Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2005, Qupperneq 27
DV Kvikmyndahús
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 27
htbiWOGinn
Nýársmyndin 2005
NtCOLAS CAfit
Sýnd kl. 5, 7.30 ÖTlO
rfuiiHHllnm
www.sambioin.is
www.laugarasbio.is
All\ fltUl vii> ll.vll VlOlt
Vluilijlcg.1 liimninl iim.i
□□ Doiby /ddj
SEsS
SfMI: 551 9000 www.regnboginn.is
MBL *** Algjört augnayndi!
FBL Hressir ræningjar!
Kvikmyndir.com ***
OCEAN’S TWELVE
Ein stærsta opnun frá upphafi
i des í USA.
Sýnd kl. 7.30 og 10.15
Sýnd kl. 5 m/íslensku tali
Sýnd kl. 5, 7.30 & 10 m/ensku tali
Sýnd kl. 6, 8
kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16
Sýnd kl. 8 og 10
cSýnd kl. 8
kl. 4, og 6 m/ísl. tal
b.i. 16
Hver man ekki eftir Rebeccu Loos? Hún er komin aftur og segir í nýju blaðaviðtali
að hún hafi það frá fyrstu hendi að Victoria Beckham hafi ekki sjaldnar en þrisvar
farið í brjóstaaðgerðir.
Rebecca sendlr Iflctoriu tóninn
Ekki er langt síðan Rebecca Loos,
fyrrverandi aðstoðarkona fótbolta-
kappans Davids Beckham, kom
fram með sögur um ástarævintýri
sitt með kappanum. Fékk hún væn-
ar fúlgur fyrir og duldist það engum
að hún ædaði að fá sem mest úr
þeim aðstæðum enda blóðmjólkaði
hún sínar 15 mínútur af frægð
hvernig sem hún gat. Nú er hún aft-
ur komin á kreik, í nýju blaðaviðtali
þar sem hún segir ýmislegt misjafnt
um þau Beckham-hjónin.
Hún var aldrei ánægð,
fyrst voru þau ofstór
og svo oflítil. En nú er
hún sátt.
Var aldrei ánægð
„Þau eru ekki ekta og það sagði
hún mér sjálf,“ segir Rebecca í téðu
viðtali þegar tahð berst að barmi
Victoriu, eiginkonu Davids. „Hún
sagði að hún hefði farið í þtjár að-
gerðir. Hún var aldrei ánægð, fyrst
voru þau of stór og svo of lítil. En nú
er hún sátt."
Og það er stiklað á stóru í viðtal-
inu. Aðspurð segir Loos, sem segist
tvíkynhneigð, að hún sé ekki lengur
hrifin af David og að henni þyki
Victoria alls ekki kynþokkafuU. Hún
myndi ekki hoppa í rúmið með þeim
þótt tækifæri gæfist. „Ég hrífst núna
af mönnum sem eru með betri gildi
og siðferði en David,“ segir Rebecca
sem er greinilega með sín mál á
hreinu. Hún bætir því við að það
hafi ekki komið henni á óvart að
fleiri konur en hún hefðu komið
fram með sögur um ástarævintýri
Rebecca Loos Aðspurö segir Loos, sem
segist tvíkynhneigð, aðhúnsé ekki ieng-
ur hrifín afDavid og að henni þyki Vict-
oria alls ekki kynþokkafull.
með fótboltagoðinu og að hún hefði
sitt hvað að segja við Victoriu gæfist
tækifæri til.
Veðbankar segja skilnað lík-
legan
Veðbankar í Bretlandi eru þekktir
fyrir alls kyns veðmál og er einn
flokkurinn hjónabönd fræga fólks-
ins - og hversu líklegt er að til
skilnaðar komi. Fyrir ári töldu veð-
bankar Beckham-hjónin í góðum
málum og sögðu líkurnar á skilnaði
1 á móti 25 - sem þykja ekki miklar
líkur. Þær hafa nú snarhækkað í 1/4.
Þess má til gamans geta að það eru
þó tvöfalt meiri líkur en leikarahjón-
in Brad Pitt og Jennifer Aniston fá
hjá sama veðbanka.
