Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 3 Bannað að gera trappur ug nýjar dyr „Þeir sögðu þetta geta orðið slæmt fordæmi," segir Alfreð Hauksson. Hvorir tveggja skipulagsfulltrúinn og byggingafuli- trúinn í Reykjavík höfnuðu ósk Alfreðs um að fá að steypa nýjar tröppur og koma fyrir útidyrum götumegin á húsi við Bjargarstíg. Alfreð hafði verið að hugsa um að kaupa húsið í sumar en vildi fyrst fá úr því skorið hvort leyfi fengist fyrir þessari breyt- ingu sem hann taldi vera nauðsynlega. Málið dróst hins vegar svo lengi í kerfinu að annar kaupandi eignaðist Bjargarstíg áður en niðurstaðan fékkst. „Inngangurinn inn í húsið, sem er þrjár hæðir, er að framan- verðu um kjallara. Það þurfti að ganga í gegnum þvottahús til að komast inn í húsið. Reyndar er annar gamall inngangur fyrir aftan hús sem hægt var að nota til að komast upp á aðra hæð. En þá þurfti að ganga í gegnum port sem breytt hafði verið í bílastæði. Þar var mjög þröngt að komast framhjá ef bíl hafði verið lagt og varla hægt án þess að rekast utan í og óhreinka fötin sín." Alfreð segist hafa bent á svipaðan inngang og hann vildi sem er á öðru húsi í næstu götu. Ekkert tillit hafi verið tekið til þess. Eftir að hafa fengið umsögn gatnamálastjóra neituðu bæði skipulagsfulltrúinn og byggingafulltrúinn að leyfa framkvæmd- irnar eins og áður segir. Trappan átti að ná 80 sentímetra út á gangstéttina. „Gatnamálastjóri sagði ekki mundu verða hægt að komast með snjótroðara framhjá. Ég held að aðallega hafi þeir óttast fordæmið sem gefið yrði. Mér fannst þetta nú frekar fúlt,“ segir Alfreð. Spurning dagsins Kaup Símans á Skjá einum Gott að fá fleiri en Baug „Mér finnst þetta bara allt í lagi. Sé ekkert athugavert viö þetta, satt best að segja. Mér fmnst það nú bara ánægjuefni að aðrir en Baugur eignist hlut í fjölmiðlum." Peter Szklenar, starfsmaður Esso. „Mér finnst þetta mjög grunsamlegt ef ég á að segja eins og er. Það hlýtur alltafað vekja spurn- ingar efríkið er með þessum hætti að fjárfesta umfangsmikið í einkageiranum og þá sérstaklega í þeirri sam- keppni sem þar er og ríkið tekur þátt í nú þegar." Linda Hilmarsdóttir fram- kvæmdastjóri. „Ég hefnú lítið fylgst með þessari um- ræðu núna en finnst þetta þó hálfgrunsam- legt. Við þurf- um að minnsta kosti ekki annað ríkissjónvarp, það held ég að sé nú á hreinu." Sveinbjörn Veturliðason ellilífeyrisþegi. „Er það ekki bara gott og blessað? Veistu, ég hef bara ekki myndað mér neina skoðun á þessu og læt mér því nægja að hafa áhyggjur afnáminu mínu frekar en Sím- anum eða Skjá einum." Helga Björg Ingvadóttir nemi. „Ég hefnú bara ekki heyrt afþessu. Mér finnstsattbest að segja allt í lagi að Síminn kaupi hlut í Skjá einum, að því gefnu að Síminn verði þá seldursem allra, allra fyrst." Jón Einarsson nemi. Kaup Símans á hlut í Skjá einum hefur vakið misjöfn viðbrögð. Stjórnarandstæðingar saka sjálfstæðismenn um að beita ríkisfyr- irtæki fyrir sig í deilum við Norðurljós en stjórnarliðar segja kaup- in eðlileg og arðsemissjónarmið ráði þarför. ölvueigh í hei Alþjóðafjarskiptasambandið og skýrsla Þróunarstofnunar fjarskipta eru sammála um hvaða tíu þjóðir eru mestu tölvunotendur í heimi: TÖLVUEIGN EFTIR LÖNDUM Land Fjöldi tölva í landinu Tölvur á hverja 100 íbúa 1. Bandarikin 178.000.000 62,25 2. Svíþjóð 5.000.000 56,12 3. Ástralía 10.000.000 51,71 4. Lúxemborg 230.000 51,45 5. Singapúr 2.100.000 50,83 6. Noregur 2.300.000 50,80 7. Sviss 3.600.000 49,97 8. Danmörk 2.300.000 43,15 9. Holland 6.900.000 42,85 10. Finnland 2.200.000 42,35 En svo er gæðum og auðæfum jarðarinnar misskipt að afþeim rúmu sex milljörðum manna sem hér búa á ekki nema tæpur hálfur milljarður tölvur - eða 7,74 afhverjum hundrað. arstjón 1879-1 Þeire feðgar Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu - útgáfu, og Þóröur Pálsson, forstöðumaður greiningardeildar KB banka, eru feðgar. Páll Bragi, sem er viðskiptafræðing- ur, hefur meðal annars starfaö hjá Almenna bókafélag- inu, Hafskipum og auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Þórður, sem er hagfræðingur, starfaði áður meðal ann- ars sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Stefanía Ingi- björg Pétursdóttir er eiginkona Páls og móðir Þórðar. Forstjórinn m greinirínn mæli ... AÐ MÖNDULSNÚNING- UR JARÐAR ER HÆGARI í MARS EN í SEPTEMBER. TÖNLISTAR- FRÆÐING- UR ER MAÐ- URSEM KANNAÐ LESA TÓN- LISTEN HEYRIR HANA EKKI. - Sir Thomas Beecham hljómsveit Það er stadreynd...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.