Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Page 19
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER2004 1 9 Magnús Þór Gunnarsson Hætt er við því að Keflvíkingurinn snjalliyrði ósáttur við að þriggja stiga línan yrði tekinn burtu úr leiknum efundan er skildar síðustu fimm mínútur leiksins. Magnús Þór hefur verið ein a/besta þriggja stiga skytta deiidarinnar undanfarin ár. Þróunardeild NBA-boltans gerir tilraunir með þriggja stiga skotregluna í vetur og hafa margir körfuboltaspekingar vestra tekið því fagnandi. Leikmenn eru þó ekki sama sinnis og segja enga þörf vera á breytingum hvað þriggja stiga körf- una snertir. íslenskir leikmenn segja leikinn myndi deyja út ef til breytinganna kæmi hér á landi. Skemmtanagildið myndi minnka NBDL (National Basketball Development League) er þróunar- deild fyrir NBA-körfuboltann þar sem gerðar eru tilraunir með íþróttina í von um að gera hana betri. Deildin olli miklu fjaðrafoki í síðustu viku þegar tilkynnt var að til stæði að breyta þriggja stiga reglunni í NBA og að gerðar yrðu tilraunir með það í NBDL í vetur. Aðeins verða þrjú stig gefin fyrir skot utan þriggja stiga línunnar, síðustu fimm mínútur hvers leiks og í framleng- ingu, ef til hennar kemur. Viðbrögð leikmanna við uppá- tækinu hafa verið blendin en þjálf- arar NBA-liða virðast vera sammála um að breytinga sé þörf. „Ég er mjög spenntur fyrir hugmyndinni,“ sagði Larry Brown, þjálfari Detroit Pi- stons, núverandi NBA-meistara. „Þriggja stiga skotið hefur skemmt leikinn töluvert, einkum hjá unga fólkinu." Scott Skiles, þjálfari Bulls, tekur undir orð Brown, en Skiles skoraði sjálfur 524 þriggja stiga körfur á ferl- inum. „Ég er ekki mikill aðdáandi þriggja stiga skotsins, punktur," sagði Skiles. „Aðalatriðið er að bandarískir krakkar þurfa að læra að drippla boltanum, gefa hann og skjóta. Þegar það gerist, mun íþrótt- in verða betri." Alltof mörg þriggja stig skot Athygli vakti að Steve Kerr, besta þriggja stíga skyttan í sögu NBA með rúmlega 45% nýtíngu á ferlinum, var einnig hlynntur því að breyta tíl hvað regluna varðar. „Það eru alltof mörg þriggja stiga skot tekin í leik í dag og það hefur slæm áhrif á leik- inn,“ sagði Kerr og bættí við að hann fagnaði því að deildin gerði tilraunir með regluna. Reggie Miller, leikmaður Indiana Pacers var ekki sáttur við að Stu Jackson, varaforseti NBA, hefði uppi hugmyndir um að breyta þriggja stíga reglunni. „Það er fnykur af þessu máli. Ætíi Jackson leiðist þama á Park Avenue eða hvar sem þessar NBA-skrifstofur nú em,“ sagði Miller. Eftir að þriggja stiga reglan tók gildi hefur leikurinn breyst til muna og það gefur leiknum aukna breidd að þriggja stiga reglan sé fyrir hendi. Væri hún ekki til staðar væri hætt við „Þetta væri kannski fínt fyrír Bandaríkja- mennina en dauða- dómur fyrír okkur. Það sást best á Ólympíuleikunum í haust að Evrópubúar eru mun framar í und- irstöðuatriðum körfu- boltans en Banda- ríkjamenn." að leikurinn færðist til muna undir körfuna sem gæti orðið fullmikið teigshnoð og leiknum alls ekki til góðs, hvað fjölbreytn snertir. Þá gæti farið svo að körfubolti yrði leikur há- vaxna mannsins og vægi hæðarinn- ar mun meira en í dag. íþróttadeild