Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Ríkið opnar
nýtt kaffihús
Þjóðminjasafnið hefur
samið við veitingamanninn
örn D. Jónsson í Matstofu
Vesturbæjar um rekstur 50
gesta kaffihúss í safninu.
Veitingastaðurinn er sagður
munu verða á jarðhæð
hússins, rétt við inngang-
inn, og verða opinn á sama
tíma og sýningarsalir saih-
hússins.
„Á boðstólum í þessu
nýjasta kaffihúsi borgarinn-
ar verða nútímalegar veit-
ingar með áherslu á gott
kaffi,“ segir á heimasíðu
Þjóðminjasafnsins.
Sérstaða nýja veitinga-
staðarins er sögð felast í
staðsetningunni inni í
sjálfu Þjóðminjasafni ís-
lendinga:
„Veitingasalan er í Vest-
urbænum en í göngufæri
frá miðbænum, auk þess að
vera staðsett á háskóla-
svæðinu þar sem nokkur
þúsund stúdentar og fjöldi
starfsmanna starfa stærstan
hluta ársins. Kaffihúsið í
Þjóðminjasafninu mun
þannig verða mikilvægur
þáttur í að húsið verði lif-
andi áningastaður mitt í
háskólasamfélaginu auk
þess að auka við upplifun
safngesta af heimsókn í
Þjóðminjasafn íslands."
Hannes Hólmsteínn
Gissurarson prófessor
„Mér finnst einkenniiegt, að
Jónatan Þórmundsson skyidi
fyrirskömmu koma fram sem
óháður álitsgjafi og sérfræð-
ingur í sjónvarpsfréttum, en
hefja nú baráttu gegn fjöi-
miðlalögunum. Fleira hefég
ekki um þetta að segja."
Hann segir / Hún segir
„Borgaraleg þátttaka og and-
óf, sem endurspeglar áhuga á
réttlátri og sanngjarni ákvarð-
anatöku, er eðlilegur og nauð-
syntegur þáttur af virku póli-
tísku lýðræði - óháð efnislegri
afstöðu til þessa málaflokks
Herdís Þorgeirsdóttlr
doktor i lögum
15 ára piltur í Vesturbænum var í gær dæmdur í tveggja mánaöa skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa mök við 13 ára stúlku. Foreldrar hennar kærðu hann fyrir
nauðgun, en hún lýsti sambandi sínu við piltinn í jákvæðu samhengi, en sagði
hann klaufskan í rúminu. Eftir á fannst henni hún hins vegar hafa upplifað nauðg-
un. Hann á að borga foreldrum hennar 150 þúsund krónur.
Foreldrar 13 ára stúlku sem hafði samræði við 15 ára kærasta
sinn kröfðust þess að kærastinn yrði dæmdur til að greiða henni
miskabætur upp á milljðn krónur vegna þess að hann hefði
nauðgað stúlkunni. Drengurinn er úr Vesturbænum en stúlkan
Kópavoginum, og kynntust þau í fermingarveislu í fyrravor.
Drengurinn var dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær til tveggja
mánaða skilorðsbundins fangelsis
fýrir að hafa átt samræði við stúlkuna.
Þrír dómarar komust að þeirri niður-
stöðu að samræðið hefði að vísu „ekki
[verið] að óvilja hennar", en taka bæri
tillit til þess að „brotin beindust að
mikilsverðum hagsmunum 13 ára
gamallar stúlku sem ekki hafði þroska
til að meta hvort hún væri reiðubúin
til þess að stunda kynlíf," segir í nið-
urstöðu þeirra.
Samkvæmt framburði vinar
stúlkunnar virðist sem svo að hún
hafi átt samræði við drenginn
nokkrum sinnum en síðan séð eftir
öliu saman. Þá sagði hún vinum sín-
um frá og sagði að pilturinn hefði
a.m.k. einu sinni „eiginlega nauðgað
henni". Samkvæmt frásögn eins vinar
þótti stúlkunni í fyrstu „allt í lagi" að
hafa samfarir við piltinn en hún hafi
„séð síðar að það hefði verið rangt. Þá
hafi hún farið að upplifa reynslu sfna
sem eins konar nauðgun".
„Mjög klaufskur..."
Pilturinn þvertók fyrir að sam-
band hans og stúlkunnar hefði falist í
öðru en vináttu. 1 dagbók, sem stúlk-
an skrifaði og dómurinn mat sem trú-
verðuga heimild, lýsti hún hins vegar
sambandinu sem mjög líkamlegu.
Þann 29. apríl í fýrra skrifaði hún:
„Ég er kannsld að fara að byrja með
15 ára strák! Hann er reyndar á föstu
en hann ætlar kannski að dömpa
stelpunni sem hann er með ... Ég er
að fá samviskubit út af því..." Sagði
hún jafnffamt að hann væri þegar
„farinn að káfa á mér og eikkað svo-
leiðis".
Ljóst er að lýsingar stúlkunnar
koma ekki heim við kæru foreldra
hennar um nauðgun. Daginn eftir
skrifaði hún:
„Ég er byrjuð með X (þessi fimmt-
án) þegar hann var að fara fórum við
að kyssast. Svo kom mamma ffarn...
Hún sá ekki neitt (hjúkk). Ég er búin
að vera ýkt róleg og væmin frá því að
„Ber að taka tillit til
þess að brotin
beindust að mikils-
verðum hagsmunum
13 ára gamallar
stúlku sem ekki hafði
þroska til að meta
hvort hún væri reiðu-
búin tilþess að
stunda kynlíf."
hann fór. Það tekur samt enginn eftir
því. En hann er svo mikið æði! Ég er
byrjuð með strák. Við ákváðum að
hafda þessu leyndu ... í bili. Mér líður
ekkert smá vel. Hann er með brún
augu! Ég er strax farin að sakna hans!"
