Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Blaðsíða 9
TIMARIT VPI 1972
71
ar frá fleiri starfsgreinum, þannig
aO hópurinn geti, þegar við á, leyst
fjölþætt verkefni sameiginlega. Einn
slikur starfshópur margra sjálf-
stæðra verkfræðistofa úr ýmsum
greinum er þegar tekinn til starfa
og sú reynsla, sem fengizt hefur, lof-
ar góðu um framhaldið.
Að lokum þetta um ráðgjafar-
starfsemi:
Ég held, að efling þessa þjónustu-
forms meðal efnaverkfræðinga sé
mjög mikilvæg varðandi árangur af
starfi, og áhrif okkar sem sérfræð-
inga. Ástæðan er beinlínis sú, að
ráðgjafarverkfræðingurinn er neydd-
ur til að sýna samborgurum sínum
árangur í starfi og til að túlka sjón-
armið sín víðsvegar, annars fær
hann ekki staðizt. Efnaverkfræðileg-
ur ráðgjafi skapar þó venjulega ekki
mikil bein verðmæti. Hans er að gefa
öðrum tækifæri til að gera það.
Rannsóknastofnun iðnaðarins
Samkvæmt lögum nr. 64/1965 um
rannsóknir 1 þágu atvinnuveganna
hóf Rannsóknastofnun iðnaðarins
starfsemi sína þann 1. sept. 1965
sem sjálfstæð stofnun, sem heyrir
undir Iðnaðarráðuneytið.
Tók stofnunin við starfsemi Iðn-
aðardeildar Atvinnudeildar Háskól-
ans, sem þá var aðallega efnagrein-
ingastarfsemi.
Til þess að hafa tengslin og sam-
starfið við íslenzkan iðnað sem
nánast, er skipulag stofnunarinnar
þannig, að í stjórn stofnunarinnar
eru 3 menn, einn tilnefndur af iðn-
aðarráðherra, einn af Félagi Islenzkra
iðnrekenda og einn af ráðgjafanefnd
stofnunarinnar, en í ráðgjafanefnd
hennar eru fulltrúar frá atvinnulíf-
inu.
Verkefni Rannsóknastofnunar iðn-
aðarins skulu meðal annars vera:
1. Rannsóknir til eflingar og hags-
bóta fyrir iðnaðinn í landinu og
rannsóknir vegna nýjunga á
sviði iðnaðar og annarrar fram-
leiðslu.
2. Rannsóknir á nýtingu náttúru-
auðæfa landsins í þágu iðnaðar.
3. Nauðsynleg rannsóknaþjónusta í
þeim greinum, sem stofnunin
fæst við.
4. Kynning á niðurstöðum rann-
sóknanna í visinda- og fræðslu-
ritum.
Til framkvæmda á verkefnum
þeim sem að framan eru talin, skal
starfsemi stofnunarinnar greinast í
eftirtalin verksvið:
1, Efnarannsóknir vegna sérverk-
efna og nýjunga í iðnaði og ann-
arri framleiðslu.
2. Almennar efnarannsóknir sam-
kvæmt 3. lið að framan.
Eftir Pétur Sigurjónsson
3. Gerlarannsóknir.
4. Rannsóknir vegna tilraunafram-
leiðslu.
5. Rannsóltnir á sviði véla og tækni.
Eins og sjá má er hér um um-
fangsmikla breytingu á starfssviði
stofnunarinnar að ræða frá því sem
áður var, og nú stefnt í þá átt, að
stofnunin verði íslenzkum iðnaði að
meira gagni en áður.
Er þessi endurskipulagning byggð
á þeirri staðreynd, að til þess að
þjóðfélag megi vaxa hvað lífskjör
viðvíkur, þá er það undirstöðuatriði
að tæknikunnátta með góðri rann-
sóknaaðstöðu sé staðbundin í land-
inu.
Ekkert þjóðfélag hefur enn getað
starfrækt atvinnuvegi sína á tækni-
þekkingu erlendra aðila eingöngu.
Það er fyrst þegar þjóðfélagið öðlast
færa innlenda sérfræðinga að at-
vinnugreinarnar verða traustar og
öruggar, og því er Rannsóknastofnun
iðnaðarins ætlað það hlutverk að
auka tækniþekkingu og tæknirann-
sóknir hér á landi, eins og sést á
verkefnalýsingu stofnunarinnar.
1 byrjun var aðeins um efnagrein-
ingar að ræða, en efnagreiningastarf-
semin hefur afmarkað starfssvið,
sem getur ekki leyst öll vandamál
Islenzks iðnaðar, og þess vegna hef-
ur Rannsóknastofnun iðnaðarins
leitast við að finna fleiri rannsókna-
svið til þess að geta orðið iðnaðinum
að sem mestu gagni.
Við stofnunina hafa þvl risið upp
ný rannsóknasvið og eru þau helztu:
mengunarrannsóknir, málmiðnaðar-
rannsóknir, tréiðnaðarrannsóknir,
trefjaiðnaðarrannsóknir, ásamt sjálf-
stæðum rannsóknum á nýtingu Is-
lenzkra hráefna til iðnaðar.
Til þess að sinna þessum verkefn-
um starfa við stofnunina 7 efna- og
efnaverkfræðingar, 2 tæknilegir að-
stoðarmenn, 4 aðstoðarstúlkur, 3
stúlkur við ritun, símavörzlu, gler-
þvott o. fl., eða 17 manns með for-
stjóra.
Ef litið er á verkefni stofnunarinn-
ar, þá má greina þau I 2 flokka.
I öðrum flokknum eru þjónustu-
rannsóknir, en það eru ýmsar rann-
sóknir, sem beðið er um af ákveðn-
um aðilum og greiða þeir þá fyrir
rannsóknirnar sjálfir. Með slíkar
rannsóknir er farið sem trúnaðar-
mál og niðurstöður eða einstök at-
riði rannsóknanna ekki birt opin-
berlega eða tiltæk öðrum aðilum.
1 hinum flokknum eru rannsóknir,
sem stofnunin sjálf hefur frumkvæð-
ið að og þá mjög oft I samráði við
samtök einhverrar iðngreinar. Eru
þessar rannsóknir þá birtar, ýmist
sem fjölrit eða dreifabréf.
Ef hin ýmsu starfssvið eru athuguð
frekar þá má I stuttu máli nefna
þessi:
Efnagreiningastarfsemin.
Leitast hefur verið við, að þessi
starfsemi, sem og önnur starfsemi við
stofnunina, sé unnin fljótt og af
vandvirkni. Sérfræðingar stofn-
unarinnar fylgjast mjög vel með
öllum nýjungum, og stofnunin reynir
að hafa ávallt sem beztan tækjakost.
Þessar efnagreiningar eru mjög
fjölbreyttar, og má nefna efni
eins og gas, vatn, matvæli
málmefni, steinefni ásamt fjölda
annarra llfræna sem óllfrænna efna,
sem of langt mál yrði að telja upp.