Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Qupperneq 14
74 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005
Tækni og vísindi DV
Byrjaði sem einmenningshugmynd
Hverman ekki eftir tán-
ingsstráknum sem fann
upp Napster, honum
Shawn Fanning (sjá
mynd). Strákgreyið varð
fyrir barðinu á valdamikl-
um mönnum og var
hreinlega barinn til hlýðni.
Þökk sé tækninni sem
notuð var á Napster varð
til urmull afsvipuðum
forritum og hugbúnaði
sem byggðu á sömu hug-
mynd. Ungur maður að
nafni Bram Cohen ákvað
einn daginn að hætta að
vinna fyrir dauðadæmt
netfyrirtæki og hanna
hugbúnað sem myndi
koma að einhverjum
notum. Hann bjó til
BitTorrent, setti forritið á
heimasíðuna sína (og það er þar enn í
dag) og þar getur fólk nálgast það og
greitt fyrir með frjálsum framlögum.
Samkvæmt mælingum bar BitTorrent
ábyrgð á 35% allrar netumferðar
heimsins og er Coheri almennt talinn
einn mesti netfrömuður síðari ára. Ekki
virðist þó standa til að draga hann fyrir
dómstóia, þar sem hann skrifaði aðeins
hugbúnaðinn, en dreifði sjálfur engu
efni.
Beðið um aðstoð
Rétt fyrir jól fóru stærstu höfundarréttasamtökin í Bandaríkjunum í mál við þá
aðila sem hýstu heimasiður sem geymdu svokallaðar BitTorrent-skrár. Þá var
sú tækni orðin það umsvifamikil að talið var að 35% allrar netnotkunar í heim-
inum mætti rekja til notkunar þeirrar tækni.
Stjórnendur þeirra fyrirtækja,
sem nóta BitTorrent-tæknina á
heimasfðum sínum og hafa verið
lögsótt, hafa brugðist misjafhlega
við. Sumar hafa verið lagðar nið-
ur, endurkoma annarra, þá end-
urbættra, hefur verið boðuð og
enn aðrar ætía í hart. Á einni
þeirra var hrint af stað söfnun til
að afla ijár fyrir lögmannskostn-
aði. Áætíað er að sá kostnaður
verði um 30 þúsund Bandaríkja-
dalir, um 2 milljónir króna, á
mánuði og hefur sú upphæð
safnast nú þegar og gott betur.
Það virðist því sem notendur síð-
unnar séu tilbúnir að berjast fyrir
málstaðnum svo þeir geti haldið
áfram að hala niður efni.
Deilir.is
neifar sök
Ríkislögreglustjóra hafa borist
kærur á hendur 11 einstaklingum
í tengslum við DC-málið svokaU-
aða, en fyrr í haust gerðu yfirvöld
rassíu hjá 12 einstaklingum vegna
gruns um ólöglega dreiflngu efnis
um nokkra íslenska tengipunkta.
Tveir þeirra tilheyra vefsvæðinu
deili.is en samkvæmt tilkynningu
sem birtist á téðri heimasíðu vilja
stjórnendur síðunnar ekki kann-
ast við að neinum í þeirra röðttm
hafi borist kæra. Eftir því sem
næst verður komist eru tengi-
punktar deilis.is enn virkir.
vio BHTorrent
Um miðjan síðasta mánuð tóku
margir af stærstu hagsmunaaðilum
í Hollywood höndum saman og
kærðu eigendur þeirra heimasíðna
sem hýsa svokailaðar BitTorrent-
skrár. Þá mátti rekja þriðjung af allri
netnotkun heimsins til notkunar
þessarar tækni og má gera sterklega
ráð fyrir að aðallega hafi notendur
verið að skiptast á ólöglegum
útgáfum kvikmynda, sjónvarps-
þátta, tónlistar, forrita, leikja og
þannig mætti áfram telja. Þessi
tækni hefur ekki verið áberandi í
umræðunni hér á landi, enda verið
hálfgerður undirheimur netsins þar
sem kvikmyndir ganga manna á
milli án mfidlla vandkvæða.
Símafyrirtækin græða
Ein helsta ástæðan fyrir því að
BitTorrent-tæknin er ekki mikið
notuð hér á landi er sú að notand-
inn verður að gera ráð fyrir að um
erlent niðurhal sé að ræða. Það
kostar sitt og miðað við að hvert er-
Ient megabætí kosti rúmar 2 krónur
má gera ráð fyrir að kvikmyndir í
miklum gæðum kosti íslenska not-
endur um 1500 krónur. Þeir aurar
renna þó ekki til framleiðanda við-
komandi kvikmyndar, heldur ís-
lensks símafyrirtækis sem greiðir
ekki nein stefgjöld eða ígildi þeirra.
Því hafa íslenskir netnotkendur,
sem yfir höfuð vilja nálgast þetta
ólöglega efhi, stólað á íslenskt net-
umhverfi í þessum efnum. Eins og
kunnugt er gerðu íslensk yfirvöld
rassíu hjá meint-
um stjórnend-
um þessara ís-
lensku tengi-
punkta sem
gerðu hinum al-
menna notanda
kleift að. nálgast
efni hjá hver öðr-
um. Því beinist
rannsókn yfir-
valda ekki ein-
ungis að þeim
sem geyma efnið
heidur gera öll-
um kleift að nálg-
ast það hjá hver
öðrum.
