Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Síða 14

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1972, Síða 14
76 TIMARIT VFI 1972 Lyfjaiðnaður Eftir Reyni Eyjólfsson Allt frá stofnun fyrstu lyfjabúð- arinnar á Islandi fyrir röskum 200 árum hefur nokkur lyfjagerð verið stunduð hér á landi, en lyfjaiðnaður í eiginlegum skilningi þess orðs er ekki ennþá raunveruleiki. Þar hefur aðallega borið tvennt til, og eru þær ástæður vafalaust gildar um margan annan iðnað; í fyrsta lagi takmark- aður innanlandsmarkaður og í öðru lagi tilfinnanlegur skortur á hæfilega menntuðum mannafla með starfs- reynslu í framleiðslu lyfja. Lyfjum þeim, sem eru á markaðn- um, má skipa í tvo aðalflokka, ann- ars vegar sérlyf (patentlyf) og hins vegar lyfjaskrárlyf (farmakópeulyf), þ.e.a.s. lyf sem forskriftir eru fyrir í gildandi lyfjaskrá, en það er sam- norrænt fyrirbæri, er nefnist Pharma- copoea Nordica. Sérlyfin eru einungis framleidd af erlendum verksmiðjum undir einkaleyfisvernd, en samkvæmt gildandi norrænum reglum er lyfja- efnið sjálft ekki einkaleyfisverndað heldur framleiðsluaðferðin. Lyf þessi eru venjulega mikilvirk og oft all- dýr, enda liggja að baki flestra þeirra umfangsmiklar og langvarandi rann- sóknir. Framleiðsla á lyfjaskrárlyfj- um er á hinn bóginn heimil öllum viðurkenndum aðilum, það er lyfja- búðum og lyfjaheildsölum, þ. á m. Lyfjaverzlun ríkisins. Þess ber að geta, að lyfjafram- leiðsla er afarvandasamur iðnaður, sem gerir mjög miklar kröfur til mannafla, húsnæðis, véla, svo og eft- irlits með gæðum framleiðslunnar. Hvað þrem síðustu atriðunum við- víkur er óhætt að segja, að þeim hefur verið mjög ábótavant hér á landi og er reyndar enn víðast hvar. 1 stuttu máli sagt hefur viðurkenn- ing á lyfjaframleiðanda hingað til falizt í því, að viðkomandi fyrirtæki hafi á að skipa lyfjafræðingi (cand. pharm.) eða jafnvel aðeins aðstoð- arlyfjafræðingi (exam. pharm.). Hvernig ástand lyfjaframleiðslunnar raunverulega hefur verið og er að dómi fagmanna kemur vel í ljós í greininni Hugleiðingar um málefni Lyfjafræðinnar á Islandi, sem birt- ist I Tímariti um lyfjafræði 7 (2) 1972, bls. 12-35. Því miður liggja ekki fyrir ná- kvæmar tölur um smásöluveltu í lyfjasölu á Islandi, en mjög gróft áætlað er hún nú um 600 milljónir króna á ári. Söluandvirði lyfjaskrár- lyfja er sennilega ekki nema um 15 - 20% af þessari upphæð, en að magni eru þau um 50 - 60% allra lyfja. Þetta hlutfall á milli sérlyfja og lyfjaskrárlyfja gefur kannske tilefni til þess að halda því fram, að inn- lend lyfjaframleiðsla sé vel sam- keppnishæf, en mynd þessi hefur al- varlegar skuggahliðar. Sumpart er talsvert magn flutt inn af lyfja- skrárlyfjum, eða sagt með öðrum orðum, að gjaldeyri er eytt í inn- flutning á lyfjum, sem hægt væri að framleiða hér. Alvarlegasta stað- reyndin er samt sú, eins og þegar hefur verið drepið á, að það hefur hreinlega litlu sem engu verið kost- að eða vandað til við innlenda lyfja- frsmleiðslu. Vonandi verður engum alltof bilt við, en hiklaust má segja, að þess- um málum hefur verið svo ábóta- vant, að lítil eða jafnvel engin lyfja- framleiðsla færi fram hér á landi, ef opinbert eftirlit með þessari starf- semi hefði hlítt kröfum lyfjaskrár- innar út í æsar, bæði hvað snertir framleiðsluaðstæður allar svo ekki sé minnzt á gæðaprófanir á fram- leiðslunni eða hráefnum. Hér er alls ekki verið að halda því fram, að engum hafi verið þetta ljóst áður, en meginástæðumar fyrir þessu eymdarástandi eru þær, að fram- leiðslustaðirnir eru of margir. Fram- leiðslulotur (batches) eru því smáar og m.a. þess vegna gefur framleiðsl- an of litið af sér til þess að hægt sé að endumýja og framþróa fram- leiðsluaðstöðuna sem skyldi. Orð þessi ber ekki heldur að skilja sem einhliða gagnrýni á lyfjafræðinga- eða lyfsalastéttina, né heldur að það sé stórhættulegt fyrir fólk að nota innlend lyf. Vart þarf að efast um, að lyfjafræðingar framleiði lyf eftir beztu getu miðað við aðstæður. Það skal aðeins undirstrikað einu sinni enn, að aðstaðan er víðast hvar langt frá því að vera nógu góð og þar af leiðandi er öryggi notandans of lítið. Rannsóknir á lyfjasýnishornum gerð- ar af Lyfjabúðaeftirlitinu á þessu ári (1972) gefa og framleiðendum held- ur ófagran vitnisburð, en ekki verð- ur farið nánar út í þá sálma hér, enda vart hinn rétti vettvangur til slíks. Vert er enn að minnast þess, að útsöluverð innlendra lyfja er vissulega lágt, ekki aðeins borið sam- an við sérlyfin, heldur einnig borið saman við hliðstæð lyf í nágranna- löndunum. Að mati höfundar er verð innlendra lyfja vafalaust bezti mæli- kvarðinn á niðurlægingu þessa iðn- aðar. Á Islandi fást um 10 fyrirtæki við lyfjaframleiðslu, sem kalla má i nokkrum mæli, og eru þetta lyfja- búðir og fyrirtæki rekin sem hliðar- greinar af þeim, þ.e. lyfjaheildsölur. Auk þessara framleiðslustaða er svo Lyfjaverzlun ríkisins (LR), en þar hefur verið til skamms tíma einna helzti vísirinn að innlendum lyfja- iðnaði. Því miður mun framleiðslu- aðstaðan í því fyrirtæki vera lítt skárri en annars staðar hvað grund- vallaratriði snertir. Starfsemi LR hefur einkum snúizt um þjónustu við sjúkrahús, auk þess sem hún hefur annazt tilbúning á hinum svonefndu áfengislyfjum. Vert er að geta þess, að LR er eina stofnunin hér á landi, sem framleiðir dreypilyf, en lyf þessi eru einkar mikilvæg fyrir sjúkra- hús. Á sínum tíma var dreypilyfja- deild LR eitt það bezta, sem íslenzk lyfjafræði hafði upp á að bjóða, en deild þessi hefur ekki verið sam- ræmd nútímakröfum sem skyldi. Eig- inleg rannsóknastofa eða gæðaeftir- litsdeild hefur ekki verið rekin í LR. Framangreindar hugleiðingar geta vissulega ekki talizt jákvæðar fyrir íslenzka lyfjaframleiðslu, en þó verður það að skoðast sem stórt spor í rétta átt, að eitt fyrirtæki (Pharmaco h.f.) hefur starfrækt rannsóknastofu síðan 15. febrúar

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.