Barnadagurinn - 19.04.1934, Síða 12

Barnadagurinn - 19.04.1934, Síða 12
JBÁMÁDÁÖtÍRlNN 1934. Í2 IÐNO. elsta og víðkunnasta samkvæmis- og skemtihúsið. Gerið jafnan pantanir yðar með góð- um íyrirvara. Skrifstofutími hvern virkan dag kl. 4—6 síðd. — Sími hússins er: 2350 Við leiksýningar góðar veitingar uppi, í leikhléunum. Sælgæti og ávextir niðri. ÆT S JAFNARSÁPA. t SJAFNAR-sápnm ern einnngis hreln og úblðnduð oliuefni. Notið eingöngu SJAFNAR-sápur, þær erú innlend framleiðsla sem stendur fyllilega Jafnfætis bestu erlendum sáputegundum. Hvert stykki sem selt er af SJAFNAR-sápum, sparar þjúðinni erlendan gjaid- eyri og eykur atvinnuna í landinu. Það ,er þegar viðurkennt, að SJAFNAR-sápan er bæði ódýr og drjúg SJAFNAR-handsápur gera húðina mjúka og eru tilbúnir fyrir hið viðkvæmast* hðrund. Hver hyggin húsmóðir, sem vill fá hreinar og blæfailegan þvott, notar eingðngn SJAFNAR-þvottasápa Sápuverksmiðjan Sjöfn. Rafhlöður. Ending rafhlaðanna byggist alveg á meðferð þeirra og réttri hleðsluaðferð. Slíkrar varúðar er sjerstaklega gætt á hleðslu- stöð okkar við Óðinsgötu 25. Bræðurnir Ormsson. Simar 1467 og 4887. Reykjavík. Pósthólt 867. Líf try gging arf j elagið ANDVAKA Býður hagkvæmar barnatryggingar —. Spyrjist fyrir á skrif- stofu fjelagsins. — Lækjartoigi 1 Sími4250 framhald þjóðarínnar. Bömin eru framhald þjóSarinnar. Það er vel, að sú venja komist á, að sumardagurinn fyrsti sé helgaður börnunum. Þau eru sá nýi gróandi, sem tekur við af vetri ellinnar og hrörnunarinnar. Kynslóða- skiftin eru eins og áraskiftin. Og kynslóðin, sem ýmist finnur haustið nálgast, eða veit að veturinn hlýtur að koma, óskar einskis fremur en að sumar þeirrar jurtar, sem þá á að spretta úr grasi, verði gott. Hún vill gera hvorttveggja, að gera þeirri jurt góðan jarðveg og biðja forsjónina og guð um að gefa henni góða veðráttu. Jarðveginn getur hún ráðið við, en hitt ekki. Og jarðveginn reynir hún að undirbúa. Við þekkjum þraut- seigju og natni góðra húsmæðra við kálgarðinn sinn. Við þekkjum hvernig þær reita arfann. En samt getur starfið orðið árangurslítið. Veðráttan getur spillt öllu — en þó spillir hún aldrei eins miklu þar, sem arfinn er enginn. — — öllum er annara um börnin sín, en nokkra jurt í garðinum. Og öllum þjóðum er — eða, í það minnsta á að vera, betur umhugað um börnin sín — hina næstu kyn- slóð — en nokkuð annað, sem þeim hefir verið gefið til að hugsa um, af því sem þeim er umhugað þessa lífs. En þó merkilegt megi virðast, eru einstaklingarnir ekki á eitt sáttir um þetta atriði, — þegar þeir koma margir saman. Alþingi gefur út jarðræktarlög, farmennskulög og ótal önnur lög, sem öll fjalla um hagsmuni lýðsins, þegar hann er farinn að lifa sem sjálfstætt og uppkomið fólk. En sé leitað til rótanna, þá verða fyrir leitandanum ákaf- lega fá fyrirmæli um, hvernig þjóðfélagið eigi að fara að því, að ala upp fólk, sem sé vaxið því, að kunna að not- færa sér alla spekina í atvinnulöggjöfinni — og allri lög- gjöf yfirleitt. „Á skal að ósi stemma“ — og allt það, sem almenn- ingsvald gerir til þjóðfélagsumbóta, ætti að gerast þannig, að munuð sé þessi litla setning. Því aS öll þjóSfélagsumbót sprettur upp af góSu bamauppeldi og umhyggjunni fyrir því, að þeir hæfileikar, sem búa í hverri nýrri borgarasál, fyrirfarist ekki, eða skaddist ekki á árunum sem líða þang- að til, að hann er orðinn sjálfs síns ráðandi, sem kallað er. Það eru ekki dægurþrasið og illindin, sem gera þjóð- ina mikla. Það eru bömin, sem gera það. Það eru ekki stjórnmálaafrek einstakra manna, sem gera þjóðina mikla. Það eru bömin. Því að enginn lifir nema sína æfi, — og hún er skömm. — En listin er löng! Listin að lifa. Listin sú, að verða þjóð. öll sönn menning er ekki sprottin af átaki einstakra manna eða einstakrar kynslóðar. Hún er sprottin af þeirri heilbrigðu erfikenningu, að ala upp hraust böm, sem beri ávallt beztu einkenni þjóðarinnar fram á við, svo sterk, að þau tortímist ekki, þó gefi á bátinn. Það eru svona börn, sem geta gert smáþjóðina ís- lenzku að stórþjóð. Og að því miðar sú starfsemi, sem hefir helgað sér sumardaginn fyrsta. Skúli Skúlason.

x

Barnadagurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.