Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Síða 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ2004 29
Leggur
tólið á
hilluna
ítalski klámmyndaleikarinn
Rocco Sifiredi hefur lagt tólið á hill-
una eftir tuttugu ára feril í bransan-
um. „Leikarinn", sem á um 1.300
kvikmyndir að baki, segir að hann
geti ekki lengur hulið ferilinn fyrir
börnum sínum. „Börnin mín eru að
vaxa úr grasi og ég get ekki lengur
sagt „Pabbi þarf að fara að vinna“.
Þau vilja vita meira en bara það,“
segir Rocco, sem á tvo syni, sjö ára
og fjögurra. „Það er ekki líkaminn
sem er hættur að standa sig, heldur
er ég að hætta af fjölskylduástæð-
um. Þegar ég byrjaði í bransanum
fyrir 20 árum fannst mér það hall-
ærislegt þegar kallar um fertugt
voru að láta kvikmynda sig með
mun yngri stúlkum. Nú er ég fer-
tugur og það er kominn tími til að
segja þetta gott,“ sagði stjarnan en
bætti við að hann myndi snúa sér
að því að framleiða og leikstýra
klámmyndum. Rocco, sem er giftur
fyrrum fegurðardrottningu Ung-
verjalands, segir konu sína vera
væna og gáfaða. „Hún skilur full-
komlega muninn á milli kynlífs sem
atvinnu og kynlífs sem ástar.“
Kata
orðinn Kani
Kvikmyndastjarnán
Catherine Zeta-Jones hefur yfir-
gefið heimalandið Wales og seg-
ist nú elska Bandaríkin. „Banda-
ríkin hafa verið frábær fyrir mig
og tekið mér vel. Þau eru ekki
fullkomin en eru þó besti staður
í heimi.“ Hin 34 ára stjarna lítur
nú á Bandarfkin sem heimaland
sitt. „Ég er innflytjandi en það er
allt í lagi. Ég er gift bandarískum
manni og bömum mín em
bandarísk. Ég hylli fánann.“
Deep Purple troðfyllti Höllina í tvígang. Mikill kraftur var í
hljómsveitinni og stemning meðal áhorfenda. Einkennandi
var hið breiða aldursbil gesta á tónleikunum.
DúndursfuD á
Deep Pnrple
tækifær-
Rokkaði
hans Óla
bara að n
Hann
sinm
Þekkturfyrir rokkáhuga
Ógleymanleg var sú sýn þegar
rokkboltinn BjarniÁrmannsson,
bankastjóri íslandsbanka, ölvaður
af gleði, sté stríðsdans með föm-
neyti sínu í VlP-stúkunni þegar
Deep Purple lék Smoke on the Wa-
ter á tónleikunum á miðvikudags-
kvöldið. Bjarni var staddur fyrir
ofan hljóðblöndunarmanninn og
mixerborðið og fyrir ofan Bjarna og
félaga stóð Fjölnir „tattoo" Braga-
son og hristi höfuðuðið í takt - hinn
töffaralegasti. í sérstakri stúku við
hliðina vom starfsmenn KB banka
og létu sér vel líka. Einkennandi var
fyrir tónleikagesti sem troðfylltu
höllina hversu breiður hópurinn
var, bæði hvað varðar þjóðfélags-
hópa og aldur.
EjssSai
Berglind Kristín og sonur hennar
Geir Daði Berglind er flugfreyja og flaug
einmitt með Deep Purple til landsins. Hún
sagði þd indælispilta.
sýslumaðurinn og kona
fur Helgi sýslumaður kann ekki
leta Rolling Stones heldur er
ple ein hans allra uppáhalds.
á tónleikunum 71 og mætti á
leikana núna. Þarna með konu
Feðgar á tónleikum Mjög al
aengtvaraðsjáföðurogsonátón
leikunumoghérnaeruþeirBjarki
Þórog Þorsteinn Fmnbogason.
svioi Laugardalsha
Jakob Frímann varstaddur á tónieiku,
og sagði þetta aiveg sama soundið oq
fynr um þrjátfu árum. Líklegt verðurþó
hafí verið öllu kraftmei,
og blaðamaður DV var með hellu
(krum tímum síðar.
