Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Page 9
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 9
Kínverjar
hækka hita-
stigjarðar
Hluti af hækkandi hita-
stigi á jörðinni er talinn
stafa af því hve gríð-
arlega hratt borgir í
Kína stækka. Mikl-
um mannfjölda í
borgum fylgir auk-
inn lofthiti sem síð-
an breiðist út. Lim-
ing Zhou við rann-
sóknarstofnun í Ge-
orgíu í Bandaríkjunum seg-
ir að stærri borgir, minni
skógar og breytingar á
áveitum og landbúnaði
kunni að hafa jafn mikið
um hitahækkun jarðar að
segja og hinar alræmdu
gróðurhúsalofttegundir.
Kínverjar eru nú 1,2 millj-
arðar. Einn fimmti þeirra
býr í borgum. Það hlutfall
hækkar hratt og kunna veð-
uráhrif vegna þessa að stór-
aukast.
Dalvíski gellukóngurinn Sigvaldi Gunnlaugsson fór fyrr i þessum mánuði til
London til að leita bankamannsins Normans Hood Komst að þvi að enginn banki
var á uppgefnu heimilisfangi. Sigvaldi hélt sig á flugvellinum i Gatwick en fór síð-
an tómhentur heim til íslands. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar,
segir svikahrappa útsmogna i að setja upp leikrit.
Dalvíkingurinn leitaði
dollaranna í London
Hreinir
hormónar
hættulegir
Fyrir nokkrum miss-
erum kom í ljós að kon-
ur sem taka hormóna-
blöndu á breytingaskeiði
eru í töluvert meiri
hættu en aðrar að fá
ýmsa sjúkdóma. Þá var
talið að hreinir estrógen-
hormónar væru á hinn
bóginn skaðlausir. Nú
hefur verið sýnt fram á
að neysla á þeim eykur
líkur á að konur fái
hrörnunarsjúkdóma á
borð við Alzheimer.
Aukningin er ekki veru-
leg en þó tölfræðilega
marktæk.
Þinqeyskur
verkaíýður
sameinast
Verið er að vinna að
sameiningu Verkalýðsfélags
Raufarhafnar og Húsavíkur.
„Ég sé ekki að neitt komi í
veg fyrir að sameiningin nái
ff am og reikna með að kos-
ið verði 1. júlí í tengslum við
aðalfund hér hjá okkur á
Húsavík," segir Aðalsteinn
Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags
Húsavíkur. Að
sögn Aðalsteins
eru nú um 100
manns í félaginu á
Raufarhöfn en 1000
manns á Húsavík að
meðaltali yfir árið.
Mestur er fjöldinn
1.600 til 1.700 manns
á sumrin í tengslum
við ferðaþjónustuna á
Húsavík.
Allir fái
vinnu
Bæjarráð Akureyrar
ákvað í gær að tryggja
öllum 17 ára og eldri sem
lögheimili eiga á Akureyri
sex vikna vinnu í sumar, í
framhaldi af könnun
starfsmannastjóra bæjar-
ins á því hversu margir
eru atvinnulausir. „Bæj-
arráð samþykkir að þeim
einstaklingum, sem sam-
kvæmt könnuninni
höfðu ekki fengið sumar-
starf, verði boðin störf í 6
vikur. Ákvörðun um
hugsanlega viðbótarfjár-
veitingu er frestað þar til
uppgjör liggur fyrir," seg-
ir bæjarráð.
Dalvíkingurinn sem ætlaði að taka þátt í að ræna 20 milljónum
dollara úr suður-afrískum banka flaug til London til að koma
sínum hlut fengsins áleiðis inn á bankareikning á Nýfundna-
landi. Sigvaldi Gunnlaugsson kom tómhentur heim.
Sigvaldi Gunnlaugsson, gellu-
verkandi frá Dalvík, sem tapaði 4
milljónum króna á samskiptum sín-
um við nígeríska svikamyllu, fór til
London fyrr í þessum mánuði til að
leita uppi African Amalgamated
Bank og Norman Hood, yfirmann
„wire depart-
ment“ sem
staðfest
hafði við
Sigvalda
að 20
milljón
dollarar
væru
komnir
frá Höfða-
borg og
biðu þess
eins að
II | :f; iMll
verða millifærðir áfram á banka-
reikning Sigvalda í Bank of Montreal
í St. Johns á Nýfundnalandi. Sigvaldi
þurfti aðeins að greiða 215 þúsund
sterlingspund
Hflá r.unntouoW?-----
SigMkll GunrJaugnon
DdtfSir,
Mr. NwraanHðt
^rircDcponma
til „bankans" til
að peningarnir
héldu áfram.
Sigvaldi
flaug til London
frá Noregi en
hafði þá um
nokkurra vikna
skeið reynt í ör-
væntingu að út-
vega þær tvær
milljónir króna
sem hann taldi
sig þarfnast til að
losa um dollar-
ana. Á Gatwick-
flugvelli leitaði
y. ... Sr/tt
Sigvaldi upplýs-
inga um Afabanc sem
| sagður var vera við
High Street, Ux-
bridge í útjaðri
London. Á flugvelllinum
komst hann að því að
bankinn var ekki þar og
því engin leið að hann
gæti komist í tæri við
dollarana og Norman
. Hood. Hann hélt því
heim til fslands með
þann sterka grun að
hann væri fórnarlamb
svikamyllu.
Sigvaldi hefur nú lýst
sig fúsan til þess að
vinna með lögreglunni
að uppræta nígerísku
svikamylluna. Hann hefur
undir höndum afrit af öll-
um tölvusamskiptum við Nf-
geríumanninn Abiola Williams
og samstarfsmenn hans Tavo
Khumalo og Bianca Phumladua.
