Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2004, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Kveikt í hjá
dómurum
Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var í fyrrinótt
kallað út vegna elds sem
laus var í dómarahúsi við
skeiðvöll Hestamannafé-
lagsins Harðar í Mosfells-
sveit. Talsverður eldur var í
húsinu þegar slökkvilið
kom á vettvang en vel gekk
að slökkva eldinn, sem
líkur benda til að hafi verið
af völdum íkveikju. Dóm-
arahúsið er talið því sem
næst ónýtt eftir eldinn.
Boðskort
í brúðkaup
til sölu
Dularfullur gestur
hefur auglýst boðskort í
brúðkaup vinar síns til
sölu á netinu. Sú skýring
fylgir með að hann geti
ekki þolað brúðina. Selj-
andinn sem gengur
undir nafninu
Twinklydog á eBay-
vefnum segir að
boðskortið, sem gildir
fyrir tvo, sé tæplega
20.000 kr. virði. Hann
kemur frá Aberdeen og
segir á eBay: ,Ætti að
verða góð veisla. En ég
vil ekki fara ... brúðurin
er algjör beygla." Ein-
hverjir spéfuglar hafa
þegar boðið 10 milljón
pund í boðskortið.
Hífðu óvart
elgíl5mhæö
Línuflokkur í Alaska sem
var að strengja raflínur
milli mastra að Teko Pogo-
gullnámunni hífði elg upp í
15 metra hæð af slysni á
dögunum. Að sögn Fair-
banks Daily News lágu lín-
urnar á jörðinni er forvitinn
600 kg elgur kom að þeim
og festi horn sín. Verka-
mennirnir sem voru að hífa
línurnar upp sáu ekki elg-
inn þar sem þeir voru bak-
við hæð og tókst elgurinn á
loft með línunum. Það var
ekki fyrr verkamennirnir
sáu elginn danglandi í lín-
unum að honum var slakað
niður aftur.
_. _.jddur i siðbunu
sumarfríi í Borgarfirði eystra.
Fjölskylda konunnar á hér
hús," segir Runólfur Ágústs-
son,
rektor
Landsíminn
Við-
skiptaháskólans í Bifröst.„Flér
er dásamlegt að vera og
hlusta á brimið sem varmikið
í gærkvöldi. Helsti munurinn á
Borgarfirði eystra og hinum
syðra er helstur sá að hér lifa
menn á sjónum á meðan
Borgfirðingar syðra stíla upp á
annað. Lifið hér er með öðrum
hætti. En ég er að halda suður
á ný. Fer um helgina."
í dag mætir Máni Andersen fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til að bera vitni í máli
þar sem Annþór Kristján Karlsson, handrukkari og vinur Mána, er ákærður fyrir
hrottalegar barsmíðar. Máni var sjálfur handrukkari en hefur snúið við blaðinu.
Hann segist þó enn telja að fólk eigi að borga sínar skuldir. Fáir menn setji blett á
handrukkarastéttina.
menn knmn vnndu
stétt hendrnkknrn"
Máni Andersen fyrr-
verandi handrukkari
Segir að fólk eigi að borga
skuldirsínar.
8ÉI
Handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson mun mæta fyrir Hér-
aðsdóm Reykjavíkur í dag. Hann á yfir höfði sér dóm vegna
hrottafenginnar árásar á Birgi Rúnar Benediktsson, sem lá
mjaðmagrindarbrotinn uppi í rúmi á meðan Annþór lamdi
hann ítrekað með stálröri. Tveir félagar Annþórs, Ólafur Valtýr
Rögnvaldsson og Máni Andersen, voru á staðnum. Ólafur Valtýr
hefur þegar borið vitni en Máni mun mæta fyrir dóm í dag.
„í þessu máli held ég að Annþór
hafi gengið of langt,“ segir Máni
Andersen sem féllst á að segja DV frá
sinni reynslu af heimi handrukkar-
ans. Hann var sjálfur handrukkari á
sínum tíma en hefur að eigin sögn
snúið baki við þeim heimi. Hann
vinnur nú úti á landi í byggingar-
vinnu og er einn efnilegasti júdó-
kappi íslands.
„Jú, ég var að keppa um síðustu
helgi," segir Máni sem gekk vel á
mótinu. Vann gullverðlaun. DV
hafði samband við Mána eftir að
nafn hans birtist á dóplistanum
fræga. Máni segist aldrei hafa verið í
eiturlyfjabransanum.
Fólk á að borga sínar skuldir
„Það er erfitt að tjá sig um þetta.
Fortíðin bítur alltaf í bakið á
manni," segir Máni
sem er einn
þeirra manna
sem eru á
dóplista Björns
Sigurðssonar.
„Ég viðurkenni
að ég var einu
sinni í því
„Fólk getur ekki bara
fengið lánað, hvort
sem það eru eiturlyf
eða annað, og ekki
borgað."
að rukka en ég er hættur í þeim biss-
ness. Ef ég væri í þessu í dag myndi
ég ekki geta keppt í íþróttum. Þetta
er fortíðin og hún er að baki."
