Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2004, Side 29
X>V Sjónvarp
MIÐVIKUDACUR 24. NÓVEMBER 2004 29
Hvað veistu
umKeiru
Knightley?
Taktu prófið _
1. Hvað æfði Keira áður en hún ákvað
að snúa sér að leiklistinni?
a. Fótbolta
b. Söng
c. Dans
d: Módelstörf.
2. Hversu gömul var Keira þegar hún
fékk sér umboðsmann?
a. I8dra
b. 6 ára
c. 12 ára
d. 15 ára
3. Hvað heitir persónan sem hún
leikur í Bend It Like Beckham?
a. Juliette
b. Jess
c. Mel
d. Pinky
4. Hvaða ár fæddist Keira?
a. 1984
b. 1982
c. 1985
d. 1979
5. Hver var fyrsta stóra Hollywood-
myndin sem hún lék f?
a. Pirates ofthe Carribbean
b. Star Wars: The Phantom Menace
c. Lord ofthe Rings: The Fellowship
ofthe Ring
d. The Fast and the Furious.
6. Við hlið hvaða leikkonu mun Keira
leika f Hroka og hleypidómum eftir
Jane Austen?
a. Nicole Kidman
b. ReneeZellweger
c. Meryl Streep
d. Judi Dench
7. Við hvað starfar mamma hennar?
a. Leikstjóri
b. Fyrirsæta
c. Söngkona
d. Leikskáld
8. Keira litaði nýverið hárið. Hvaða lit
valdi hún?
a. Brúnt
b. Rautt
c. Ljóst
d. Svart
■isgh 8 ViWWT 'l
!pnf9 eoDueyy woiuogd 3iil:sjdm
JDIS ‘S S861 ‘k suaanr £DJpxss z sudq • (
•■m s
Bumbun og bpjostahaldarar
Þetta er ein af þessum myndum
sem nánast hver einasti sauma-
klúbbur á landinu hópast á og nán-
ast hver einasta kona sem er ekki í
saumaklúbb fer líka á. Flestir karl-
menn fara einungis í fylgd með
kærustum, nema þetta sé einn af
þessum gaurum sem á bara vinkon-
ur en er í raun ástfanginn af þeim
flestum og fer með þeim af því að
þeim finnst svo gott að tala við
hann. Ég þurfti að fara einn af því að
konan hafði farið með vinkonum
sínum kvöldið áður. Ekki mjög töff,
en hvað um það.
Ég hafði ágætíega gaman af
fyrstu myndinni um kjánann
Bridget Jones sem skrifar í dagbæk-
ur og hafði svo sem ekkert á móti því
að sjá þessa þó að ég hefði alveg
getað lifað án þess.
Þessi tekur upp þráðinn átta vik-
um eftir að sú fyrri endaði og hefur
fröken Jones sett ansi utan á sig á
þessum tveimur mánuðum og er
hætt að nota allan farða af einhverri
ástæðu. Hún er í hamingjusömu
sambandi með Mark Darcy en er
alltaf eitthvað að kjánast og haldin
þeirri grillu að hann sé að halda
framhjá. Verður það til þess að það
flosnar upp úr sambandinu og hún
verður kona einhleyp á ný. Daniel
nokkur Cleaver (Hugh Grant) lætur
sjá sig aftur og þarf Jones að vinna
þátt með honum fyrir sjónvarpið
sem endar með ósköpum.
Helsta vandamálið við þessa
mynd er það að það er enginn sögu-
þráður og hún er ekkert sérlega
fyndin. Það eru nokkrir ágætir
brandarar hér og þar en ekki nóg til
að halda henni uppi í tvo tíma.
