Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Síða 29
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2004 29 Neyðist til að flytja Paris Hilton hefur neyðst til að kaupa sér nýtt hús þar sem heimili hennar í Hollywood er sífellt umsetið af brjáluðum að- dáendum hennar. Paris á einnig hús á Park Avenue og íbúð á Waldorf-hótelinu. Hún varð afar hrædd er brjálaður aðdáandi bankaði á útidyrahurð hennar í samfellt sjö klukku- stundir. Hún hefur einnig fengið bréf skrifuð með blóði, alls kyns hótanir og fjölda hjú- skapatilboða. „Það eru margar ástæður fyrir því að ég verð að kaupa mér nýtt hús en engin þeirra er góð.“ Langar að eldast með Ben Matt Damon segist dreyma um að eldast með besta vini sínum, Ben Afíleck, enda hefur vinskapur þeirra enst lengur en öll ástarsambönd hans hingað til. „Lengsta samband mitt við konu stóð í tvo og hálft ár. Sá tími er stuttur miðað við þann tíma sem ég hef verið vinur Bens." Da- mon er nú á föstu með innan- húshönnuðinum Luciano Bar- roso sem er vinkona Jennifer Lopez. Heyrst hefur að Matt þoli hins vegar ekki J.Lo. „Ég mundi aldrei dæma konuna í lífi Bens og býst við að hann mundi aldrei dæma kærustuna mína." Ekkertof gronn Leikkonan Kate Winslet segir fáránlegt af fjölmiðlum að segja að hún sé óvenjulega grönn. „í rauninni hef ég ekkert grennst. Ég er nýbúin að eignast barn og hef nú náð barnaspikinu af mér," sagði leikkonan. „Ég er búin að eignast tvö börn á síð- ustu fjórum árum svo vöxtur minn er breyttur frá því sem var. En ég hef ekki farið í megrtrn eða æft neitt meira en vanalega." Kate segist alls ekkert svekkt yfir að hafa ekki fengið að kyssa Johnny Depp í mynd- inni Finding Neverland. „Allar vinkon- ur mínar voru mjög svekktar fyrir mína hönd en ég hefði bara hlegið." Söngkonan Gwen Stefani er í sjokki eftir að í ljós kom að eiginmaður hennar á 15 ára dóttur með fyrrverandi kær- ustu sinni. Hjónaband Stefani og Gavin Rossdaie stendur á brauðfótum eftir að hjónakornin fengu fréttirnar. Söngvari Bush á 15 ára Faðemi Daisy Lowe, 15 ára fyrir- sætu, varð ljóst á dögunum og er um fátt annað talað meðal fræga fólks- ins vestan hafs og austan. Móðir Daisy er söngkonan og fatahönnuð- urinn Pearl Lowe, sem er þekkt í skemmtanalífi Lundúna og er góð vinkona Kate Moss, Sadie Frost, sem gift var leikaranum Jude Law, og Hollywood-leikaranna Liv Taylor og Samantha Morton. Pearl hefur búið með Danny Goffrey, trommara hljómsveitarinnar Supergrass, í mörg ár og h'tur Daisy á Danny sem föður sinn. Vildu komast að faðerninu Haft er eftir góðvini fjölskyldunn- ar að Pearl hafi alltaf gmnað að Gavin Rossdale væri faðir Daisy. Mæðgurnar ákváðu í sameiningu að komast að faðerinu. Eftir að lög- fræðingar gengu í málið féllst Gavin á að fara í blóðrannsókn og í síðustu viku lá niðurstaðan fýrir. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum var mæðgunum nokkuð bmgðið við fréttimar, sem og Gavin. Vinkonur Pearl, þær Kate Moss og Sadie Frost, undmðust ákvörðun mæðgnanna um að komast að faðerninu eftir all- an þennan tíma en stóðu með þeim. Pearl og Daisy segjast ekki vilja sjá peninga frá Gavin, þær hafi farið út í þetta til að finna föður stúlkunnar. Ástir unglinga Þau Gavin, sem nú er 38 ára, og Pearl, 33 ára, hittust í Egyptalandi þegar þau vom unglingar. Þau fóm að vera saman og brátt varð Pearl ólétt. Þau fluttu til móður Gavins í Lundúnum og skömmu eftir að Daisy fæddist shmaði