Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1953, Blaðsíða 81
fiskur 125 tonn (árið áður 86). Fiskur seldur til
neyzlu innanlands var 3 200 tonn (árið áður 2100).
Afli togaranna var um 185 000 tonn (árið áður 135 000),
en bátaaflinn rúmlega 100 00 tonn (árið áður 127 000).
Nokkur islenzk skip stunduðu fiskveiðar við Grænland.
Margir togaranna stunduðu karfaveiðar að meira eða
minna leyti. 8 nýir togarar komu til landsins á árinu.
Síldaraflinn varð um 85 000 tonn (árið áður 62 000).
Var síldveiði nokkru meiri á Norðurlandsvertíðinni en
áður, en sildarvertíðin syðra varð mjög endaslepp.
Síldin veiddist mest út af Norðausturlandi og Aust-
fjörðum. Gerðar voru tilraunir með fisksjá við rek-
netjaveiðar. Af sildinni fóru í bræðslu 350 000 mál
(árið áður 176 000), en í frystingu fóru rúmlega 6 000
tunnur (árið áður rúmlega 7 000). Saltað var í 87 000
tunnur (árið áður 55 500). — Hvalveiðar gengu frem-
ur vel. Laxveiði var mjög misjöfn eftir ám. Gerðar
voru tilraunir með ræktun regnbogasilunga hjá Graf-
arholti í Mosfellssveit.
Allmargir íslenzkir útvegsmenn fóru til Noregs i
marz og fóru þar víða um og' kynntu sér útvegsmál.
Freðfiskur var fluttur út fyrir 179.7 millj. kr. (árið
áður 80.3 millj. kr.), síldarlýsi fyrir 72 millj. kr. (árið
áður 21.5 millj. kr.), isfiskur fyrir 70.1 millj. kr. (árið
áður 24.2 millj. kr.), þurrkaður saltfiskur fyrir 66.8
millj. kr. (árið áður 22.5 millj. kr.), óverkaður salt-
fiskur fyrir 62.6 millj. kr. (árið áður 64.7 millj. kr.),
saltsíld fyrir 60.1 millj. kr. (árið áður 54.7 millj. kr.),
þorskalýsi fyrir 37.2 millj. kr. (árið áður 43.7 millj. kr.),
karfamjöl fyrir 33.7 millj. kr. (árið áður 13.5 millj. kr.),
fiskmjöl fyrir 27.3 millj. kr. (árið áður 19.6 millj. kr.),
karfalýsi fyrir 21.9 millj. kr. (árið áður 6.9 millj. kr.),
hvallýsi fyrir 11.4 millj. kr. (árið áður 10.2 millj. kr.),
síldarmjöl fyrir 10.7 millj. kr. (árið áður 4.1 millj. kr.),
harðfiskur fyrir 7.7 millj. kr. (árið áður 0.5 millj. kr.),
söltuð hrogn fyrir 4.9 millj. kr. (árið áður 5.3 millj.
kr.), niðursoðinn fiskur fyrir 2.6 millj. kr. (árið áður
(79)