Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Blaðsíða 18
78 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 Sport DV líkilífiö vel hjá Watford og að það sé honum Sp"mála5 » 4 j &T mÆmmj félag. ÚRVALSDE ENGLAND Urslit: Norwich-Liverpool 1-2 0-1 Luis Garcia (58.1,0-2 John Arne Riise (64.), 1 -2 Rvan Jarvis (88 V Blackburn-Charlton 1-0 1-0 Brett Emerton (41.). Crystal Palace-Aston Villa 2-0 1-0 Andy Johnson (33.!, 2-0 Andy Johnson, víti (66.). Chelsea 21 Staðan 16 4 1 41-8 52 Arsenal 21 14 5 2 51-23 47 Man. Utd, 21 12 7 2 33-13 43 Everton 21 12 4 5 25-22 40 Liverpool 22 11 4 7 36-22 37 M Boro 21 10 5 6 34-26 35 Spurs 21 9 5 7 29-21 32 Charlton 22 g 4 9 24-32 31 A. Villa 22 7 7 8 23-26 28 Man. City 21 7 6 8 26-22 27 Portsm. 21 7 6 8 25-28 27 Birmingh. 21 6 S 7 24-23 26 Newcast. 21 6 7 S 33-39 25 Bolton 21 6 ó 9 27-30 24 Blackburn 22 4 10 S 20-33 22 Fulham 21 Ó 3 12 25-36 21 C. Palace 22 4 ó 12 23-34 18 Norwich 22 éí 1010 19-39 16 Soton 21 2 8 11 19-34 14 WBA 21 1 9 11 17-43 12 Markahæstir: Thierry Henry, Arsenal Andrew Johnson, Crystal Palace Robert Pires. Arsenal Jermain Defoe, Tottenham Andy Cole. Fulham Milan Baros, Liverpool Jimmv Floyd Hasselbaink, M Boro Robbie Keane. Tottenham Eiður Smari Gudjohnsen, Chelsea Craig Bellamy, Nevvcastle Paul Scholes, Man. Utd Aivegbieni Yakubu, Portsmouth Paul Dickov, Blackburn Nicolas Anelka, Man. Citv Jose Antonio Reyes, Arsenal Henrik Pedersen, Bolton Kevin Davies, Boiton Damien Duff. Chelsea Emile Heskey-Birmingham Shauri Wright-Phillips, Man. City Fredrik Ljungberg, Arsenal Jaliesky Garcia, stórskytta úr Göppingen, er ekki meö íslenska landsliðinu sem kom saman í Svíþjóð í gær til að spila tvo vináttuleiki gegn heimamönnum á mið- vikudag og fimmtudag. Garcia missti föður sinn um jólin og fór heim til Kúbu til að vera viðstaddur jarðarförina. Ekkert hefur heyrst frá honum síðan. Garcia ekki með á HIUI? „Við gefum honum nokkra daga til að hafa samband við okkur og þá sjáum við hvað hann vill gera. Þetta er mikið áfall fyrir hann og það gæti far- ið svo að hann treysti sér ekki í verkefnið," sagði Viggó Sig- urðsson landsliðsþjálfari í samtali við DV Sport í gær, að- spurður um stöðuna í máli Jaliesky Garcia, aðalskyttu ís- lenska liðsins. Garcia fékk þau hörmulegu tíð- indi á öðrum degi jóla að faðir hans hefði fallið frá og fór hann strax til Kúbu til að vera viðstaddur jarðar- förina. Hvorki Viggó né nokkur ann- ar innan HSÍ hefur heyrt í Garcia síðan þá og til að hafa allan varan á var Vilhjálmur Halldórsson, skytta úr Val, valinn í hópinn sem fór til Svíþjóðar í hans stað. „Ég er að vona að við náum sam- bandi við hann í dag og þá ættu mál- in að skýrast," segir Viggó. Aðspurð- ur um hvort hann væri farinn að undirbúa það að Garcia yrði jafnvel ekki með á HM í Túnis yfirhöfuð svaraði Viggó: „Þess vegna tek ég Vil- hjálm með núna." Verður góð æfing Að undanskildum Garcia kom allt íslenska landsliðið sem taka mun þátt á HM saman í Svíþjóð í gær í fyrsta sinn. Framundan eru tveir leikir gegn heimamönnum sem einmitt báru sigur á heimsbikarmót- inu í Svíþjóð í nóvember og eru með firnasterkt lið um þessar mundir. „Ég veit ekki betur en þeir hafi úr fullskipuðum hópi að velja og þetta verður mjög góð æfing fyrir okkur. Það er fín stemning í hópnum og ég mun halda áfram að byggja á því „Við erum einungis með tvo