Zellweger er næstum því bara
pirrandi með þessa kjánatakta og
ósannfærandi breska hreim. Það er
svolítið skrítíð að sjá hana svona
mun „feitari" og meira óglamúrus
en í þeirri fyrri. Það er eins og þeir
hafi ekki þorað að ganga svona langt
í fyrstu myndinni en nú þegar hún
var svo vinsæl og Zellweger fékk svo
mikið hrós fyrir að vera svo „hug-
rökk" að fita sig fyrir hlutverkið þá
vill hún reyna að bæta fyrra met.
Hugh Grant er í þeirri seinni af
þeim tveimur persónum sem hann
virðist geta leikið, stamandi sjarmer-
andi auiabárðinn eða sjarmerandi
töffarann. Hann á bestu línumar í
myndinni en sá leikari sem stendur
sig best að vanda er Jim Broadbent
sem leikur föður Bridgetar. Hann er
því miður bara allt of h'tið í henni.
Skítsæmileg mynd, fín í deitið en
ekki mikið meira en það og ef ég
væri Tælendingur yrði ég satt að
segja sármóðgaður yflr henni.
Ómai öm Hauksson
Brídget Jones: The
Edge of Reason
Sýnd í Sambióunum, Há-
skólabíói og Laugarásbíói.
Leikstjóri: Beeban Kidron.
Aðalhlutverk: Renée
Zellweger, Hugh Grant,
Colin Firth, Jacinda Barrett.
★ ★
Ómar fór í bíó
Brad Pitt vill að vinur sinn, Matt Damon, verði kjörinn kynþokkafyllsti karl heims
erfitt
þokkafræðum
fyrir. Hann var
að berjast af
hörku. Greyið gerði
eins vel og hann gat og
það reyndist honum
að láta í minni pok-
ann fyrir Jude Law,“
segir Brad og
bætir við: „Ef
hann heldur
sínu strikið
og gefur
Matt Damon Þrátt fyrir harða baráttu laut
hann i lægra haldi fyrirJude Law.
sig í þetta þá munum við sjá hann
á toppnum á næsta ári.“
Brad segist ekki einn um
þjálfunina því annar fyrrverandi
titilhafi, George Clooney, sé með
honum í þessu. „Við erum að
vinna með nokkrum ungum
mönnum sem eiga framtíðina
fyrir sér. Ef Jude Law væri á nám-
skeiði hjá okkur þá yrði hann
efstur í bekknum. Það er augljóst
að kynþokkinn er honum eigin-
legur. Við bindum hins veg-
ar vonir við Matt og ætlum
okkur að koma honum alla
leið."
Fekur Matt í kennsl
Brad Pitt hefur að undanförnu
veitt kollega sínum Matt Damon
tilsögn í kynþokka. Brad vill svo
gjarnan að vinur sinn Matt vinni
titilinn „Mest kynæsandi karl ver-
aldar". Matt tapaði naumlega fyrir
Jude Law í síðustu kosningu en
það er bandaríska tímaritið People
sem tekur árlega saman lista af
þessu tagi. Brad hefur sjálfur
hampað þessum eftirsótta titíi
og virðist ekki hafa áhuga á að
endurtaka
leildnn. Hon-
um er bara
umhugað um
Matt.
held
Matt hafi
verið mjög
brugðið
þegar
úrslitin
Stjörnuspá
Eyþór Arnalds tónlistarmaður er 40 ára í
dag „Maðurinn sem hér um ræðir réttir
hér fram hönd sína og í hana verður
tekið. Hann veit að þegar þörf hans er
sönn fær hann hjálp og það á
_ vissulega við um þessar
. mundir. Hann er einnig
j minntur á að tengslin við
^kærleikann slitna aldrei.
’ Lífstala mannsins er 1 sem
segir til um frumkvæði, for-
svar, sjálfstæði og
I árangur," segir í
[stjörnuspánni hans.
Eyþór Arnalds
VV. Vatnsberinn (20./an.-is.few
V\ ---------------------------------
Þú virðist forðast einhvers konar
óþægindi þessa dagana. Þú ættir að rækta
skopskyn þitt og horfa fram á við með já-
kvæðu hugarfari. Fólk í merki vatnsberans
býr yfir þeim góða eiginleika að koma
jafnvægi á eigin líðan þar sem tunglið hef-
urtöluverðáhrif.
