Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Síða 5
RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS VIÐ ÖBÍ
Fyrir kosningar:
„Ég hef tröllatrú á því að hver sem að ríkisstjórnin verður sem
að tekur við að loknum kosningum, að þeir standi við þetta
samkomulag. Ég hef enga trú á því að hver sem ríkisstjórnin
verður, að þeir vilji hefja styrjöld við Öryrkjabandalagið."
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í RÚV 25. mars 2003.
„Samkomulagið sem gert var við Öryrkjabandalagið náðist eftir
fjölmarga formlega, en ekki síður óformlega samráðsfundi,
sem undirritaður og embættismenn heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins hafa átt með forystumönnum
bandalagsins að ógleymdum Halldóri Ásgrímssyni."
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í Morgunblaðinu 27. mars
2003.
„Báðir sögðumst við sannfærðir um að enginn
stjórnmálaflokkanna myndi einn eða í samráði við aðra flokka
reyna að rokka við því samkomulagi sem gert hefur verið."
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í Morgunblaðinu 27. mars
2003.
Eftir kosningar:
„Það er Ijóst að það vantar þarna upp á og miðað við þá
peninga sem ég hef - einn milljarð króna - get ég ekki
farið í nema tvo þriðju núna.“
Heilbrigðis- og tryggingamáiaráðherra í DV 27. nóvember 2003.
„Það hefur komið í Ijós að fullnusta þess (samkomulagsins)
er dýrari en lá fyrir þá og ég er að leita leiða og láta fara
yfir málið til þess að hægt verði að fullnusta samkomulagið."
Heiibrigðis- og tryggingamáiaráðherra í Fréttablaðinu 29. nóvember
2003.
Niðurstaðan var því sú að sögn ráðherra
að greiða þyrfti hækkanirnar sem um var samið í áföngum,
66% koma til greiðslu um næstu áramót og afgangurinn
ári síðar. - „Þetta varð niðurstaðan í meðförum
ríkisstjórnarinnar um fjárlagafrumvarpið."
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í Morgunblaðinu 28.
nóvember 2003.
Úr forystugreinum Morgunblaðsins:
„Stjórnmálamenn, sem í vor töldu ríkissjóð hafa nægt
svigrúm, þannig að bæði væri hægt að lofa að lækka
skatta og heita öryrkjum brýnum kjarabótum, geta ekki
verið þekktir fyrir að seinka nú efndum loforða sinna."
Morgunbiaðið 27. nóvember 2003.
„Kjarni málsins er sá, að ríkisstjórnin gerði samkomulag,
sem flestir töldu að markaði tímamót í samskiptum
hennar og öryrkja eftir áralangt stríð og málarekstur fyrir
dómstólum. Samninga, sem gerðir eru, ber að efna.“
Morgunblaðið 13. október 2004.
ÖRYRKJABANDALAG ÍSLANDS
Auglýsingin er greidd með erfðafé Óiafs Gisla Björnssonar.