Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Síða 18
78 MÁNUDAGUR 26. JÚU2004
Sport DV
Islandsmótinu í höggleik lauk í gær á Garðavelli á Akranesi. Birgir Leifur
Hafþórsson hafði mikla yfirburði í karlaflokki en úrslitin í kennaflokknum réðust
ekki fyrr en á síðustu holunni þar sem Ólöf Maria Jónsdóttir tryggði sér sigur.
Jóhannes Karl
laus frá Betis
Landsliðsmaðurinn
Jóhannes Karl Guðjónsson,
sem hefur verið á mála hjá
spænska liðinu Real Betís
undanfarin þijú ár, er laus
allra mála hjá félaginu og
getur fundið sér nýtt félag.
Jóhannes Karl náði
samkomulagi við félagið um
helgina um starfslok og því
þurrkast út þau þrjú ár sem
hann áttí eftír af samningi
sínum við félagið en hann
kom frá hollenska liðinu
RKC Waalwijk. Jóhannes
Karl var orðaður við skoska
liðið Rangers en ekkert varð
úrþví.
FIFA
skammar
Ferguson
Alþjóða knattspymu-
sambandið hefur beðið
Alex Ferguson, knatt-
spymustjóra Manchest-
er United, um að hætta
að væla yfir því að
PortúgaÚnn Cristíano
Ronaldo muni spila
með portúgalska lands-
liðinu á ólympíuleik-
unum í Aþenu sem
heQast eftír þrjár vikur.
Ferguson hefur látið
hafa eftír sér að þetta sé
of mikið álag fyrir ung-
an mann eins og Ron-
aldo og að hann þurfi
að hvíla hann í tvo
mánuði eftír leikana til
að hann jafni sig.
Talsmaður FIFA sagði í
gær að Ferguson ættí
ekki að láta koma sér á
óvart að einhverjir leik-
menn hans tækju þátt í
Ólympíuleikunum og
að hann ættí að hætta
að væla yfir þessu.
Grétar Rafn
semurvið
Young Boys
Grétar Rafn Steinsson,
miðjumaðurinn öflugi hjá
ÍA, hefur gert tveggja og
hálfs árs samning við sviss-
neska liðið Young Boys og
mun fara út um áramótín
næstu þegar samningur
hans við 1A rennur út.
Grétar Rafii var nánast
farinn til Young Boys í lok
maí en þá álcvað hann að
vera um kyrrt og spila með
Skagamönnum í sumar eftir
deilur við félagið varðandi
greiðslur fyrir félagsskiptin.
Young Boys er á toppi
svissnesku deildarinnar,
sem er nýhafin, með fjögur
stíg eftír tvo leiki.
Jafngaman og það
var nauðsynlegt
Sáttir meistarar Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og 6aröabæjar og ÓlöfMaría Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili sjást hérmeð
sigurlaunin i Islandsmótinu Ihöggleik sem lauk á Akranesi Igær. DV-mynd Eiríkur
Birgir Leifur Hafþórsson úr
Golfklúbbi Kópavogs og
Garðabæjar og Ólöf María
Jónsdóttir sigruðu á íslands-
mótinu í höggleik sem lauk á
Garðavelli á Akranesi í gær.
Sigur Birgis Leifs í karlaflokki,
sem var hans annar í röðinni,
var mjög öruggur en hann var
eini kylfingurinn sem lék und-
ir pari á mótinu. Ólöf María.
sem vann mótið í fjórða sinn,
tryggði sér sigur með góðum
leik á lokadegi mótsins og
komst upp fyrir hina tvítugu
Helenu Árnadóttur frá Akur-
eyri sem hafði verið með for-
ystu fyrstu tvo dagana.
Birgir Leifur fór á kostum fyrstu
tvo dagana og lék báða hringina á
fjórum höggum undir pari sem er
vallarmet. Þar með var hann kom-
inn með forystu sem hann misstí
aldrei niður. Björgvin Sigurbergsson
úr Golfklúbbnum Keili kom næstur,
fimm högggum á eftír Birgi Leifi og
Örn Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi
Suðumesja hafnaði í þriðja sætí.
Birgir Leifur var sáttur þegar DV
ræddi við hann í mótslok.
Öruggt spil
„Leikskipulagið gekk upp hjá
mér. Það byrjuðu allir vel í dag en ég
var samt alltaf sannfærður um að ég
myndi klára þetta," sagði Birgir Leif-
ur. Hann náði fimm högga forystu
strax á öðrum degi og sagði að-
spurður að honum liði mjög vel að
vera með forystuna. „Ég reyndi að
spila sem ömggast. Ég tók engar
áhættur og reyndi að halda mistök-
um í lágmarki. Þetta er kannski
skemmtilegasta golfið til að horfa á
en það er árangursríkt," sagði Birgir
Leifur.
