Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2004, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ2004
Fókus 0V
★ ★★★★ SV MBL
„Afþreyingarmynair
gerast ekki betri.%
★ ★★★★ ÞP FfiL,
„Geðveik mynd. Átye
tótalli brilljant: '
Símirm
★ ★★★ ÓÖH DV
„Tvimælalaust besta
sumar-myndin."
S/IJflHfl V BfO
SAMBÍÚm
SÝND kl. 5 og 7
M/fSLTALI SÝND kl. S, 7, 9 og 11 M/ENSKU TALI
SYND kl. 8 og 10.15 B.L12 SÝNDkl.9
ELL 14 SÝND kl. 6 og 10.30
THE CHRONICLES OF RIDÐKX kLiaiSBULn lAROUND THE WORLD IN 80 DAYS
SÝNDkl.3, 5. 6, 8,9ogll Ú5US ki5.30, ILlOog 11.39
fi.L 12 ára
SÝND Kl. 4
I PÉTUR PAN
KI. 6, 8 og 10 SÝND Kl. 5.50 og 8 SÝND KL 10.15
kl. 3.50 f j DAY AFTER TOMORROW
E HUD
CAMANMYNDINNI
><*■ WL
i
Frá leikstjóra Pretty Woman
RAISING
HELEN
Frá framleiðendum Runaway Bride
og Princess Diaries
Frábær rómantlsk gamanmynd með
Kate Hudson úr How to lose a
guy in 10 days og John Corbett úr
My big fat Greek wedding
SÝND kl. 2, 4, 6 og 8
SÝND kl. 2, 4, 6, 8 og 10
M/ÍSLTAL) SÝND kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.30
M/ENSKUTALI SÝND I LÚXUS VIP kl. 3.30. 5/45, 8 og 10.30
SÝND kl. 5,30
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
M/ÍSLENSKUIAU SYND kl. 10
M/ENSKU TALI j THE CHRONICLES OF RIDDICK kl 8 og 1030 LU.1 ij
MORS ELLINC
kl. 6 METALLICA: SOME KIND OF MONSTER
SÍMI 564 0000 ■ www.smarabio.is
www.sambioin.is
Björa leiðir
atennum
heims-
mmjarnar
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráö-
herra er einnig formaöur Þingvallanefnd-
ar. Ikrafti þess embættis fer hann fyrir
göngumönnum í fimmtudagsgöngu á
Þingvöllum I kvöld og ræöir I leiö-
inni starfnefndarinnar, stefnumót-
un þjóögarösins en þar er sem fyrr
lögö áhersla á nátturuvernd,
sögusviö og minjar til framtíöar
um leiö og búið er I haginn fyrir
aukinn ferðamannastraum á svæö-
inu. Björn fjallar einnig um mikitvægi
þess aö Þingvellir voru samþykktir á
heimsminjaskráMenningarmáiastonfun-
ar SÞIjúlibyrjun. Meö þeirri samþykkt eru
Þingvellir skilgreindir sem sameiginleg arf-
ieifö mannkyns. Björn Bjarnason og aörir
göngumenn leggja afstað frá Hakinu um
kl. 20 og veröa tvo tíma á göngunni.
Varar
Britney við
Bandaríski fjölmiðlarisinn Donald
Trump vill ólmur vara Britney litlu
Spears við að láta Kevin ekki
skrifa undir kaupmála við gifting-
una.Trump hefur sjálfur tapað
grfðalegum fjármunum eftir skiln-
aði við eiginkonur
sfnar. „Ég heyrði
að hún ætli sér
ekki að gera
kaupmála. Hún
verður að gera M
það! Þrátt fyrir y
að það sé ekki
rómantfskt er það al-
gjör nauðsyn." Britney ætlar að
giftast dansaranum Kevin Fed-
erline eftir nokkurra mánaða sam-
band.
Krár. Tónleikaröðin The Gig
heldur áfram á de Palace í Hafnar-
strætí. f kvöld klulckan 21 eru tónleik-
ar með Nilfisk og Touch.
• Hljómsveitin Tenderfoot spilar á
Kaffi list klukkan 22.
• Lights on the Highway spila á
kassagítarana sína á Dillon.
• Einar öm spilar á Nellys frá
kiukkan 22.
• Dúettinn Grautur spilar á Am-
stedam klukkan 22.30.
• Hljómsveitin Bítlamir leikur á
Hverfisbamum.
• Hin árlega Tom Selleck
Competítíon um fallegasta yfirvara-
skeggið 2004 er haldin á Sirkus
klukkan 20.30.
Sveitin • Ragnheiður Gröndal og
hljómsveitín Black Coffee heldur tón-
leika á Kaffi Króki á Sauðakróki klukk-
an20.
• Heitur fimmtudagur er á Lista-
sumri á Akureyri. Kvartett Kára Áma-
sonar leikur í Deiglunni klukkan
21.30.
• Skáldakvöld er haldið f Kaupvangi
í Vopnafirði klukkan 20. Fjallað verð-
ur um mæðginin Guðfinnu Þorsteins-
dóttur „Erlu“ og Þorstein Valdimars-
son auk Sigurðar Þórarinssonar.
• Árleg sumarhátíð Byrgisins hefst
að Ljósafossi (Grímsnesi. Hátíðin
stendur til sunnudags.