H
V\Skm\Ul9.febr.-20.mars)
Þú býrð yfir yfirvegun og rósemi
sem er oft á tíðum óskiljanleg en vissulega
jákvæð í fari stjörnu fiska. Umfram allt,
hafðu ekki áhyggjur því þú ert einstök/-
einstakur, með rétt viðhorf til lífsins. Láttu í
Ijós þína einstæðu hæfileika.
Hrúturinn (21.mars-19.april)
Þér er ráðlagt að hjálpa sam-
ferðafólki þínu eins og þú ert fær um. Vittu
til, góðverkin koma til þín fyrr en síðar.
Mundu að tilvera þín er lífsundur og allir
vegir eru þér færir þegar þú ákveður að
þú eigir það besta skilið.
T
Ö
Nautið (20. april-20. mal)
D
Þegar þú gefur og þiggur er
hugarfar þitt það sem skiptir höfuðmáli
og það veistu, kæra naut. Þegar stjarna
þín gefur með gleði í hjarta vex kraftur
hennar sem gjöfinni fylgir og verðmæti
hennar margfaldast.
Tvíburarnir(2! . mai-21.júni)
Eitthvað mjög gott sem þú gerir
ekki ráð fyrir mun gerast næstu daga og
ýtir það undir þakklætistilfinningu þina,
kæri tvíburi. Þú ert rétt að byrja miðað við
stöðu sólar gagnvart stjörnu þinni.
^ Krabbinn(22.jú/i/-22.jú/o
Þú ættir fyrir alla muni að
forðast að halda í gamlar hugmyndir sem
þú veist að eru úreltar ef um framtíðar-
áætlanir er að ræða.
Ljónið (23.júlí- 22. ágúst)
Þú hleypirfólki ekki nálægt þér
fyrr en að vel athuguðu máli. Þú ert án efa
ráðrík/-ur mjög en átt einnig mjög auðvelt
með að gera fólkið í kringum þig ham-
ingjusamt með nærveru þinni. Það er án
efa breytilegt hvernig þú beitir hæfileikum
þínum þessa dagana en þeirfæra þér það
sem þú þráir.
Meyjan (21 ágúst-22. septj
Þú ert gædd/-ur þeim góða
hæfileika að vita hvað borgar sig og hvað
er tímasóun. Oft á tíðum gefur þú ákaflega
mikið að þér og á það sérstaklega við þig
ef þú trúir á málstaðinn sem þú vinnur að.
Q Vogín (23.sept.-23.okt.)
Þessa dagana birtist þú náung-
anum sem þrjósk manneskja sem er með-
vituð um sjálfið en einmitt þar felst styrkur
vogar.
"I
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Þú birtist á þessum árstíma
mjög næm/-urfyrir þörfum fólks og tekur
hvers kyns neyð og vanda með dugnaði
og skilningi sem reynslan hefur án efa
kennt þér. Þú birtist að sama skapi gef-
andi en ættir að hugsa þig tvisvar um áður
en þú ákveður að laga l(f þitt að óskum
/
Bogmaðurinn (22.n6v.-21.desj
Ekki gleyma hvert þú ætlar þér.
Viðskipti blómstra og áætlanir munu
standast hjá stjörnu bogmanns.
z
Steingeitin(22.rfffl.-;9.jonj
Ánægjuleg heimsókn erfram-
undan og veit hún á gott fyrir fólk í merki
steingeitar. Ekki dæma náungann. Þú
munt brátt heyra gleðitíðindi sem tengjast
fjölskyldu þinni en á sama tíma er þér ráð-
lagt að treysta eingöngu á eigin getu og
undirbúa þig vel fyrir próf einhvers konar
sem bíður þín fyrir árslok.
SPAMAÐUR.IS