Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVMEBER 2004
Fréttir DV
í mál vegna
hrossakaupa
Einn fremsti hestamað-
ur íslands, Sigurbjörn
Bárðarson, hefur höfðað
mál á hendur þremur
hestamönnum vegna
hrossakaupa fyrir nokkrum
árum. Forsaga málsins er
sú að Sigurbjörn, sem hefur
yfir fjölda hrossa að ráða,
taldi sig hafa lánað manni
tvo hesta. Sá maður seldi
síðan hrossin til þriggja
hestamanna fyrir nokkrum
árum. Eftir sat Sigurbjörn
með sárt ennið. Borgar Jens
Jónsson, Eygló Breiðijörð
Einarsdóttir og Hallgrímur
Jóhannesson eru jafnvel í
enn verri stöðu. Þau keyptu
hrossin í góðri trú. Málið
var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjaness í gær.
Bolvíkingar
velja
einsemd
Bolvíkingar eru flestir
andvígir sameiningu við
önnur vestfirsk byggðar-
lög. Fréttavefurinn vik-
ari.is segir frá borgara-
fundi sem haldinn var til
að ræða sameiningu við
önnur sveitarfélög. Nið-
urstaða fundarins varð
sú að flestir fundar-
manna reyndust andvíg-
ir sameiningaráformum.
Fundurinn var haldinn í
tilefni af þeirri tillögu
sameininganefndar fé-
lagsmálaráðherra að
íbúum Bolungarvíkur,
Súðavíkur og ísafjaröar-
bæjar yrði gefinn kostur
á að segja hug sinn til
sameiningar sveitarfé-
laganna í kosningu þann
23. aprfl á næsta ári.
DeCODE og
Roche áfram í
einni sæng
íslensk erfðagreining og
lyfjarisinn Roche til-
kynntu í gær að samn-
ingur hefði náðst um
áframhaldandi sam-
starf við þróun lyfja
sem komið geta í veg
fyrir æðasjúkdóma og heila-
blóðfall. Samstarfið nær til
þriggja ára og munu fyrirtæk-
in deila kostnaði við lyfjaþró-
un og prófanir. Lyfjaþróunin
mun fara fram undir merkj-
um Roche en ávinningur
deCODE felst í áfangagreiðsl-
um og hlutdeild í sölutekjum
af þeim lyfjum sem þróuð
verða í samstarfinu. Greining
Landsbankans segir frá.
Séra Baldur Gautur Baldursson slapp við ákæru vegna þess að lög ná ekki yfir
samfarir við 15 ára. Drengur á Akranesi sem presturinn lokkaði til sín hefur þurft
mikla aðhlynningu. Móðir drengsins er ævareið og segir réttarkerfið einkennast af
tviskinnungi.
Móðirin segist vera furðulostin og
reið eftir að saksóknari ákvað að láta
mál á hendur séra Baldri niður falla
vegna þess að drengurinn var orðinn
15 ára þegar meint tæling prestsins
átti sér stað. Baldur, sem starfaði sem
prestur og héraðslögreglumaður á
Kirkjubæjarklaustri, nýtti sér netið til
að komast í samband við drenginn og
hefur játað við yfirheyrslur að hafa átt
við hann munnmök. Það telst þó ekki
saknæmt því lög heimila samfarir við
14 ára unglinga og eldri. Móðirin
segist vera þrumulostin eftir að fallið
var ffá ákæru.
„Það er áfall að maðurinn skuli
sleppa. Ég hef enn ekki kynnt mér
málið í þaula en mun gera það og
ákveða í samráði við lögfræðing minn
hver viðbrögðin verða. Þessi afgreiðsla
málsins er lýsandi fyrir þann tvískinn-
ung sem er í réttarkerfinu þar sem
böm em stundum böm en stundum
ekki. Börn verða ekki lögráða fyrr en 18
ára en þetta er látið viðgangast gegn 15
ára bami,“ segir hún.
Móðirin vill ekki láta nafns síns eða
sonarins getið af ótta við að hann verði
fýrir aðkasti. Hún segir að undanfamir
mánuðir hafa verið erfiðir.
Akranes Móðir drengsm
sem presturinn lokkaði til
samfara gætirþess vandlega
að samfélagið frétti ekki hver
hann er. Hún undrast það að
fallið skuli frá ákæru og telur
að tvlskinnungs gæti I lögum.
Baldur Gautur Baldursson Prest
urinn verður ekki sóttur til saka því
leyfilegt er að hafa kynferðisleg
samskipti við 14 ára og eldri.