upp úr sam- bandinu. Eitthvað virðist þó faðerni stúlkunnar hafa verið á huldu. Pearl hitti Danny Goffrey fyrir 10 árum og eiga þau synina Alfie og Frankie sem em 5 og 7 ára. Gavin hefur alltaf verið í góðu sambandi við mægurnar og er guðfaðir Daisy. Gwen niðurbrotin Gavin og bandaríska söngkon- an Gwen Stefani giftu sig árið 2002 eftir 6 ára samband. Haft er eftir góðum vini þeirra að hún taki fað- emismálið afar nærri sér og nú hrikti í stoðum hjónabandsins. Hún hefúr sagt í viðtölum að hennar heitasta ósk sé að eignast barn með eigin- manni sfnum og að hún sé ekki kát með stjúpdótturina. Þegar Gavin var spurður út í mál- ið á dögunum vildi hann ekki tjá sig um það en viðurkenndi að vera faðir Daisy. Það á því eftir að liggja fyr- ir Daisy að bæt- ast í hóp frægra dætra rokktón- listarmanna. Gavin og Gwen Gavin og bandaríska söngkonan Gwen Stefani giftu sig árið 2002 eftir 6 ára samband. Haft er eftir góð- um vini þeirra að hún taki faðernismálið afar nærri sér ognú hrikti f stoðum hjónabandsins. Þynnkuspóla í besta falli Maður getur lært ýmislegt af því að horfa á Anacondas. Græðgi mannsins getur orðið honum að falli og leitin af eilífri æsku er varasöm. Maður lærir líka að græðgin er ábyrg fýrir þessari leiðinlegu ræmu sem á meira heima á vídeóspólu en í kvikmyndahúsi. Þetta er svona óbeint framhald af Anaconda, mynd sem varð óvænt vin- sæl fyrir átta árum og skartaði Jennifer Lopez og Ice Cube í aðalhlutverkum auk Johns Voight sem var ferskur á kommbakk-brautinni á þeim tíma, en þessi mynd tengist þeirri fyrri að engu leyti fyrir utan nafrúð. Hópur vísindamanna heldur til Bomeo til að finna blóm sem á að innihalda lykilinn að lengra lífi. Hóp- urinn leigir bátskrifli af helmössuðum og fúlskeggjuðum Bandaríkjamanni til þess að ferja þau upp ána og freista þess að ná í blómið áður en það leggst Anacondas: The Hunt for the Blood Orchid. Leikstjóri: Dwight H. Little Aðalhlutverk: Johnny ' Messner, KaDee Strickland, s Matthew Marsden, Eugene f Byrd .Jka Omar for 1 bio í dvala í sjö ár. En þau lenda í smávægilegu veseni á leiðinni. í fýrsta lagi lenda þau í fossi sem eyðileggur bátinn þeirra (hvemig þau geta lent í fossi þar sem þau em að sigla á móti straumi hef ég ekki hugmynd um en svona er bíó stundum). Síðan vill svo skemmtilega til að það er fengitími hjá anaconda-snákunum og risastór- ar slöngur em við hvert fótmál og næla sér í þá vísindamenn sem fara ekki varlega, jafnvel þó að anaconda- snáka sé bara að finna í Suður Amer- íku, en ekki í Asíu. En hvað um það. Þetta verður svo allt frekar fyrirsjáan- legt og óspennandi og endar svo í enn fyrirsjáanlegri klisjusúpu. Leikarahópurinn er slappur upp til hópa, Johnny Messner, sem líkir sjálf- um sér við Steve McQueen, er algjör- lega steinrunninn og stífur og vonlaus sem leikari í bitastæðu hlutverki. Einnig er Eugene Byrd, sem „the to- ken funny black guy", alveg skelfileg- ur og gjörsamlega ófyndinn, öskrandi nánast allan tímann þannig að mann langar helst til að rota helvítið. Restin er ffemur auðgleymanleg og ómerki- leg. Brellumar em frekar augljósar er ekkert miðað við þær sem vom í þeirri fýrri og myndin hefur einhvem plebbalegan sjónvarpsbrag yfir sér sem er ekki skrítið þar sem leikstjórinri kemur einmitt þaðan. Því miður getum við búist við annarri mynd þar sem þessi gekk vel í Ameríku en það er bara vonandi að það verða önnur átta ár i það. Ómar öm Haukssor Stjörnuspá Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður er 54 ára í dag. „Hún virðist oft hafa það á tilfinningunni að hún sé læst inni án þess að vera fær um að . njóta stundarinnar, en khún gerir sér grein fyrir r að þegar þráin til Ijóss- rins eykst veit sálin ná- kvæmlega hvar mótstaðan ’ er. Hún ætti að huga sér- staklega vel að þessu og treysta á visku sálarinn- ar," segir í stjörnuspá hennar. Guðrún ögmundsdóttir VV Mnsberm(20.jan.