Mánar frábaerir Það var ekki að sjá að
þessir snillingar hafi verið að taka saman
eftir langt hlé. Freyr Eyjólfsson útvarpsmað-
ur fullyrti við blaðamann DV að þeir hefðu
verið miklu betri en Deep Purple ogi sama
streng tók rannsóknarblaðamaðurinn
ReynirTraustason. ___________________
Lífið, listin og sponsið
Það er ffóðlegt að fylgjast með
dægurmenningu og listum á íslandi í
dag. Með tilkomu hinnar íslensku
Medici-ættar og armarra hefur marg-
ur listamaðurinn fengið fjárhagslegt
næði til að einbeita sér að sinni list
og það hefur margsannað sig að þar
sem velmegunin er mikil á listin auð-
velt með að blómstra og dafna. Þetta
er ef til vill ekki sú míta sem hefur
umlukið listamenn mannkynssög-
unnar. Hugmyndin um fátæka lista-
manninn sem étur skósóla og skolar
þeim svo niður með brennsluspritti
hefur verið heillandi í hugum ungra
upprennandi listamanna. Þeir sjá fá-
tæktina sem jarðveg fyrir ódauðlega
list, þjáninguna sem forsendu sköp-
unar og þar ffam eftir götunum. Ég er
ekki vanur að alhæfa, í það minnsta
byrja ég flestar mínar setningar
þannig, en þó tel ég það víst að eng-
inn listamaður sem staðist hefur tím-
ans tönn hafi nokkum tíma sóst eftir
fátækt og volæði, heldur einmitt eftir
hinu gagnstæða.
Nú hugsar þú, ef til vill, lesandi
góður: „Og hvað með það?" Og þar
verð ég að vera sammála þér. Og
hvað með það? Þetta em ekki ffum-
legar hugleiðingar, ég viðurkenni
það fúslega. Það sem ég er hins vegar
að reyna að koma að er að þessi
gróðavon íslenskra listamanna og
annarra sem vinna við dægurmenn-
ingu er orðin svo gegnsýrð í hugum
■Siga||^ .,, ! i |
'~’S ■' JjH. 11 - -
margra að mér sýnist sem svo að
þeim sé það ómögulegt að vinna sína
vinnu nema þeir hafi fundið sér
kostnaðaraðila fýrst. En þetta er ekki
einskorðað við listamenn, nema síð-
ur sé. Kvikmyndahúsin geta ekki sýnt
Hollywood-stórmynd nema að
bankamir eða önnur stórfyrirtæki
kosti myndina. 17. júní er orðinn að
risastórri vömsýningu einhverra
símafyrirtækja, útvarpsmenn setja
það ekki fyrir sig að vera kostaðir af
McDonald’s og það fyrsta sem bfl-
skúrsböndin gera áður en þau halda
sína fyrstu tónleika er að semja við
fyrirtæld um að setja lógó fyrirtækis-
ins á hátalarana svo að hljómsveitin
þurfi nú ekki að hafa áhyggjur af því
ef enginn ákveður að mæta.
Ég man þegar ég var unglingur
inni í bflskúr með félögum mínum
að ffemja óskaplegan hávaða sem
við vomm vissir um að yrði að klass-
ík seinna. Uppveðraðir af eigin snilli
gengum við út af æfingum og rædd-
um um hvað við myndum gera við
peningana þegar við værum orðnir
frægir. Aldrei datt okkur í hug að við
þyrftum að fá spons hjá Vodafone
fyrst eða íslandsbanka til að geta
haldið tónleika. En það var þá og í
dag... í dag er ég fátækur námsmað-
ur. Og þar sem ég halla mér aftur í
stólnum og lít yfir farinn veg, þá
læðist að mér sá gmnur að þetta
hefði kannski allt tekist með hjálp
Símans.
Höskuldur Ólafsson
í vindinn
Pissað u
Stjörnuspá
Ragnar Páll Steinsson,
‘ i bassaleikari Botnleðju, er
1 þrítugur í dag. „Þessa dag-
I ana getur hann vissulega
' leyst tilfinningar sinar úr
læðingi án þess að vera
háður þeim. Langanir
j hans rætast í fyllíngu
f tímans ef hann aðeins
I sýnir biðlund og leyfir
r líðandi stund að þjóta
r hjá án þess að berjast
J gegn nútíðinni," segir í
|stjörnuspá hans.
Ragnar Páll Steinsson
\A, Mnsbemn (20. jan.-18.febr.)