Ólöf María Jónsdóttír úr Golf-
klúbbnum Keili varð hlutskörpust í
kvennaflokki og var einu höggi á
undan þeim Tinnu Jóhannsdóttur
úr Keili og Helenu Árnadóttur úr
Golfklúbbi Akureyrar. Stúlkurnar
léku aðeins þrjá hringi þar sem ann-
ar hringurinn var strokaður út vegna
rigningar og þótt Ólöf María hafi
ekki haft forystu fyrr en á loka-
hringnum þá dugði það henni til
sigurs.
Kom til að vinna
„Það var jafngaman og það var
nauðsynlegt að vinna þennan títil
aftur," sagði Ólöf María sem lék sinn
slakasta hring í mótínu á lokadaginn
og var ekki sátt við spilamennsku
sína. „Hlutirnir gengu ekki upp í
dag. Ég kom mér ekki í góðar stöður
en ég kom í þetta mót til að vinna og
það gekk eftir," sagði Ólöf María.
Aðspurð um hvað hefði skilað
sigrinum sagði Ólöf María að það
hefði verið ákvörðun mótsnefndar
að ógilda annan hringinn. „Ég var
mjög ósátt við þá ákvörðun því ég
var þá komin með forystu. Ég náði
hins vegar að beina skapinu í golfið
síðustu tvo dagana því það kom
aldrei neitt annað til greina en að
sigra," sagði Ólöf María.
Hef kennt of mikið
Ragnhildur Sigurðardóttír, sem
áttí títil að verja, náði sér aldrei á
strik á Akranesi um helgina og hafði
skýringar á reiðum höndum.
„Ég er sátt með íjórða til fimmta
sætíð miðað við aÚt sem á hefur
gengið. Ég náði að vinna vel úr hlut-
unum í dag miðað við hversu illa ég
spilaði í gær. Ég er í mikilli lægð og
því get ég ekki verið annað en sátt
með þetta mót. Ranghildur sagðist
aðspurð að lægðin stafaði af þreytu.
„Éghef kennt mikið að undanförnu,
ég þarf á hvfld að halda og næ von-
andi að koma tvíelfd til baka," sagði
Ragnhildur sem ætlar, lflct og í fýrra,
að reyna fyrir sér í atvinnumennsku
í haust.
„Ég náði hins vegar að beina skapinu í golfið
síðustu tvo dagana þvíþað kom aldrei neitt
annað til greina en að sigra."
Chelsea byrjar vel á Champions World í Bandaríkjunum
Eiður skoraði eitt og lagði
upp annað í sigri á Celtic
Chelsea vann öruggan sigur, 4-2,
á skosku meisturunum í Celtic í
Seattle í Bandaríkjunum á laugar-
dagskvöldið í fýrsta leik Champions
World-mótsins þar sem flest af
bestu félagsliðum Evrópu eru meðal
þátttakenda.
Rússinn Alexei Smertín kom
Chelsea yfir á 16. mínútu með
þrumufleyg af 25 metra færi en
Smertín áttí frábæran leik sem
varnartengiliður og verður erfitt fyrir
Frakkann Claude Makelele að
komast í liðið haldi Smertin
uppteknum hættí. Celtic jafnaði
metin á 27. mínútu með marki frá
Craig Beattíe og þrátt fýrir að
leikmenn Chelsea fengju nokkur
færi það sem eftír lifði hálfleiks var
jafht þegar gengið var til
búningsherbergja.
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, gerði nokkrar
breytingar á liðinu í hálfleik og þeir
Arjen Robben, Frank Lampard og
Mateja Kezman komu meðal annars
inn á. Robben var ekki búinn að vera
lengi inn á þegar hann hann lagði
upp mark fyrir Eið Smára
Guðjohnsen. Eiður skoraði með
föstu skoti af 15 metra færi og hann
og Robben lögðu síðan upp þriðja
mark liðsins fyrir Mateja Kezman á
58. mínútu. Craig Beattíe minnkaði
síðan muninn fyrir Celtíc á 67.
mínútu en Kezman gulltryggði síðan
sigur Chelsea á 85. mínútu eftír að
Glen Johnson hafði farið upp hálfan
völlinn og stungið boltanum inn
fyrir vöm Celtíc.
Góð byrjun á mótínu hjá Chelsea
og gaman að sjá hversu vel Eiður
Smári, Mateja Kezman og Arjen
Robben virðast ná saman í framlínu
liðsins.
Mateja Kezman Skorar hér seinna af
tveimur mörkum sinum gegn Celtic. Reuters