miðjumenn í hópnum en erum vel mannaðir hægra megin. Ég ætla alla- vega að skoða Ólafí þeirri stöðu." f kröppum dansi Jaliesky Garcia Padron sést hérí kröppum dansi á EM fyrir ári slðan. Óvissa er með þáttöku hans á HM i Túnis þar sem hann er staddur áKúbu þessa dagana með fjölskyldu sinni en faðir hans féll frá um jólin. sem við byrjuðum á í heimsbikar- mótinu. Við þurfum að laga og bæta atriði á öllum vígstöðvum; vöm, sókn og markvörslu og það verður ekki lögð áhersla á neinn sérstakan þátt,“ segir Viggó, sem getur nú nýtt sér krafta Ólafs Stefánssonar í fyrsta sinn frá því að hann tók við liðinu. Ólafur á miðjuna Ólafur á reyndar við smávægileg meiðsli að stríða í baki og er óvíst hvort hann verður orðinn leikfær fyrir leikina gegn Svíum. „Ólafur er náttúrulega frábær leikmaður og mun ekki eiga í erfiðleikum með að koma inn í liðið," segir Viggó og bætir við að hann hafi hugsað sér að nota Ólaf talsvert í stöðu miðju- manns. „Við erum einungis með tvo miðjumenn í hópnum en erum vel mannaðir hægra megin. Ég ætla allavega að skoða hann í þeirri stöðu,“ segir Viggó. Eftir leikina gegn Svíum fer ís- lenska liðið til Spánar og tekur þátt í Qögurra liða móti dagana 14.-16. janúar. Þar verða mótherjamir lið Spánar, Frakklands og Egyptalands. Heimsmeistaramótið sjálft hefst síð- an sunnudaginn 23. janúar og munu íslendingar mæta Tékkum í sínum fyrsta leik á mótinu. vignimdv.is Framtíðin óljós hjá knattspyrnumanninum Tryggva Guðmundssyni Spilar hugsanlega á fslandi í sumar Það er algerlega óljóst hvar knatt- spyrnumaðurinn Tryggvi Guð- mundsson mun spila á komandi tímabili. Tryggvi er samningsbundinn sænska úrvalsdeildarliðinu Örgryte næstu tvö árin en eftir að hann lenti upp á kant við þjálfara liðsins undir lok síðasta tímabils virðast honum allar bjargir bannaðcir hjá félaginu. Tryggvi lét hafa eftir sér að þjálfunaraðferðir finnska þjálfarans sem stýrði Örgryte í fyrra væm ekki upp á marga fiska og það fór fyrir brjóstið á þjálfaranum og stjórn félagsins. Finnski þjálfarinn var látinn fara fyrir skömmu en þrátt fyrir það h'till áhugi hjá sænska að halda Tryggva. „Forráðamenn félagsins em enn fúlir út í mig en ég ætla að ræða við nýja þjálfarann á næstu dögum og sjá hvort hann telur sig hafa not fyrir mig. Hlutimir ganga reyndar frekar hægt fyrir sig í Svíþjóð þannig að ég veit ekki hversu langan tíma það tekur fyrir mig að ná fundi með honum. Annars skil ég ekki alveg hvað forráðamenn félagsins em að hugsa. Þeir vilja fyrir alla muni losna við mig en samt vilja þeir fá pening fyrir mig. Ég er auðvitað enn á samningi þannig að ég er alveg rólegur," sagði Tryggvi. Aðspurður sagðist Tryggvi alls ekki hafa útilokað að spila heima á íslandi á komandi tímabili. „Því er ekki að neita að ég er orðinn spenntur fýrir því að koma heim og spila. Það hafa nokkur félög hér heima haft samband við mig en ég get engin svör gefið fyrr en ég veit hvað verður í Svlþjóð," sagði Tryggvi. DV hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að íslandsmeistarar FH hafi mikinn áhuga á því að Tryggva í sínar raðir til að leysa Emil Hallffeðsson af hólmi á vinstri kantinum. Emil gekk nýverið til liðs við Tottenham en eins og einn FH- ingur orðaði það við blaðamann: „Ef við fáum Tryggva þá erum við orðnir klárir fyrir sumarið.“ oskar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.