Barnadagurinn - 19.04.1934, Page 13
BARNADAGURINN 1934.
13
Hlutskífti veíkíaðra barna.
Málefni veiklaðra skólabama hefir til
þessa dags, verið algerlega vanrækt af
hálfu hins opinbera.
Samkvæmt skýrslum skólalæknanna hér í Reykjavík
munu vera nálægt 150 börn á skólaskyldualdri, er sakir
heilsubrests eSa ýmiskonar kvilla fá ekki notið skólavistar.
mánuði, eða þolir ekki skólavist fyrst um sinn o. s. frv.
Börn þessi eru innrituð í skólana að hausti, og er frá
líður, kemur í Ijós, að þau þola ekki skólasetu, eða þá
vinnu, sem skólinn krefst af barninu, og eðlilega er miðuð
við starfsgetu hinna hraustu barna. Börn þessi eru tekin úr
skóla á ýmsum tímum skólaársins að ráði skólalæknis, eða
samkvæmt fyrirmælum þess læknis, er stundað hefir barnið
í veikindum þess. Börnin hverfa heim úr skólanum með
vottorð læknisins í hönd: Má ekki sækja skóla næstu tvo
mánuði, eða þolir ekki skólavist fyrst um sinn o. s. frv.
Bak við þessa fáorðu kveðju, er læknirinn, vegna heil-
brigðismálanna í landinu, sendir heim á heimili veiklaða
barnsins, er lengra mál, þótt óritað sé: Hið opinbera starf-
rækir stofnanir frá 8—14 ára. Þessar stofnanir eru hinir
almennu barnaskólar ríkisins. Þeim er ætlað að greiða götu
barnanna til aukinnar menningar og hreysti. 1 þessu skyni
er árlega varið 120,00—160.00 kr. frá ríkis- og bæjarfé-
lögum (í Reykjavík um 160.00 kr.), til hvers barns, er í
skóla gengur. En skilyrðið frá hálfu hins opinbera til þess
að barnið fái notið þessa framlags er, að bai-nið sé hraust
og geti sótt skólann.
Ef barnið hefir ekki þrek eða heilsu til að færa sér
í nyt þá fræðslu, er hinum hraustu börnum er í té látin, þá
er ekkert hægt fyrir það að gera.
Þannig hljóðar hin kalda kveðja, er þúsund ára sið-
menningarríkið sendir hinum litlu, veikluðu þegnum sín-
um, þrátt fyrir hinar gullvægu yfirlýsingar, að lög og regl-
ur séu fyrst og fremst ætlaðar til að vernda rétt lítilmagn-
ans í landinu.
Hvert liggur svo leið hinna veikluðu skólabarna, og
hver er aðbúð þeirra þann tíma, er þau geta ekki sótt
skóla? Eðlilega heim á heimili barnsins. En sé svo skygnst
eftir því, hver skilyrði þessi heimili hafa að bjóða hinu
veiklaða barni, kemur í Ijós, að það er í langflestum til-
fellum fátækustu heimilin í bænum, sem fátt eða ekkert
geta látið þessum börnum í té af þeim lífsskilyrðum, er þau
þarfnast, öllum öðrum fremur.
En rökin, sem hér að lúta eru auðfundin, því eðlilega
sækja barnasjúkdómarnir heim, fyrst og fremst þau heim-
ili, þar sem örbirgð og skorturinn er fyrir.
Hér eru skilyrðislaust brotin lög á veikl-
uðuin skólabörnum.
Eins og fyr er sagt, nemur kostnaður af rekstri barna-
skólanna n.I. 160.00 kr. á hverju ári, á hvert barn hér í
Reykjavík.
Nú má það vera öllum ljóst, af því, sem að framan
er sagt, að hin veikluðu börn njóta ekki þessa framlags og
er það því sama og þeim sé ekki greitt það.
Ríkið hefir hinsvegar viðurkennt réttarkröfur allra
barna til almennrar fræðslu með fræðslulögunum frá 1907,
og hefir tekið á sig gjaldabyrði til framkvæmda þeirra
laga. Frh. á síðu 14.
7~r
Hvannbergsbræður.
Verzlunin Björn Kristjánsson
Jón Björnsson & Co.
V OR-vörurnar
eru KOMNAR
Fleiri vörur væntanleg-
ar með næstu skipum.
mm
Bökunardropar
Hdrvötn
Ilmvötn
Eínagerð
Áfengisverslunar ríkisins.
<o><oKKo><<Ko><o><o><<2