Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Qupperneq 19
DV Sport
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 19
• Morten Olsen, þjálfari Dana,
hlakkar mikið til að mæta tékk-
neska landsliðinu í átta liða úrslit-
um Evrópumótsins á sunnudag-
inn. „Tékkar spila fótbolta sem
mér finnst gaman að horfa á. Þeir
tengjast mjög vel og spila
skemmtilegan fótbolta. Þeir vilja
stjórna leikjum en ekki bíða aftar-
lega og beita skyndisóknum. Það
hentar okkur vel,“ sagði Olsen,
sem hefði búist við öðruvísi leik ef
Danir hefðu mætt Þjóðverjum eða
Englendingum, sem vilja verjast
aftarlega. „Ég vil frekar spila á móti
liðum sem reyna að spila sóknar-
fótbolta þannig að leildrnir verði
skemmtilegir. Við reynum alltaf að
sækja, það skiptir engu máli hver
andstæðingurinn er þannig að ég á
von á frábærum leik á sunnudag-
inn.“
• Philip Cocu, fyrirliði hollenska
landsliðsins, segir að hollenska hðið
hafi loksins fundið réttu leik-
aðferðina í síðasta leiknum í riðla-
keppninni gegn Tékkum. „Við byrj-
uðum með tvo varnarsinnaða
miðjumenn gegn Þjóðverjum en
það kom í ljós að það hentaði okkur
best að spila bara með einn mann
fyrir framan vörnina og tvo al-
mennilega kantmenn," sagði Cocu
og bætti við að sigurinn gegn
Lettum hefði gefið Mðinu mikið
sjálfstraust. „Við upplifðum frábæra
tilfinningu eftir sigurinn gegn
Lettum og vonandi getum við upp-
lifað hana aftur."
• Giovanni Trapattoni, þjálfari
ítalska landsliðsins í knattspyrnu,
skilur ekki ennþá hvernig lið hans
fór að því að komast ekki upp úr
riðlinum með leikmenn eins og
Francesco Totú og Alessandro Del
Piero innanborðs. „Ég hafði búist
við meiru frá Totti, Del Piero og
Vieri en það er ekki hægt að kenna
þeim um allt. Del Piero hefði gert
meira ef hann hefði fengið réttu
hjálpina en Totú brást okkur með
atferli sínu," sagði Trapattoni.
• Inaki Saez, þjálfari spænska
landsliðsins, hefur boðist til að
segja af sér sem þjálfari liðsins efúr
háðuglega útreið Uðsins á Evrópu-
mótinu. Saez var brattur strax eftir
móúð og sagðist æúa að halda
ótrauður áfram en eitthvað hefur
hlaupið annað hljóð í strokkinn
eftir að hann íhugaði stöðuna
betur. Saez gekk á fund forseta
spænska knattspyrnusambandsins í
gær og bauð ffarn afsögn sína en
forseúnn mun hafa kallað saman
stjórnarfund til að taka ákvörðun
um framtíð Saez.
Ottmar Hitzfeld Segist vera klár tilað taka við þýska landsliðinu og segirþað eðlilegtskrefá
þjálfaraferli sínum.
Ottmar Hitzfeld til í að þjálfa Þýskaland
Eðlilegt skref fyrir mig
Ottmar Hitzfeld, sem var rekinn
frá Bayern Múnchen í vor efúr
heldur dapurt gengi á síðasta
tímabili þar sem liðið varð í öðru
sæú þýsku deildarinnar og datt
snemma út úr Meistaradeildinni,
þykir vera langlíklegastur úl að taka
við landsliðsþjálfarastöðunni hjá
Þjóðverjum efúr að Rudi Völler sagði
starfl sínu lausu í gær.
Hitzfeld, sem er góðvinur
Gerhards Mayer-Vorfelder, forseta
þýska knattspyrnusambandsins,
sagði í samtali við fjölmiðla í gær að
hann teldi það eðlilegt skref fyrir sig
að íhuga að þjálfa landslið.
„Ég hef þjálfað bæði Borussia
Dortmund og Bayern Múnchen, tvö
stærstu Mðin í Þýskalandi, og tel mig
vera tilbúinn til að taka við þýska
Mðinu. Hvort cif því verður kemur í
ljós á næstunni en auðvitað er það
áhugavert verkefrii að taka við liðinu
á þessum úmapunkú með það í
huga að það er heimsmeistara-
keppni á heimavelh eftir tvö ár,“
sagði Hitzfeld.
Nær aUir þýskir fjölmiðlar telja
það aðeins Úmaspursmál hvenær
Hitzfeld verði kynntur til sögunnar
sem nýr landsliðsþjálfari Þjóðverja -
hann sé eini möguleikinn.
_ friðww ómar.
HIJÓMUM
^^H^KORNUM
Auk annarra úrvals flytjenda s.s
KK, ELLEN, BOGOMIL FONT, PAPAR,
GUITAR ISLANCIO, LÚDÓ OG STEFÁN,
HAUKUR HEIÐAR, HANSA, HEIÐA,
ARDÍS ÓLÖF & ÞÓREY HEIÐDAL