Leikhús. Söngleikurinn Hárið
er sýndur í Austurbæ klukkan 20.
Ferðir • Bjarki Bjamason verður
með leiðsögn um skáldaslóðir í Mos-
fellsdal klukkan 19.30. Lagt er af stað
fr á Gljúfrasteini.
• Bjöm Bjamason formaður Þing-
vallanefndar ræðir starf á vegum
nefndarinnar á fimmtudagsgöngu
klulckan 20. Gangan hefst við Hakið.
• Skógræktarfélag Mosfellsbæjar
stendur fyrir Fimmtudagsgöngunni
klukkan 20. Gengið verður upp í Þor-
móðsdalinn frá Hafr avatnsrétt.
Organistlnn
ungi í HaU-
grímskirkju
Klukkan tólfá hádegi í dag sest Lára
Bryndls Eggertsdóttir viö orgetiö I Hall-
grfmskirkju og spilar verk eftir feögana
J.S.Bach og C.P.E.Bach og konsert eftir
Vivalldi. Lára Bryndfs er 25 ára og lauk
einleikaraprófi f orgelleik frá Tónskóta
þjóökirkjunnar, burtfararprófi frá Söng-
skólanum I Reykjavfk og stundaöi nám
viö Tónlistarháskólann f
Piteð f Svföþjóö. Hún
hefur veriö aöstoöar-
organisti i Hallgrims-
og Langhoitskirkjum,
leikið á einleikstón-
leikum og með öðrum.
Korinna og Hallur hjálpa krökkunum að byggja kofa á
starfsvelli Reykjavíkurborgar við Austurbæjarskóla
Veitingastaðurinn 101 í Ingólfs-
stræti er vel varðveitt leyndar-
mál. Auk þess að vera staðsettur
í mjög sérstöku og nýstárlegu
umhverfi er maturinn
allajafna mjög góður
og ekkert svo óstjóm-
lega dýr miðað við
marga aðra veitinga-
staði. Þjónustan er fag-
mannleg og svo er
ágætt úrval af útlensk-
um tímaritum og blöðum til að
glugga (á meðan maður bíður
eftir matnum.
Jæja
Hin stór-
skemmtilega
hljómsveit
Búdrýgindi hefur nú komið upp
sinni eigin heimasíðu, budryg-
indi.is. Hljómsveitin
sem vann Músíktilraun
irTónabæjar árið 2002
hefur skipað sér í flokk
með skemmtilegri
hljómsveitum seinni ára og segir
á heimasíðunni að þeir stefni
ótrauðir áfram í leit að hinu full-
komna tónsviði sem láti fólk
leysa vind óvísvitandi. DV óskar
þeim góðs gengis í verðugri leit
Önnur hljómsveit sem
hefurveriðáberandi
upp á síðkastið er til-
finningarokksveitin
Daysleeper en hún
hefur einnig komið sér upp vel
hannaðri heimasfðu á slóðinn
www.daysleeper.tv. Sveitin er
sennilega frægust fyrir söngvar-
ann sem þreytist ekki á að þenja
raddböndin, hátt og hærra en
margur dreymir eða kærir sig
um. Sfðan er góð hvað sem
mönnum þykir um bandið sjálft.
Nonni og Nlanni ábrifavaldar
lífsins
„Þetta er nú frekar óvenjulegt að
svona fáir láti sjá sig, hér eru venju-
lega um 20 krakkar að smíða sér
kofa,“ segir Korinna Bauer sem situr
ásamt Halli Árnasyni félaga sínum í
litíu skýli sem þau hafa komið sér
upp og lesa, enda h'tíð annað að gera
á meðan byggingarmeistararnir,
bömin, láta elcki sjá sig. Korinna les
Tabúllarassa eftir Sigurð Guð-
mundsson og Hallur er að lesa
Meistarann og Margaritu eftir Mik-
hail Bulgakov. „Það komu hérna
vinnuvélar á mánudaginn og byrj-
uðu að brjóta allt upp hérna, þannig
að hávaðinn hér er gríðarlegur og
þannig séð skiljanlegt að börnin flýji
þessi læti," segir Hallur sem les
heimspeki við Háskóla íslands þegar
hann er ekki að vinna á starfsveliin-
um.
Korinna er frá Austurríki og hefur
búið á íslandi í þrjú ár. „Ég var að
horfa á Nonna og Manna í sjónvarp-
inu heima þegar ég var yngri, þá
ákvað ég að ísland væri landið þar
sem ég vildi búa í framtíðinni. Ég
13-...»
V r **• X t*d • •
kom svo hingað tvítug og sá strax að
þetta væri hárrétt ákvörðun og get
hvergi annars staðar hugsað mér að
búa. Ég er að læra uppeldis- og
kennslufræði og stefni að því að
verða kennari. Kem varla til með að
kenna íslensku en kannski þýsku,"
segir Korinna sem nú þegar hefur
fundið sér íslenskan
kærasta og saknar ekki Austurríkis.
„Það er bara miklu betra að búa hér
og mér líður vel og sakna einskis
nema kannski trjánna stundum,"
segir Korinna sem varð fyrir svo
miklum áhrifum af mynd Ágústs
Guðmundssonar um bræðurna
Nonna og Manna að það mun hafa
áhrif á líf hennar um alla tíð.