Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1972, Blaðsíða 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1972, Blaðsíða 15
TlMARIT VFl 1972 5 prófs næsta ár á eftir og til þess er hálfsannarsárs undirbúningstími. Svipuðu máli gegnir um aðrar sér- greinir verkfræðinnar. Að því er varðar fastráðningar kennara, verður að leggja höfuð- áherzlu á, að eigi síðar en á miðju þessu ári verði skipað í þau tvö embætti, sem verkfræðideiid og há- skólaráð hafa nú þegar samþykkt beiðni um, en ekki hefur verið ráð- stafað enn. Annað þessara embætta var í byggingarverkfræði og hitt í rafmagnsverkfræði. Varla verður lengur við það unað, að enginn fast- ráðinn rafmagnsverkfræðingur starfi við deildina. Leggja verður sérstaka áherzlu á, að strax á þessum vetri verði mótuð sú stefna, sem gilda á um kennslu verkfræðigreina við H.l. Að fram- haldsathugunum er eðlilegast að vinna í nefndum, sem skipaðar verði til að fjalla um einstaka þætti kennslunnar. Nefndirnar myndu að verulegu leyti verða skipaðar mönn- um utan háskólans og þurfa þær því að vera launaðar. Jafnframt þarf að verja nokkru fé til að standa straum af öðrum kostnaði svo sem gagna- öflun og hugsanlegum kynnisferðum til erlendra háskóla. Kostnaður Erfitt er á þessu stigi að áætla kostnað við umrædda kennslu í heild og verður hér því aöeins leitazt við að gera sér grein fyrir vissum þátt- um árlegs kostnaðar. Eins og fram hefur komið er reikn- að með víðtækri samvinnu ýmissa stofnana og fyrirtækja um verklega kennslu. Stofnanirnar leggi til hús- næði, tækjakost og starfsaðstöðu fyrir kennara. Á móti komi hins veg- ar starf kennara og stúdenta að sér- stökum verkefnum innan stofnan- anna. Þá hefur verið bent á, að á vaxandi húsnæðisþörf til almennrar kennslu beri að líta sem sameiginlegt vandamál H.I., sem leysa verði án til- lits til þess hvaða nýjar kennslu- greinir verði ákveðið að taka upp. Um árlegan kostnað að frátöldum vöxtum og afborgunum af bygging- arkostnaði má draga nokkrar álykt- anir af áætluðum fjölda kennara og kennslustunda. Miðað við, að laun fastra kennara verði 0,4 Mkr/a og kostnaður við kennslu annarra kenn- ara verði 500 kr/h, verður launa- kostnaður um 13,5 Mkr/a. Annan kostnað, svo sem viðhald tækja o.fl., má áætla um 4,5 Mkr/a og samtals verður þá árlegur kostnaður um 18 Mkr. Að sjálfsögðu ber að taka þessar lauslegu áætlanir með varúð. Að því er virðist, má reikna með, að árleg- ur kostnaður við kennslu verkfræði- greina til almennra prófa í bygging- arverkfræði, véla- og skipaverkfræði og rafmagnsverkfræði verði 15-20 Mkr/a fram yfir það, sem nú er varið til upphafskennslu í þessum greinum. Til samanburðar má geta þess, að nú er varið um 8 Mkr/a til deildarinnar. Hér er árlegur kostnað- ur vegna byggingaframkvæmda ótal- inn, eins og áður kom fram. Fyrst um sinn er hugsanlegt að fullnægja aukinni húsnæðisþörf með leiguhús- næði og má áætla húsaleigu um 1 Mkr/a. Hafa ber í huga, að raunverulega er þessu fé ekki varið til ltennslunnar einnar, þar sem mjög bætt aðstaða verður til verkfræðirannsókna með tilkomu kennslunnar, sem stuðla mun að aukinni verkmenningu í landinu og þjónustu við atvinnulíf landsins. Þá er ennfremur rétt að geta þess, að líklega munu 10-15 Mkr/a sparast í gjaldeyri, sem annars þyrfti til að greiða