Barnadagurinn - 19.04.1934, Page 5

Barnadagurinn - 19.04.1934, Page 5
BARNADAGURINN 1934. 5 r Avarp frá Steíngrími Arasyní. Barnadagurinn guðar nú á glugga þinn, Reykvíkingur. Hann vill „klappa undurþýtt, eins og barn á vanga“, höfuðstaðarbúa, — 60 þúsund vanga, — til þess að minna á málefni hinna ungu og ósjálfbjarga, þeirra, sem jafnvel eru ómálga eða ófæddir. Skygnumst um í heimi þeirra. Mörg þúsund hrein og saklaus barnsaugu stara á okkur. Heill her af spurning- armerkjum. — Hver drenglyndur maður verður að svara spurningum reykvíkskrar æsku, þær eru skýrar, einfaldar og ákveðnar: „Eigum við að fá að njóta gjafa Guðs með ykkur hin- um? Fáum við dálítið af sólskininu, græna graslendinu og hreina loftinu, sem landið okkar er svo auðugt af ? Eða á að setja okkur hjá? Eigum við að vera dæmd til að lifa æsku- lífi okkar á óhreinni, þröngri, fjölfarinni borgargötu, þar sem lífi, heilsu, siðgæði og menningu er búinn sífeldur voði?“ Það getur oft oltið á smámunum einum, hvort barn verður hraust eða heilsulaust alla æfi. Fjölmörg börn í Reykjavík eru á takmörkunum milli þess að vera heil og vanheil. Sum eru sjúk, án þess að nokkurn gruni það. Hinir feitu og fölu vangar eru sjúkdómseinkenni. Ekkert barn sem þannig lítur út, er heilbrigt, jafnvel þó að það hvorki kvarti né finni til. Mjög oft er orsökin skortur á hreinu lofti, sólskini og fjörefnaríkri fæðu. Fárra mánaða eldi í hreinu lofti, sójböðum og glöðum æskuleikjum á grær.u túni, getur bjargað barni frá því að verða vesalingur sér og öðrum til æfilangs böls og byrði. Er ekki nokkuð í söl- urnar leggjandi. Borgar það sig ekki, að fórna góðum húsa- kynnum á grænu túni með leiktækjum og þar að auki nokk- urri fjárupphæð, til þess að tryggja bórnunum þá aðbúð, sem leggi grundvöll að heilsu og siðgæði nýrrar kynslóðar? Bamavinafélagið Sumargjöf hefir starfað að velferðarmálum barna þau tíu ár, sem liðin eru frá stofnun þess. Margt hefir það á stefnuskrá sinni, sem lítið eða ekki hefir enn verið sinnt. Stafar það einkum af féskorti. Félagið leitar ekki á náðir bæjarbúa nema á einum hinna 365 daga ársins, þ. e. sumardaginn fyrsta. Þann dag óskar félagið að mega helga börnunum einum. Það er ekki nema einn barnadagur á ári, þá hefir enginn opinbera f jár- söfnun nema Sumargjöf. Hver góður drengur sýnir þá samúð og skilning að láta börnin fá að eiga þann dag ein óskiftan. Sumardagurinn fyrsti. Barnavinafélagið hefir gert sumardaginn fyrsta að há- tíðisdegi höfuðstaðarins. Aður en félagið var stofnað, gerðu margir sér þá engan dagamun. Nú hefir hinn æfa- gamli og þjóðlegi siður verið tekinn upp aftur, að fagna sumri með viðhöfn og hátíðabrag, svo sem mest má verða. Líf og starf félagsins er undir því komið, að það verði fengsælt þennan eina dag ársins, því að það fær engan op- inberan styrk, en verður að gefa nálega helming bama Framh. á síðu 6. i börnin nægilegt vítamín? V ítamín-mj örlíki Olívenerað smjörlíki tekur fram öllu öðru til steikingar. Það er næst smjöri í allar kökur. Blái borðinn er bragðbetri en ann- að smjörlíki; það viðurkenna allir. Blái borðinn er hreint jurta-smjör- líki, í honum er engin dýrafeiti. Það eru beztu meðmælin. Eru börnin yðar hraust og útlits- góð? Fá þau nægilegt vítamín?

x

Barnadagurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.