Victoria og David Beckham hafa
þó alltaf staðfasdega neitað sögu-
sögnunum um misbresti í hjóna-
bandi þeirra og hafa reynt allt sem
þau geta til að afsanna þær. Það hef-
ur þó gengið misjafnlega og nú síð-
ast fóru þær sögur á kreik að David
hefði fagnað nýju ári án fjölskyld-
unnar. Breska pressan heldur
greinilega niðri í sér andanum en
miðað við staðfestu hjónanna
Victoria Beckham Victoria og David Beck-
ham hafa staðfastlega neitað sögusögnun-
um um misbresti I hjónabandi þeirta og hafa
reynt allt sem þau geta til að afsanna þær.
hingað til er aldrei að vita
hvenær tíðinda er að vænta. Victoria
gengur nú með þriðja barn þeirra og
miðað við það er ef til vUl ekki lfkiegt
að skilnaður sé á næsta leyti. Barnið
er væntanlegt í heiminn í mars.
Sharon
ösátt við
nagranna
Sharon Os-
bourne ku vera
hundóánægð
með nýja ná-
grannann sinn
og samlanda,
Simon Cowell.
Sá keypti nýver-
ið lúxusvillu í
Hollywood, við
sömu götu og
Osbourne fjölskyldan býr. Og nú
er svo komið að Sharon viU frekar
flytja en að eiga á hættu að rekast
á CoweU á gangi um hverfið. Þau
unnu saman nýverið í þáttunum
X-Factor, sem svipar tU Idol-
keppninnar, þar sem þau voru
bæði í dómarahlutverkum. Þau
rifust oft harkalega í þættinum og
herma sögusagnir að þau hafi ekki
ræðst við eftir lokaþáttinn í haust.
Það er greinUegt að Sharon stefnir
ekki á að endurnýja þau kynni.
Elskar lík-
amasinn
Leikkonan Scarlett Johansson
segist aUtaf hafa verið ánægð
með údit sitt
og því sé hún
talin svo kyn-
þokkafuU.
Leikkonan
segir mikU-
vægt að ung-
ar konur
skoði sjálfar
sig áður en
þær herma
eftir öðrum. „Ef þú ert ánægð
með þig þá ertu sexí. Ég er ánægð
með andlitið á mér og í rauninni
aUan lfkamann." Scarlett sagðist
ennfremur vera ótrúlega ánægð
með brjóstin á sér. „Þau eru það
kvenlegasta við mig og ég er stolt
af þeim.“
Hótar að bera vitni fái hún ekki milljón dollara
Debbie Rowe
er víst alveg
bálreið út í
fyrrverandi
eiginmann
sinn og
barns-
föður,
Michael
Michael Jackson Vitnisburður fyrr-
verandi eiginkonunnar gseti fellt hann.
Jackson. Ástæðan er sú að Jackson
hefur ekki greitt henni meðlag eins
og vera ber. Debbie er ekki af baki
dottin og viU gera aUt tU að fá pen-
ingana - hún hefur fyrir látið
Jackson eftir bömin þeirra tvö. Nú
segist Debbie ekki sjá annan leik í
stöðunni en að bera vitni gegn
Jackson en eins og flestum ætti að
vera kunnugt bíða söngvarans erfið
réttarhöld.
Jackson hef-
ur verið ákærð-
ur fyrir kynferðislega misnotkun
gegn krabbameinssjúkum dreng.
Debbie segist hafa ýmislegt tU mál-
anna að leggja enda viti hún sitthvað
um heimilishaldið á Neverland-bú-
garði söngvarans en þar átti hin
meinta kynferðismisnotkun sér
stað. Upphæðin sem Debbie fer
fram á tU framtíðar nemur einni
miUjón dala á ári hverju. Aukinheld-
ur hefur hún hug á að berjast fyrir
forræði barnanna, Prince Michaels,
7 ára, og Parisar, 6 ára. „Hún hefur
geflð í skyn í samtah við Tom
Sneddon ríkissaksóknara að hún sé
reiðubúin að bera vitni í málinu.
Vitnisburður hennar gæti orðið al-
gjör sprengja í málinu. Jackson veit
augljóslega ekki hvers er að vænta úr
þessari átt,“ segir kunningi Debbie
Rowe.
Debbie Rowe er bálreið út í fyrrverandi eiginmann sinn Michael Jackson