Máni segist hafa leiðst út í þenn-
an heim þegar hann var ungur og
vitlaus. Áfengi hafi spilað stóran
þátt. Handrukkununin hafi þó ekki
verið tengd fylleríum heldur hafi
þetta verið vinnan sem hann stund-
aði til að fjármagna skemmtanir.
„Mér finnst ennþá í dag að fólk
eigi að borga skuldirnar sínar," segir
Máni. „Fólk getur ekki bara fengið
lánað, hvort sem það eru eiturlyf eða
annað, og ekki borgað. Þetta er held-
ur ekkert alltaf svo óheiðarlegur
bransi. Það er ekkert óheiðarlegt við
að fá mann til að innheimta skuldir
fyrir sig. Sumir geta kannski ekki
borgað lögfræðingi og hvert á gamla
konan að leita sem hefur verið rænd
aleigunni?"
Síðustu daga hefur DV fjallað
ítarlega um hrottalegar aðferð-
ir handrukkara sem vfla ekki
fýrir sér að beita fólk skefja-
lausu ofbeldi. Að sögn fyrr-
verandi handrukkara sem
DV tók viðtal við fyrr í vik-
unni eru jafnvel til dæmi
þess að kærustum skuld-
ara sé nauðgað eða fórn-
arlömb neydd til að
• hengja sig. Máni segist
hins vegar ekki hafa ver-
ið „þannig" handrukkari.
Rússnesk yfirvöld gagnrýnd
Milljónir barna búa á götunni í Rússlandi
Mannréttindasamtök í Rúss-
landi hafa gagnrýnt yfirvöld þar
harðlega fyrir að gera ekkert til að
bregðast við sívaxandi fjölda götu-
barna í landinu. Telja samtökin að
nú séu á milli 500.000 og 4,5 milljón
barna í landinu sem hvergi eiga
höfði að halla.
„Hvert ár hverfa um 30.000 börn
í Rússlandi og það hafur komist
upp um ekki færri en 190 gengi af
glæpamönnum sem stunda sölu á
börnum," segir Leonid Tsjekalin,
formaður samtakanna Börn eru
framtíð Rússlands.
Stærstur hluti af götubörnunum
í Rússlandi eru ekki munaðarlaus.
Oftast hafa þau flúið af heimilum
sínum vegna ofbeldis, upplausnar
eða alkóhólisma innan heimilisins.
Götubörn Hvert ár hverfa um 30.000 börn í Rússlandi.
ekki til og vilja aðgerðir strax til
lausnar á því.
Fyrrgreind samtök segja að yfir-
völd láti sem þetta vandamál sé
Mjög langt
á ströndina
Kona í Birmingham á Englandi
bókaði flug til Spánar fýrir fjöl-
skyldufríið og hótelgistingu í
Þýskalandi. Konan, Christina
Cooke, var á netinu í þrjár vikur
þar til hún bókaði hótelherbergi
sem hún hélt að væru á Costa Del
Sol. En þegar fjölskyldan mætti til
Benalmadena gátu þau hvergi
fundið Avalon Hotelpark sem þau
voru með bókuð herbergi á. Að
lokum komust þau að því að hót-
elið var í 1.600 km fjarlægð. Fyrir
utan að tapa kostnaðinum við
bókunina þurfti fjölskyldan að
punga út töluverðri fjárhæð fýrir
öðrum hóteh við ströndina.
Hætti að rukka árið 2000
„Það eru fáir menn sem koma
vondu orði á stétt handrukkara,"
segir Máni, sem var á sínum tfma
náinn vinur Annþórs Kristjáns
Karlssonar og þarf að mæta fyrir
dóm í dag og bera vitni um aðferðir
hans. í málinu sem um ræðir er
Annþór ákærður fyrir hrottalega lflc-
amsárás. 22 ára drengur sem lá
mjaðmagrindarbrotinn uppi í
rúmi var marghandleggs-
brotinn þegar Annþór
lamdi hann ítrekað með
stáköri. Foreldrar
drengsins halda því fram
að leigusali hafi borgað
Annþóri fýrir að sjá um
verkið.
Máni er ekki ákærður
en er mikilvægt vitni.
Hann var þriðji maðurinn á
vettvangi. Stóð við
dyrnar meðan
barsmíð-
arnar fóru
fram.
„Mér
finnst margt af þessu ekki sniðugur
leikur ef satt er. Ég hef þekkt Annþór
frá því við vorum ungir og hef ekkert
slæmt um hann að segja sem per-
sónu. Hef alla tíð kunnað vel við
hann. Mér finnst það samt slæmt ef
satt er að hann hafi lamið Friðrik
Þór.
Ég get samt lítið tjáð mig um
þetta mál. Minn framburður mun
koma fram fyrir dómi í dag.
Fyrir mína parta hef ég
snúið við blaðinu. Hætti
að rukka árið 2000. Það
var trúin sem sneri
mér á rétta braut,"
Segir Máni. En fyrir
dómi í dag ber hann
vitni vegna atburða
sem áttu sér stað árið
2003.
simon@dv.is
mmk