námskostnað viðkomandi stú- denta við erlenda háskóla. Náms- kostnaður hér heima verður einnig lægri en við erlenda háskóla og mundi það gera fleiri stúdentum kleift að leggja í verkfræðinám. Allar áætlanir um kostnað hafa verið miðaðar við, að kennslunni væri að fullu komið á. Sé reiknað með, að það taki 3-4 ár, verður á næsta ári lítil aukning á núverandi kostnaði fram yfir það sem hlýzt af um 15% lengingu kennsluársins. Annað nám Um nám í öðrum greinum en bygg- ingarverkfræði, véla- og skipaverk- fræði og rafmagnsverkfræði hefur verkfræðiskor ekki gert sérstakar áætlanir enn. Vorið 1969 skipaði þá- verandi háskólarektor, próf Ármann Snævarr, ásamt forseta verkfræði- deildar, fimm manna nefnd til að fjalla um kennslu til fyrrihlutaprófs í efnaverkfræði. Álit nefndarinnar er væntanlegt innan skamms og mun þá verða fjallað um þessi efni í skor- inni. Eins og áður var minnzt á, var í álitsgerð um líklega „Þróun verkfræðideildar áratugina 1970- 1990“ gert ráð fyrir, að kennsla í efnaverkfræði hæfist á tímabilinu 1970-75, og hefur undanfarið verið stefnt að því, að hún gæti hafizt sem fyrst, helzt nú næsta haust. Um kennslu í eðlisverkfræði, sem einnig var ráðgert að hefja á tíma- bilinu 1970-’75, verður eðlilegast að fjalla, þegar tillögur stærðfræði- og eðlisfræðiskora um nám í viðkom- andi greinum liggja fyrir. Væntan- lega verða nemendur í eðlisverkfræði yfirleitt fáir og nám í greininni verð- ur því að skipuleggja í nánum tengsl- um við aðra kennslu. Þá hefur verið rætt um hugsan- lega kennslu í húsagerðarlist a.m.k. til fyrrihlutaprófs í greininni. 1 til- efni af því hefur verið fjallað um málið í Arkitektafélagi Islands og er beðið eftir áliti félagsstjórnarinn- ar. Með tilliti til mikilvægis fiskveiða fyrir Islendinga er það brýn nauð- syn að hið allra fyrsta verði tekin upp kennsla í þeim vísinda- Og verk- fræðigreinum, sem nútíma fiskveið- ar byggjast á. Eðiilegt er, að verk- fræðideild annist þessa kennslu. Margar þessara greina myndu vera nátengdar sumum þeim greinum, sem nú þegar eru kenndar við deildina eða verða það með BS-náminu, svo sem skipaverkfræði og líffræði. Fyrri hluti náms í veiðiverkfræði gæti þannig orðið sameiginlegur ýmsum öðrum verkfræðigreinum að talsverðu leyti, en ýmsum greinum þyrfti að sjálfsögðu að bæta við, svo sem haffræði; líffræði sjávarins; veðurfræði; fiskifræði o.fl. Aðstaða til rannsókna er þegar fyrir hendi að nokkru á Hafrannsóknastofnun og rannsókna- og fiskileitarskipum. Þá er ekki siður brýn þörf á að taka upp kennslu í Verkfræðideild í fiskiðnaðarverkfræði. Ætti að vera óþarfi að rökræða það nánar. Slík kennsla gæti á fyrri hluta væntan- lega verið sameiginleg öðrum verk- fræðigreinum, einkum efnaverkfræði, svo og líffræði. Rannsóknaraðstaða er að nokkru fyrir hendi í Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins. Ætla má að Island sé sérlega hent- ugt umhverfi fyrir vísindastarf á sviði fiskveiða og fiskiGnaðar. Hér er rótgróin og almenn menning á þessum sviðum, sem þó ber mikla nauðsyn til að hefja á hærra stig. Þetta er því eitt af þeim sviðum, þar sem íslenzk vísindi ættu að geta staðið sig vcl á alþjóðlegan mæli- kvarða. Verkfræðideild og Tækniskólinn Eins og vikið er að i inngangi,

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.