Barnadagurinn - 19.04.1934, Side 9
BARNADÁGURINN 1934.
y
Hækkandi sól.
íslendingarnir, sem bera merki þjóðar vorrar, þegar við, sem
nú erum af bernskuskeiði hnígum til moldar. Hversu þeim
farnast, hversu þeir bera merki okkar kæra íslands, hvaða
sigra þeir vinna og hve glæsilega, fer eftir því hvaða rækt
við leggjum við að duga þeim til heilbrigðs vaxtar og
þroska. En hér í höfuðstað lands vors eru uppvaxtarskil-
yrði barna mjög slæm. Börnin vantar holl og örfandi starfs-
skilyrði. Æskan, framtíð Reykjavíkur, hrópar hástöfum á
hvern einasta Reykvíking, og hróp hennar eru eins og
töfrasprotar, sem vekja göfugmennið, hugsjónahetjuna og
framkvæmdakappann í hverjum höfuðstaðarbúa, og allir
hrífast með af fögnuði og ákafa barnanna. Þeir vilja hjálpa
til að bæta vaxtarskilyrði hinna uppvaxandi Reykvíkinga. 1
dag sameinast allir um hag og velgengni hins þarfa og göf-
uga fyrirtækis „Barnavinafélagið Sumargjöfin“. En það er
þó ekki nóg, því að þótt „Sumargjöfin“ vinni þarft og gott
starf, þá megnar hún ekki nógu. Æskuna í Reykjavík vant-
ar holl útiverkefni, hana vantar rúmgóða útileikvelli, hana
vantar útisundstað við sjó, hana vantar garða, þar sem
hún getur unnið að hollri vinnu milli þess, sem hún herðir
og æfir líkamskraftana við útiíþróttir, hana vantar skauta-
svæði og skíðabrekkur fyrir vetraríþróttir nálægt bænum,
þar sem væri skýli eða afdrep til að hvílast og hressa sig
milli leikjanna.
En æskuna vantar líka mjög tilfinnanlega vinnustöð,
þar sem börnin geta fengið að læra alla algenga vinnu, og
þar sem væri skýli eða afdrep til að hvílast í og hressa sig
barnanna. Þar sem börnin geta varið tímanum við hollt
starf við sitt hæfi, í stað þess að ganga iðjulaus og slæp-
ast um götur og torg, læra að sóa tímanum, eða annað
verra, sem af iðjuleysi hlýzt.
Allt þetta og ótal margt fleira þarf að gera fyrir æsk-
una, og allt þetta þarf að verða sérstakt áhugamál allra
Reykvíkinga. Það eru heimtaðir nýir, góðir og hollir skól-
ar fyrir börnin, og það er sjálfsagt og höfuðnauðsyn. Og nú
hvíla þungar skyldur á foráðamönnum bæjarins að byggja
nýja barnaskóla fyrir úthverfi bæjarins og vesturbæinn, og
það verður að vera krafa allra sannra höfuðstaðarbúa, að
skólarnir verði reistir og það fljótt og vel. En skólarnir eru
ekki allt. Æskan er allt. Hún er starf okkar og metnaður,
og vöxtur hennar og þroski eru minnisvarðar okkar hinna
eldri.
Reykvíkingar! Börnin elska hina hækkandi sól og
vaxandi dag. Farið að dæmi barnanna.
Bömin eru hinar hækkandi sólir mannlífisns og vax-
andi dagur þess.
Unnið þessum vexti með því að vinna fyrir hann, bæta
kjör hans, skapa honum holl vaxtarskilyrði.
Tökum höndum saman og vinnum fyrir æskuna!
Jón Sigurðsson
yfirkennari.
Styðjið starfsemi Sumargjafarinnar!
Sækið skemmtanir barnadagsins!
Kaupið merki dagsins!
Pelar, púður.
Barnasápur,
svampar.
ávalt fyrirliggjanði í miklu úrvali.
Lyfjabúðin Iðunn.
Laugaveg 40.
Timburverzlunin
Völundur h.f.
Simi 1431
Reykjavík.
Býður góð tímburkaup. Hvergi betra timbur. Hvergi betra verð
Hvergi meira úrval.
Selur allar venjuiegar tegundir af furu, oregonpine-Teak, Kross-
spón, saum. Þakpappa og I n s u i t e veggplötur.
Smiðar glugga, hurðir og lísta úr furu, oregonpine og teak.
Kaupið vandað efni og vinnu.
Það margborgar sig.
TRYGGIR YÐUR
ÆTÍÐ ÞAÐ BEZTA
mi
• BENSIN
■ BRENSLUOLÍUR OG
SMURNINGSOLÍUR