DV setti sig í sam- band við nokkra valinkunna menn tengda körfubolta á íslandi og fékk þá til að segja sína skoðun á því hvað úr yrði, ef sams konar breytingar yrðu gerðar á íþróttinni í Intersport- deildinni. Menn vom sammála um að deildin þyrfti ekki á slíkum breyt- ingum að halda og yrðu þær iþrótt- inni eingöngu til trafala. Bandaríkjamenn aftar á mer- }ft áður inni en o „Ég væri ekki hlynntur þessu," segir Benedikt Guðmundsson, þjálf- ari Fjöínis. „Skemmtanagildið myndi minnka. Menn færu að hnoðast að körfunni í tíma og ótíma og það væri til lítils að vera með öflugar skyttur ef skot utan af velli gæfu eingöngu tvö stig. í NBA er þetta orðið alltof mikið að einhver byrji að drippla af stað og ætli sér svo að hoppa yfir allt og alla. Þetta sást best á Draumaliðinu á Ólympíleikunum. Þar var vart finn- andi sá leikmaður sem gat skotið af einhverju viti. Það þyrfti eiginlega að fá meira af skyttum, ef eitthvað er. Þessi áhrif má finna hér heima og t.d. með þessi yngri landslið að 3 þar er minna af mjög góðum skyttum en var hér áður. Þetta hefur verið að þróast í þessa átt að menn vilja keyra upp að körfu, vera með flottar hreyfingar og hoppa hátt, frekar en að vera með gott skot fyrir utan. Ég er algjörlega á móti þessu og myndi mæta á þingið ef þetta yrði á borðinu." Leikurinn myndi upp „Mér þætti þetta fáránlegt," sagði Páll Axel Vilbergsson, leik- maður Grindavíkur. „Þetta væri kannski fínt fyrir Bandaríkja- menn en dauðadómur fyrir okkur. Það sást vel á Ólympíu- leikunum í haust að Evrópubúar eru mun framar í undirstöðuat- riðum körfuboltans en Banda- ríkjamenn. Leikurinn yrði lokaðri, ef til breytinganna kæmi, og menn færu að pakka miklu meira inn í teig. fs- lendingar hafa vanið sig á hraðan og skemmtilegan leik með mikið af þriggja stiga skotum. Leikurinn myndi bara deyja út ef við færum út í þetta. Svo þegar fimm mínútur væru eftir, þá færu lið að drita þristum, leikurinn myndi leystast upp í visst rugl. Þetta er eins og leyfa íjögurra stiga körfu á vellinum, þá færu menn að drita því endalaust sem myndi ekki gera íþróttínni neitt gott.“ Kannski gott fyrir yngri kyn- slóðina „Það væri kannski helst í yngri flokkunum, en ekki í meistara- flokki," sagði Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells. „Það væri snið- ugt fyrir yngri kynslóðina þar sem krakkarnir eru oft að reyna eitthvað sem þeir ráða ekki við. Ég myndi ekki vilja þetta í meist- araflokki. Svæðisvörn, sem er ekki skemmtileg á að horfa, yrði mun meira spiluð. Það verður að vera hægt að setja einn og einn þrist því að þetta er stór hluti að leiknum . Vandamálið í Bandaríkjunum er að körfuboltaþjálfarar í gagnfræða- skólum mega ekki sjást með leik- mönnum ákveðinn tíma ársins þannig að þá leika þeir lausum hala og eru kannski frekar að leika sér að troða og taka þriggja heldur en að æfa dripplið og önnur grunnatriði. Þar vantar meiri leiðsögn og aga af hálfu þjálfaranna sem mega ekki umgangast leikmenn á þessum tí'ma." sXe&dvJs | Páll Axel Vill ekki sjá þessa reglu á Islandi enda ein afbestu skyttum landsins, maður sem getur sett niður nokkrar þriggja stiga körfur á - stuttumtima.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.