VV -----------------------------------
Grasið grær vissulega undir fót-
um vatnsberans hvert sem leið hans kann
að liggja næstu misseri. Án ástar þrífst
stjarna þín svo sannarlega ekki, þú ert án
efa meðvitaður/meðvituð um þá stað-
reynd, og því ættir þú að opna hjarta þitt
þegar tilfinningar þínar koma upp á yfir-
borðið ílokjúní.
Fiskarnirriíi. febr.-20. mars)
H
Stjörnu fiska er ráðlagt að hætta
að nöldra yfir smámunum og eyða því
sem kallast aðfinnslur gagnvart náungan-
um úr orðabók sinni. Þreyta kann að ein-
kenna þig hér af einhverjum ástæðum en
helgin framundan færir þér jákvæðar
fréttir á sama tíma og hamingjutákn birt-
ist hér.
Hrúturinn (21. mars-19. aprll)
Ef þú átt þér sannan draum sem
þig þyrstir í að framkvæma ættir þú að
ráðfæra þér við vin eða náinn félaga og
viðkomandi mun gefa þér marktæk ráð
sem vísa þér veginn að áfangastað. Leið
þín hefur verið fyrir fram ákveðin.
T
b
Nautið (20. aprll-20. mal)
n
Flutningar, breytingar eða dvöl
erlendis gætu átt við hér. Þú sýnir breyt-
ingunum mikinn áhuga en ættir að spyrja
hjarta þitt hvað það er sem þú sannarlega
leitar um þessar mundir.
Tvíburarnir (21 .maí-21.júnl)
Starf þitt virðist hafa staðnað af
einhverjum ástæðum. Þú ættir að vinna
heimavinnu þlna betur en áður og ganga
beint til verks. Ekki gefast upp. Hertu upp
hugann ef þú ert efins um eigin getu því hér
birtast lausnir sem koma þér að óvörum.
KfMm(22.júnl-22.júll)
Njóttu þess að vera á meðal fé-
laga þinna í stað þess að draga þig í hlé.
Ekkert háir þér um þessar mundir en þú
ættir ekki að gleyma að njóta kyrrðar
heima fyrir endrum og eins því fjölskylda
þín þarfnast nærveru þinnar án vafa.
Ljónið (23.júli-22. dgiiít)
115
Þegar hjarta þitt og hugur opn-
ast fyrir því sem leynist i minnstu smá-
atriðum sem kunna að fara fram hjá þér í
amstri dagsins munu óteljandi dyr opnast
svo sannarlega og því ert þú minnt(ur) á
að vera vakandi og upplifa umhverfið
með réttu hugarfari.
Meyjanpi ágúst-22. sept.)
Láttu skynsemina ráða þessa
dagna, kæra meyja.Tunglið hefur áhrif á
llðan þína hérna, einkum þegar það er í
fyllingu. Þú nýtur án efa góðra áhrifa þess
(tunglsins) en ættir að ganga hægt um
gleðinnar dyr yfir helgina.
o Vogin (23.sept.-23.okt.)
Fólk eins og þú nær árangri og
finnur ávallt leið til að snúa aðstæðum sér
i hag. Reyndu eftir fremsta megni að hafa
það sem almenna reglu að vera hlutlaus í
garð þeirra sem þú starfar með eða fýrir.
ni
Sporðdrekinn tn.okt.-nnóv.>
f kringum stjörnu sporðdrekans
birtast fjölmargar raddir sem vilja henni
sannarlega vel og segja henni stöðugt
hvað hún eigi að gera og hvernig en hún
ætti að hlusta fyrst og fremst á eigin rödd.
/
Bogmaðurinn (2m0v.-21.des.)
Reyndu að stilla gagnrýni á eig-
in getu í hóf. Hegðaðu þér samkvæmt
skapferli þínu og reyndu að sama skapi
að fýlgjast með eigin skapferli og hvernig
það breytist miðað við aðstæður. Breyttu
neikvæðum tilfinningum samstundis yfir í
jákvæðar.
Steingeitin P2. des.-19.jan.)
Dragðu lærdóm af því sem þú
upplifir og fýrir alla muni hafðu augun
opin fyrir umhverfi þfnu, hvort sem um
ástvini, sjálfið eða félaga er að ræða helg-
ina fram undan.
SPÁMAÐUR.IS
c
*
TC