Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 3
„Já, ég man sko eftir þessu. Á þessum tíma þótti voða merkilegt
að heil fjölskylda þyrfti að nota gleraugu," segir Jón Holbergsson,
verkamaður í Hafnarfirði, um myndina hér fyrir ofan. Þar sést Jón
árið 1980 ásamt fjölskyldu sinni, sem á þessum tíma átti heima í
Grindavík en býr nú í Hafnarfirði, á biðstofu augnlæknis. Eigin-
kona Jóns, Sigurborg Pétursdóttir, heldur áfram með söguna:
„Við vorum að fara með bömin okkar til augnlæknis þegar við
hittum blaðamann. Hontun fannst áhugavert að við værum öll
með gleraugu og lét taka þessa mynd af okkur. Greinin hans fjall-
aði svo eitthvað um kostnaðinn við gleraugnanotkun sem getur jú
verið ansi hár.“
Sigurborg segir að það hefði kannski verið betra ef
blaðamaðurinn hefði hitt þau ári síðar.
„Þá fyrst varð kostnaðurinn ansi hár. Yngsti sonur okkar sem er
líka á myndinni er þroskaheftur og það gekk erfiðlega að láta gler-
augun tolla á honum. Þau fór ansi mörg þetta ár. Svo varð stelpan
líka fyrir smá einelti í skólanum, drengimir áttu það til að rífa af
henni húfuna og þá fóm gleraugun oft með.“
Sigurborg segir að á þessum tíma hafi hún bara notað lesgler-
augu en í dag þurfi hún að ganga með gleraugu allan daginn.
„Þetta var mikil útgerð á sínum tíma að eiga þrjú böm sem öll
notuðu gleraugu. Elsti sonurinn, sem er ekki á lífi í dag, var reyndar
ekki með á myndinni en hann var líka með gleraugu,“ segir Sigur-
borg en tekur fram að aðeins eitt bamabamanna noti gleraugu í dag.
Spurning dagsins
Hvað ætlarðu að léttast um mörg kíló?
Er byrjaður að æfa
„Ég ætla mér að taka fjögur kíló og er
harðákveðlnn Iþví. Ég á líkamsræktar-
kort og er eitthvað byrjaður að sprikla nú
þegar. Ég hefnú verið að æfa áður
þannig að þetta er ekkert nýtt."
Jón Norðfjörð verslunar-
stjóri.
„Égernúað
byrja að æfa
og ætli ég taki
nú ekki svona
tíu kíló. Ég hef
nú gert það
áður, ég fór úr
hundrað og
sextán kílóum niður í níutíu og
sex. svo þetta er ekkert nýtt fyrir
mér.“
Sigurjón Valgeir Hafsteins-
son nemi.
„Ég er að fara
að kaupa mér
kort og er að
fara að æfa en
nú ekki i þeim
tilgangi að
létta mig. Ég
ætla að lyfta og
þyngja mig um tæp fímm
kíló.Ég þarfnú ekki á því að
halda, frekar að bæta við vöðv-
um.“
Skúli Aðalsteinsson nemi.
„Ég ernú ekki
búin að kaupa
mérkorten.já,
ég ætla að
taka afmér.
Hvað það
verður veit ég
nú ekki, kannski tíu eða tuttugu
kíló, hver veit? Ég hefsamt áður
verið að æfa því ég var i
kikkboxi en ég léttist ekkert viö
það.“
Candy Loque nemi.
„Ég þarfnú
ekki á því að
halda að losna
við neitt.Ég er í
svo góðum
málum hvað
varðar
aukakílóin og
þar afleiðandi ætla ég mér ekki
að kaupa iíkamsræktarkort."
Róbert Marshall, formaður
Blaðamannafélagsins.
Það er Ijóst að nú leggur stór hluti þjóðarinnar af stað á likams-
ræktarstöðvar landsins og kaupir sér líkamsræktarkort eins og
algengt er eftir át jólanna. Ef einhvern tíma er rétti tíminn til að
skafa af sér aukakílóin, þá er það núna.
Breiðholtið er
fjölmennasta hverfi
Reykjavíkur
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru íbúar Reykjavíkur 112.490
1. desember 2002.
1. Breiðhoit - 21.534 mann
7. Árbær - 8.753 manns
8. Grafarholt - 858 manns
9. Kjalarnes - 742 manns
4. Vesturbær - 16.602
manns
5. Fossvogs- og Bústaðar-
hverfi -13.880 manns
6. Laugarnes- og Vogahvei
-13534 manns
2. Austurbær (Norðurmýri
og Hlíðar) - 18.818 manns
3* Grafarvogur 17557
manns
ÞAÐ ER STAÐREYND
... AÐ ÞAÐ TEK-
UR 15 TIL 20
MÍNÚTUR AÐ
GANGA KRING-
UM BANDA-
RÍSKA VARNAR-
MÁLARÁÐU-
NEYTIÐ,
PENTAGON.
ÞEIR ERU BRÆÐRASYNIR
Landsvirkjunarstjórinn & verkalýðs- og náttúruverndarfrömuðurinn
V Þeir standa sitt hvoru megin eldlínunnari Kdrahnjúkadeilunni, sama hvar bor-
ið er niður, frændurnir Friðrik Klemenz Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar,
og G uðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og einn
helsti baráttumaðurinn gegn byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Friðrik Ktemenz
Sophusson er sonur Sophusar Auðuns Guðmundssonar frá Auöunarstöðum í
Viðidat sem jafnframt er bróðir G unnars Guðmundssonar, föður Guðmundar
verkalýðsleiðtoga. Þrátt fyrir að vera á öndverðum meiöi í virkjanapólitikinni
||t^ailri segja kunnugirað frændkærleikurinn sé aldrei langt undan.
i
Brautarholt 22 • Sími: 551 4003