Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Side 20
20 MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ2004 Sport DV Hjólreiðagarpurinn Lance Armstrong á í stöðugu höggi að sækja vegna meintrar lyíjanotkunar sinnar. Þrátt fyrir hundruð ly^aprófa sem sanna sakleysi hans eru óprúttnir menn sem vilja koma honum í koll. Lágkúrulegar lygar og lögbrot eru nýjasta uppátæki hinna óprúttnu manna. ,Hún greinir frá því hvernig hún hjálp- aði Armstrong að fela sprautuför á upphandlegg." Lance Armstrong Dónisti eöa ofurmenni? UMTOURDE FRANCE Uppgangur og endurkoma Lance Armstrong Lance Armstrong náði þeim einstaka árangri í gær að sigra Tour de France-hjólreiðakeppnina sjötta árið í röð. Þar með sker Armstrong sig úr fimm manna hópi sem allir höfðu unnið keppnina fimm sinnum og kemst á stall með mestu íþróttamönnum síns tíma. Eins og venjulega fór hann rólega af stað í keppninni í ár en þegar áfangarnir fóru að færast upp í fjöll fór Armstrong að klæðast treyjunni sem hann kann best við - þeirri gulu. Þeirri treyju klæðist sá sem er með besta samanlagða tíma hverju sinni og þegar í brekkurnar er komið er það ávallt Armstrong sem nær forystunni. Yfirburðirnir sem hann hefur þar eru engum líkir, og segja margir að þeir eigi ekki við eðlileg rök að styðjast. Armstrong hljóti að neyta ólöglegra lyfja, sem geri honum kleift að þjóta upp brekkur í 60 gráðu halla á allt að 50 kílómetra hraða. í upphafi sumars kom út í Bandaríkjunum bókin: „LA Con- fidential - The secrets of Lance Armstrong". Þar heldur höfundur- inn, hinn virti blaðamaður Sunday Times, David Walsh, því staðfastlega fram að Armstrong neyti ólöglegra lyfla, og hafi gert það aílt frá því að hann náði sér af krabbameini í eista árið 1998. Hinn 33 ára gamli Arm- strong, fyrirmynd allra þeirra sem stunda hjólreiðar eða þjást af krabbameini, vísar ásökununum algjörlega á bug. Armstrong féll á lyfjaprófi sem tekið var eftir Tour de France- keppnina árið 1999. Þá fannst í honum efnið Corticosteroid triam- cinolone, sem er að finna í sumum lyflum og kremum og er á bannlista Alþjóða hjólreiðasambandsins. Sambandið ákvað hins vegar ekki að refsa Armstrong þar sem brotið þótti smávægilegt og að Armstrong hafi ekki haft hugmynd um að hann væri að taka inn efiúð. Allt frá þessu atviki hefur Arm- strong verið stanslaus skotspónn hjólreiðaheimsins. Allir efast um að yfirburðir Armstrong geti verið eðlilegir og hefur hann verið tekinn í hundruð lyfjaprófa þar sem niðurstöðurnar eru aliar þær sömu: Lance Armstrong neytir ekki ólöglegra lyfja. í áðurnefndri bók kemur fram frásögn Emmu O’ReiiIy, sem starfaði sem einkaþjálfari Armstrongs á árunum 1998-2002, að um Arm- strong hafi með reglulegu millibili innbyrt blóðþynningarlyfið Erythropoietin. Hún greinir frá því hvernig hún hjálpaði Armstrong að fela sprautuför á upphandlegg með púðri og öðrum snyrtivörum. Arm- strong segir O'Reilly eiga við geðræn vandamál að stríða og að hennar málflutingur sé fjarstæða. „Svona ásakanir verða að vera rökstuddar með óyggjandi sönn- unargögnum. David Walsh hefur ekki gert annað en að hamast á mér síðastliðin fimm ár og það hefur aldrei verið neitt sem hefur bendlað mig við ólöglega lyfjanotkun. Hvenær fær hann nóg? Hefur sann- leikurinn ekki komið í ljós? Ég er saklaus af þessum ásökunum," sagði Armstrong í samtali við blaðamenn nokkrum dögum áður en Tour de France hófst fyrr í þessum mánuði. Hann greindi einnig frá því að hann hefði vaknað um miðjar nætur við það að einhverjir