-18.febr.) vv ------------------------------- Þú virðist hafa verið í uppnámi vegna nýafstaðinna atburða ef marka má stjörnu þína, vatnsberanns, og þú gerir án efa mun meira úr vandanum en hann í raun og veru er. Hversdagslegt amstur ætti ekki að tefja velgengni þína. H F\skam (19.febr.-20.mars) Allt sem þú aðhefst er til þess að þú lærir kæri fiskur. Þú stefnir hátt og kemst þangað, en hér birtast smávægileg- ar hindranir á vegi þínum (tilfinningalega séð). Þessar hindranir stuðla óbeint að vel- gengni þinni. T Hrúturinn (21.mars-19.a Hér kemur fram að þú virðist eiga það til að taka ekki eftir því hvað þú velur og á það við þig um þessar mundir miðað við stjörnu hrútsins. Fólk sem til- heyrir stjörnu þessari er þannig mótað að það svarar áhrifum frá eigin umhverfi á venjubundinn hátt og er oft á tíðum auð- velt að segja fyrir um viðbrögð þeirra. ö NaUtÍð (20. aprll-20. t Farðu með gát þegar kemur að einhverri ákvörðun sem þú stendur frammi fyrir um þessar mundir ef þú ert fædd/ur í veröldina undir stjörnu nautsins. n VlbUim'U (21.mal-21.júní) Það virðist vera leikur einn fyrir þig að hylja réttar tilfinningar þínar gagn- vart þeim sem þú elskar kæri tvíburi. Heið- arleiki og réttlæti eiga vel við þegar þú tek- ur á þessum málum. Gefðu þér tíma til að bæta aðstæður og ekki síður sjálfan þig. Krabbmn (22.júni-22.júii) Félagslegar aðstæður virðast hafa áhrif á líðan þína. Næstu daga mun það sem skiptir þig mestu máli eiga hug þinn allan en ef þú hefur áhyggjur af ein- hverjum kærkomnum er það tímabundið áhyggjuefni fyrir fólk í merki krabbans. \.)Ó\\\b(23.júli-22.ágústl '~' Síðustu misseri hefur þú eflaust safnað í kringum þig já-bræðrum og systr- um sem þú tekur þó sjaldan mark á. Þú býrð yfir óbugaðri þolinmæði en ekki fara yfir þau mörk sem þú settir þér í byrjun ársins. H5 Meyjanpi. ágúst-22. sept.) Skemmtilegur tími bíður þín þar sem þú brýtur vanann og tekst á við nýja og fræðandi hluti sem gefa þér án efa mik- ið. Þú veist best þegar þú hefur á réttu á standa, mundu það dagana framundan. o Vogin (23.sept.-23.okt.) Þú munt á næstu dögum takast á við próf einhvers konar þar sem forystu- hæfileikar þinir verða skoðaðir. Þú ert fædd/ur foringi en ættir að læra að næra sjálfið til muna, sem og dýpstu tilfinningar þínar. ni Sporðdrekinn (2iokt.-21.n0v.) Þú býrð yfir ómældri umhyggju í garð náungans en ættir að passa þig að drukkna ekki í smámunasemi í leit að einhvers konarfullkomnun. / BogmaðurinnpzmH'.-jí.ítoj Þú býrð yfir framúrstefnulegri hugsun sem þú ættir að nýta þér í starfi kæri bogmaður. Þú átt það til að gleyma kostum þínum. Hugaðu betur að draum- um þínum. Steingeitin (22.des.-19.janj Dagurinn verður góður og þú gerir þér Ijóst næstu daga að með aukinni sjálfsvitund eflir þú innsæi þitt. Gleymdu aldrei að þú býrð yfir einhvers konar al- heimsverndarhjúp sem hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. 3 SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.