Daginn þar á eftir kemur fram að
pilturinn vildi hafa samfarir við hana
en hún lét það ekki eftir honum fyrr
en viku síðar. Þá lýsti hún samförum
þeirra með nokkurri velþóknun í dag-
bók sinni. „Mjög klaufskur, fyrsta
skipti myndi ég segja. Það verður
samt skárra á laugard.," skrifaði hún.
„Eiginlega nauðgað"
Næstu viku til tíu daga kemur
ffam að þau hafa haft ýmislegt sam-
ræði nokkrum sinnum. Þann 18. maí
skrifaði hún að sér fyndist hún vera
„heppnasta manneskja í heimi að
eiga svona æðislegan kærasta". Fjór-
um dögum síðar kom babb í bátinn.
Þá lýsti hún tilraunum hans til að
hafa við sig endaþarmsmök sem
henni fannst vont. Hún kvaðst ætla
að biðja hann að fara varlegar „næst
... og ekkibyrjabara strax að hamast á
mér. Ég verð nefniiega að venjast
þessum fjanda," skrifaði hin 13 ára
gamla stúlka.
Þá voru hins vegar famar að renna
tvær grfmur á stúlkuna og í stað þess
að reyna frekar að „venjast þessum
Unglíngar Samkvæmt
hegnmgariögum erhægt að
^ÞJ'-^geisisemeiga
samræði við börn undir 14
ára aldri, en það gerði 15 ára
drengur úr Vesturbænum
fjanda" skrifaði hún bréf til unglinga-
blaðs og bað um ráðleggingar. Hún
hefði látið eftir kærasta sínum að hafa
við hann samfarir en síðan hefði
hann „eiginlega nauðgað" henni.
Bréfið fann móðir stúlkunnar og var
pilturinn kærður í ffamhaldi af þvf.
Upplifanir í draumum
Dómurinn komst sem sé að þeirri
niðurstöðu að dæma bæri drenginn
fýrir að hafa mök við stúlku undir lög-
aldri, þótt ekki hefði verið beinlínis
farið gegn vilja hennar. Hún kvaðst
raunar oft hafa neitað í fyrstu en látið
undan þrábeiðni hans.
Kærastinn var dæmdur til að
greiða foreldrum stúlkunnar 150
þúsund krónur í miskabætur fyrir
hönd ólögráða dóttur hennar.,
Auk þess þarf hann að borga 250
þúsund krónur til verjanda síns
og 80 þúsund krónur til réttar-
gæslumanns.
Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og
afbrotaffæðingur, sem átti á annan
tug viðtala við stúlkuna eftir samband
hennar við drenginn, sagði fyrir dómi
að stúlkan bæri mörg einkenni barna
sem orðið h?fa fýrir kynferðislegri
misnotkun. Hún hafi haft „einkenni
áfallastreitu eins og truflandi minn-
ingar um atburðinn og endurteknar
upplifanir í draumum um það sem
gerst hafði". í janúar síðastliðnum
hafi stúlkunni hins vegar liðið betur
„en samt hafi hún enn verið dul, skort
orku og stundum
verið mjög
leið," segir í
dómn-
li minningar ÓlöfAsta
t, uppeldis- og afbrota-
ir hjá Barnahúsi, segir
hafa fengið truflandi
ar um atburðina með
m og endurteknar upplif-
lumum. Hins vegar lýsti
þvl, sumarið sem hún átti í
i diviðdrenginn.aðhún
mingjusamasta manneskja
'<i.„Mér finnst ég vera
ista manneskja I heimi að
ma æðislegan kærasta,"
Ægir Björn Ólafsson stal og stal
Átján ára með kókaín í tollinum
Ægir Björn Ólafsson, 18 ára
gamall Reykvíkingur, var dæmdur í
héraðsdómi í gær til hálfs árs fang-
elsis fýrir að reyna að flytja inn 125
klló af kókaíni 14. desember 2003
og fleiri brot. Meðal þess semÆgir
gerði og braut í bága við lögin var
að skipta um númeraplötur á bíl-
um og bera járnkylfu, „ekki ætlaða
til íþróttaiðkunar".
Áuk þess var hann dæmdur fyr-
ir að hafa ekki ökuskírteini með-
ferðis og að hafa á sama tíma haft
hníf og loftskammbyssu, þegar
hann ók eftir Snæfellsnesvegi við
Kolgrafarfjörð 25. júlí
2003. Ægi varð einnig á
að stela Dodge-bifreið í
Kópavogi og aka henni til
Grindavíkur, stela úr henni þremur
borvélum, stingsög, verkfæra-
tösku, heflum, hallamáli, golfkylf-
um, golfskóm, útvarpi, talstöð,
slökkvitæki, vasahníf og bensíni,
samtals að verðmæti tæplega 600
þúsund krónur.
Ægir var fyrir skemmstu sýkn-
aður af ásökunum um að hafa út-
vegað byssur í rán í Bónus í desem-
ber síðastliðnum.
Fólkið yfirgefur
Þingeyjarsveit
„Það er gott að eiga met í ein-
hverju," segir Jóhann Guðni Reyn-
isson sveitastjóri í Þingeyjarsveit.
Þar hefur orðið mest fólksfækkun
frá forsetakosningunum 1996
samkvæmt nýrri EiiÍij«fi313SS
kjörskrá. Fækk-
unin nemur 112 ojg|g
manns sem er
17,4% fækkun. Nú eru íbúamir
alls 716 í fimm þúsund ferkíló-
metra sveitarfélagi. „Við verðum
að horfa björtum augum á Wutina
en ekki vera döpur og leið því það
viljum við ekki," segir Jóhann
Guðni.