluta sumarmánaðanna. Taka verður tillit til þessara breytinga á námsskipan í sambandi við námslán og aðrar ráðstafanir varðandi kjör stúdenta, eins og einnig er bent á í skýrslu háskólanefndar. Kennsluárinu er skipt í tvö misseri moð prófum I lok hvors misseris, en jafnframt er gert ráð fyrir, að unnt verði að endurtaka próf að hausti, áður en kennsla hefst. Rætt hefur verið um að þrískipta háskólaárinu, og sé það þá skipulagt í þremur þriggja mánaða önnum (sbr. skýrslu háskólanefndar). Ekki þótti rétt að mæla með þessari þrískiptingu við verkfræðinámið, en hins vegar verði sérstökum tíma innan hvers misseris varið til verklegra æfinga eftir því sem við verður komið og á meðan verði að jafnaði ekki önnur kennsla. Með þessu fyrirkomulagi myndi fást bezt heildarnýting kennsluársins. Samkvæmt tillögunum er nám í umræddum þremur höfuðgreinum verkfræðinnar þvi sem næst eins á fyrstu þremur misserum að því und- anskildu, að skyldustarf á 2. misseri verður stúdentinn að sjálfsögðu að velja í samræmi við þá grein, sem hann hyggst leggja stund á. 1 bygg- ingarverkfræði er gert ráð fyrir, að námið verði í heild eins fyrir alla stúdenta að öðru leyti en þvi, að á síðasta misseri er fyrirhugað, að stú- dentarnir velji mismunandi lokaverk- efni úr nokkrum nánar tilteknum greinum. Fyrir þessu lokaverkefni er ekki gerð grein i hinum sundurliðuðu tillögum, en ætlaður hefur verið tími til þess á síðasta misseri. Nám í vélaverkfræði skiptist í tvennt, þ.e. véla- og skipaverkfræði, en sú skipt- ing verður ekki fyrr en á 6. misseri en einkum verður aðgreiningin á 7. og 8. misseri. Á tilsvarandi hátt skiptist nám í rafmagnsverkfræði I raforkuverkfræði og fjarskipta- verkfræði og bæði í véla- og raf- magnsverkfræði er fyrirhugað loka- verkefni á sama hátt og áður er minnzt á varðandi byggingarverk- fræði. Að loknu umræddu námi og próf- um hafa stúdentarnir öðlast almennt próf (BS-próf) í verkfræði, en jafn- framt er haft I huga, að þeir, sem þess óska, geti lokið sérhæfðu verk- fræðiprófi (MS-prófi) að loknu eins

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.