óprúttnir náungar væru að planta ólöglegum efnum fyrir á hótelherbergi hans fyrr á þessu ári. „Það sýndi mér endanlega hversu langt þessir menn eru reiðubúnir að ganga til að koma mér í koll,“ segir Armstrong. Mannlegur eður ei? Að hafa sigrað Tour de France hjólreiðakeppnina, sem af mörgum er talin allra efiðasta íþróttakeppni heims, sjötta árið í röð er einstæður árangur sem á sér vart hliðstæðu í íþróttasögunni. Það að Armstrong skuli árið 1996, þremur árum áður en sigurgangan samfleytta hófst, hafa greinst með krabbamein í eista, gerir árangurinn enn ótrúlegri. Það er því ekki furða að fólk telji Armstrong vera að svindla, en svo virðist vera að hann sé einfaldlega sú mannvera sem kemst næst því að *Tour de France hjólreiðakeppnin er oft sögð erfiðasta íþróttakeppni í heimi. Það er ekki að ástæðulausu. Á þeim þremur vikum sem keppnin stendur yfir er hjólað að meðaitali um 150 kílómetra á dag, stundum á sléttlendi en undir það síðasta upp fjöll og firnindi. Á þessu þriggja vikna skeiði, þar sem hjólað er í gegnum gjörvallt Frakkland, fá keppendur aðeins tvo hvíldardaga. *l ár eru 20 áfangar haldnir ÍTour de France - sá lengsti er 210 kllómetrar og er heildarvegalend keppanda tæpir 4000 km. Mest hafa áfangarnir verið 24 talsins og heildarvegalengd alls 5564 km. *Saga Tour de France hófst árið 1903 þegar fyrsta keppnin var haldin. Það voru tvö stærstu íþróttablöð Frakklands sem sáu um skipu- lagningu keppninar. •FJórir hjólreiðamenn auk Armstrongs hafa náð að bera sigur úr býtum I keppninni fimm sinnum: Nafn: Þjóðerni: Miguel Induraln Spánn Eddy Merckx Belgía Bernard Hinault Frakkland Jacques Anquetil Frakkland vera ofurmenni. „Mér líður vel. Ég er hraustur og vissi alitaf að ég væri í mínu besta formi á lífsleiðinni. Það skiiaði mér sigri," segir Armstrong, sem með sigrinum er kominn á staU með mestu og fræknustu íþróttamönnum allra tíma. vignir@dv.is þríþraut, þar sem er hlaupið hjólað og synt. Það var snemma ljóst að hjólreiðarnar væru hans sterkasta hlið og 22 ára að aldri var hann orðinn atvinnumaður í greininni. í sama mund og Armstrong var að komast á sjónarsviðið sem einn besti hjólreiðagarpur heims dundi áfallið yfir; hann greindist með eistakrabbamein og voru minni en helmingslíkur á bata. „Efist eigi, ég ætla mér ekki aðeins að sigra þennan sjúkdóm heldur ætla ég mér að snúa aftur í hjólreiðar á efsta stigi," sagði Lance Armstrong á blaðamannafundinum þegar hann tilkynnti um greininguna. Hann stóð við stóru orðin skráði sig í sögubækurnar fyrir einhverja mestu endukomu sem um getur. Auk þess hefur Armstrong verið ötull talsmaður samtaka sem snýst að fórnarlömbum krabbameins og er stór sjóður starfræktur í hans naftii. Ef gerð yrði kvikmynd um sögu Lance Armstrong yrði hún hádramatísk á mælikvarða Hollywood. Einn ffemsti íþróttamaður Ameríku er nær dauða en lífi eftir að hafa greinst með krabbamein í eista. Aðeins ári eftir að hafa gengist undir ítarlega geislameðferð snýr hann ekki aðeins aftur á svið íþróttana heldur sigrar hann Tour de France og hlýtur æðsta heiður sem hjólreiðamaður getur gert sér vonir um. Armstrong fæddist 18. september árið 1971 íTexas og var alin upp af móður sinni, sem hann hefur oft sagt sinn mesta áhrifavald. Ungur að árum var hann farinn að taka þátt í svokallaðri Ofurmenni LanceArm- strong hefur skráð sig á spjöld sögunnar fyrir ein- stæðan árangur íTourde France sem veröur ilklega aidrei leikið eftir. Eitt stórt ævintýri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.