„Markmið þessara
manna er að hafa
slóðina svo víða og iil-
rekjanlega að ekki
náist til þeirra."
Sigvaldi kvaðst í
gær æda að ganga á
fund Jóns H.
Snorrasonar, yfir-
manns efnahags-
brotadeildar Ríkis-
lögreglustjóra.
Símtöl útog
_____wxlwuhtokityouknw
daiiOTby »,«>»>«■«
ouWcusndoiscyourfunds.
A. <• h»«*:U“’
Th»nJ« for yottf coopcrtóioú-
Tolvupóstur svikahrapps Daginn
áður en Sigvaldi átti að fá 20 milljónir
doiiara senda til Kanada barst honum
staðfesting frá London um að pening-
arnirværu komnirþangað og einungis
þyrfti aðfara yfir málið I bankanum. Þá
hafði hann þegar lagt fjórar milljónir I
svikamylluna. Daginn eftir var hann
krafinn um tvær milljónir til viðbótar.
Jón H. Snorra-
son sagði í samtali
við DV í gær að
svikamyllur
af því tagi
sem Sig-
valdi átti í
samskipt-
um við séu
erfiðar við-
fangs. Jafri-
vel þótt
upplýsingar
séu til um
símanúmer sem er á fastlínu þá
sé allt eins lfklegt að símtöl séu
áframsend til annarra heims-
álfa. Algengt sé að gefin séu
upp símanúmer í Bredandi en ,
sá sem svarar er þá staddur í y
Afríku eða Bandarfkjunum.
„Markmið þessara manna er \y
að hafa slóðina svo víða og illrekj- \
anlega að ekki náist til þeirra,"
segir Jón og vísar til þess að leit-
in endi gjarnan við strákofa í Ní-
geríu.
Yfirvöld þar hafa lítinn áhuga
sýnt á samstarfi við lögregluna.
Til dæmis óskaði Interpol efúr
samvinnu við yfirvöld í Nígeríu.
Yfirvöld þar töldu sig ekki eiga
fyrir fargjaldinu sem varð til
þess að Interpol greiddi und
ir sjö manna sendinefnd á fundar-
stað. En reyndin varð sú að Nígeríu-
mennirnir mættu ekki á fundi en
nutu ferðarinnar með öðrum hætd.
Jón H. Snorrason segir að þús-
undir manna leggi stund á fjársvik af
því tagi sem Dalvíkingurinn komst í
tæri við og undrast ekki að Sigvaldi
skyldi hafa fallið í gildru Nígeríu-
manna líkt og margir á undan hon-
um.
„Þessir menn leggja gríðarlega
mikið á sig dl að viðhalda leikrid sínu
og sannfæra fólk," segir Jón.
Meðal þess sem sannfærði Sig-
valda var að á Spáni fékk hann að sjá
álkistu fulla af dollarabúnmm sem
átd að vera 20 milljón doUararnir. Þá
sögðu svikahrapparnir honum að
peningarnir væm merktír með bleki
sem yrði að leysa upp með kemísk-
um aðferðum til að koma þeim í um-
ferð. Margir hafa undrast að Sigvaldi
skyldi trúa því sem honum var sagt á
Spáni. Jón segir það vera tæknilega
mögulegt að merkja með bleki og
leysa það síðan upp með kemískum
efhum.
Sigvaldi fór í gær á fund rfldslög-
reglustjóra til að gera grein fyrir at-
burðarásinni undanfama mánuði í
þeirri von að lögreglunni takist að
hafa hendur í hári fjársvikaranna.
Hann er fýrstí íslendingurinn til
að gefa skýrslu um slík svik.
Jón H. Snorrason segist
leggja sitt að mörkum í
samvinnu við lögregluyf-
irvöld annarra ríkja til að
rannsaka málið og upp-
lýsa, ef mögulegt sé.
rt@dv.is
I Jón H. Snorrason Yfirmaður
I efnahags brotadeildar rfkislögreglu-
stjórasegir nlgerfska svikahrapp I
I vera útsmogna I aö setja upp leikrit
I til að blekkja fórnarlömb sln.
Suður-afrískir bankar frysta peninga
Svikarar
Suður-Afrískir glæpamenn eru í
stórum stíl að reyna að notfæra sér
lagabreytingu sem felur í sér að inn-
eignir á bankareikningum verði
frystcir þann 1. júlí gefi eigendur
peninganna sig ekki fram. Eitt af því
sem svikahrapparnir gera, er að
gabba fólk til að gefa sér upp upplýs-
ingar um bankareikninga og leyni-
númer í skjóli þess að þeir sem biðja
um upplýsingarnar séu lögmætar
fjármálastofnanir. Bankarnir þar í
landi eru, samkvæmt frétt sem birt-
ist á fréttavef Independent Online í
Suður Afrfku og á alþjóðlegum vef
um fjárplógsstarfsemi, að reyna að
reyna að ná í reikninga
tryggja að eigendur peninga geti
sannað að þeir eigi reikningana. Þar
segir að glæpamenn reyni að afla sér
upplýsinga sem nægja þeim til þess
að komast í reikningana sjálfir.
Samstarf Sigvalda Gunnlaugs-
sonar við Nígeríumann og Suður-
Afríkumann um að koma 20 milljón
dollurum var reist á því að um væri
að ræða peninga sem væri verið að
ná út af bankareikningi sem ekki
hefði verið hreifður um langt árabil.
Vandinn var bara sá að svo virðist
sem aldrei hafi verið neinn banka-
reikningur og eini tilgangurinn var
sá að hafa fé af Sigvalda.