„Sonur minn átti mjög erfiða tíma
fyrst eftir að málið kom upp og þetta
hefur verið mér ofboðslega erfitt.
Hann lokaði í fýrstu á þessa atburði.
Við ákváðum strax að einungis örfá-
ir mættu vita af því hvað hann hefði
gengið í gegnum til þess að vemda
hann gegn umhverfinu. Við búum í
litlu samfélagi og ég vil ekki að sonur
minn verði fyrir aðkasti," segir hún.
Aðeins örfáir innan fjölskyldu
drengsins hafa fengið að vita um þá
nauð sem hann gekk í gegnum með
prestinum. Móðir hans segir að öll
áhersla hafi verið lögð á að bjarga sál-
arheill hans og því hafi verið myndað-
ur stuðningshópur sem komi reglu-
lega saman.
„Drengurinn minn er í vemdar-
hjúp til þess að lágmarka skaðann.
Hann veit ekki hvemig á að taka á
tillfinningunum eftir þessa reynslu en
mér finnst allt vera á réttri leið,“ segir
hún.
Séra Baldur hefur ekki viljað ræða
þessi mál en hann var sviptur embætti
sínu sem afleysingaprestur og einnig
settur af sem héraðslögreglumaður á
Suðurlandi eftir að málið kom upp.
rt@dv.is
Hopur foiks til hjalpar
(órnorlooibi prestsins
Drengur á Akranesi sem séra Baldur Gautur Baldursson átti í
kynferðislegum samskiptum við hefur notið stöðugrar um-
hyggju fjölskyldu og vandamanna frá því málið kom upp fyrir
nokkrum mánuðum. Móðirin segir nauðsynlegt að vernda son
sinn gegn umhverfinu og því vita einungis örfáir hver hann er.
Samsæri um áramótaskaup
Það fór ekki hátt. En valdhafamir
hafa sýnt sitt rétta andlit og eins og
svo oft áður beita þeir Rfldsútvarpinu
fyrir sig. í gær las Svarthöfði það sér
til mikillar furðu að rfldsvaldið hefði
ráðið Spaugstofuna til að sjá um ára-
mótaskaupið í ár. Undanfarin tvö ár
hefúr skaupið verið í höndum hóps
ffjálsra listamanna sem létu gamm-
inn geisa og hh'fðu engum. Sérstak-
lega ekki valdhöfunum. En nú á að
verjast og forða ffekari árásum um
áramót.
Með því að ráða Spaugstofuna tíl
starfans tryggir rfldsvaldið saklausa
og bitlitia umíjöllun um ffamferði
stjórnarherranna á árinu sem brátt er
á enda. Spaugstofan hefur um ára-
tugaskeið verið hluti af valdakerfinu í
landinu og séð greiðendum afnota-
gjalda Rfldsútvarpsins fyrir græsku-
lausu gríni á laugardagskvöldum. Að
auki hafa allir Spaugstofumennimir
verið á opinberu framfæri með samn-
ingum við Þjóðleikhúsið eða aðrar
opinberar stofhanir og í raun þegið
allt lífsviðurværi sitt úr sameiginleg-
um sjóðum landsmanna. Það sama
verður ekki sagt um aðra hópa lista-
manna og grínista sem barist hafa
fyrir sínu skopi á ffjálsum markaði.
Nægir þar að nefna Tvíhöfða, strák-
ana í 70 mínútum og sæg af ung-
mennum sem iða í skinninu eftir að
fá að spreyta sig á kostulegum hliðum
lífsins í landinu með sínum hætti.
Samráð og samsæri ríkisvaldsins
og Spaugstofunnar um bitlaust ára-
mótaskaup sést þó best í því klók-
indabragði og augljósa trikki að fá
Sveppa og Jón Gnarr til liðs við sig í
nokkrum atriðum. Með því á að fela
samsærið og veijast fram í rauðan
dauðann gegn yfirvofandi gagnrýni
sem hlýtur að hljóma um land allt og
bergmála landshluta á milli seint á
gamlárskvöld þegar áhorfendum
verður ljóst að enn einu sinni hafi
þeir verið hafðir að fíflum. Og borgað
fyrir það sjálfir. Svaithöíöi
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþaö bara fínt. Þaö er ekki undan neinu að kvarta í augnablikinu og svo eru jú að
koma jól bráðum."
Arnbjörg Valsdóttir leikkona.