BitTorrent-
notendur um all-
an heim urðu
heldur bétur varir
við aðgerðirnar í
síðasta mánuði
og „undirheimur-
inn“ reyndar allur. Hjá öllum vin-
sælustu síðunum var hætt að hýsa
BitTorrent-skrár, sem þýddi að ekki
var lengur hægt að náígast nýjustu
kvikmyndirnar og allt það sem eft-
irsóknarvert hefur talist.
Vandasamt að stöðva nýju
tæknina
Árið 2004 var sérstakt fyrir
BitTorrent. Allt árið jókst fjöldi
notenda stöðugt og varð það einn
allra vinsælasti hugbúnaðurinn á
netinu. Síðari hluta ársins fóru höf-
undarréttarsamtök og lögregluyfir-
völd bæði í Evrópu og Bandarikjun-
um að lögsækja þá sem hýstu
heimasíður með tenglum á ólöglegt
efni og héldu margir að nú yrði
endanlega tekið til hendinni í þess-
um málum.
En hinir óprúttnu eru klókir með
ólíkindum og eru alltaf nokkrum
skrefum á undan yfirvaldinu. Nú
þegar hefur verið tilkynnt um nýja
útfærslu á BitTorrent-tækninni,
sem mun kallast Exeem, og gerir
það að verkum að nánast ómögu-
legt verður að fylgjast með hveijir
bera ábyrgð á dreifingu
efnisins. í gamla kerfinu
voru alltaf nokkrir „miðl-
arar“ efnisins, sem í raun
stjórnuðu umferðinni, ef
svo mætti segja.
í nýja kerfinu, Exeem,
verða allir ineö tölu í
hlutverki miðlara og því
verður með öllu ógerlegt
að fylgjast með hverjir
koma efninu í umferð.
Allir verða jafn ábyrgir og
það er væntanlega mikið
vandaverk að ætía að
lögsækja allan þann
fjölda sem notar BitTor-
rent.
Netið lifir, og mun
alltaf gera. Spuming er
hins vegar, hvemig ætía
þeir sem höfundarrétt-
inn eiga að bregðast við?
Það er ljóst að þessi þró-
un er ekki góð, því á endanum
munu kvikmynda- og sjónvarps-
þáttaframleiðendur ekki láta bjóða
sér þessa meðferð og hreinlega
hætta framleiðslu. Það er væntan-
lega þróun sem enginn er hrifinn af.
En ein tækni tekur við af annarri.
Talsíminn tók við af ritsímanum,
geisladiskar af segulböndum og
mynddiskar (dvd) af myndböndum
(vhs). Netið er bara ein tæknin í við-
bót sem er hluti af daglegri tilveru
og er það til lítils gagns að ætía að
halda aftur af þeirri þróun.
eirikurst@dv.is
Tækni getur verö torskilin þó svo aö forritin og notkun þeirra sé oft einföld
Hvað er BitTorrent?
BitTorrent er hluti af P2P-tækninni, sem
gengur út á að tvær eða fleiri tölvur tengj-
ast saman um einn tengipunkt og deila
með sér tölvuskrám. Sllkar tölvuskrár geta
verið kvikmyndir, sjónvarpsþættir, tónlist,
forrit, tölvuleikir, osfrv. Islendingar þekkja
best til DC++, sem tengir íslenska notend-
ur aðeins við aðra (slenska notendur,en
þannig er hægt að halda niðurhalskostn-
aði I lágmarki. önnur kunn alheimsforrit
eru Kazaa, Napster og eDonkey.
Munurinn á BitTorrent og Kazaa
Kazaa er forrit sem sýnir hvaða notend-
ur eru tengdir við það hverju sinni og
hvaða efni þeir hafa upp á að bjóða. Sem
þýðir að ef notandi vill ná I ákveðna kvik-
mynd verður annar notandi sem á þessa
kvikmynd líka að vera tengdur við forritið
á sömu stundu. Oftast á fleiri en einn not-
andi kvikmyndina, þvf gæti sá sem vill
nálgast hana halað niður mörgum mis-
munandi hlutum af kvikmyndinni frá
mörgum mismunandi notendum en for-
ritið, Kazaa, sér um að útkoman verði ein
heil skrá, s.s. kvikmynd.
BitTorrent er I megindráttum ekki ólíkt
Kazaa. Munurinn er sá að notandinn þarf
ekki að stóla á ákveðna aðila úti (heimi
til að nálgast efnið.Tæknin gengur út á
að notandinn heimsækir mismunandi
vefsfður sem geyma svokallaðar BitTor-
rent-skrár. Þessar skrár eru litlar, eins og
almenn textaskjöl, og geyma upplýsingar
um hvar hægt er að nálgast viðkomandi
efni. Hinn almenni notandi nær (skrána,
opnar sérstakt forrit til að virkja hana og
nær þannig (kvikmyndina. Það tekur
alltaf einhvern t(ma, en tæknin sem slík
er mjög áreiðanleg og fylgst er með því
að efnið sem (boði er sé gott og gilt.
Þess fyrir utan er Kazaa yfirleitt talið
mjög hvimleitt forrit og var nýverið veitt
skammarverðlaun fyrir að vera helsta
orsök njósnunarhugbúnaðar (spyware) á
netinú.
Af hverju er BitTorrent vinsælt?
Margir notendur voru orðnir þreyttir á
óstöðugleika forrita eins og Kazaa og
fannst því BitTorrent vera góð lausn. Við-
mótið er einnig mun einfaldara, (stað
þess að ræsa forrit til að leita að efni er
nóg að heimsækja síður sem hýsa litlar
skrár sem alltaf er hægt að nálgast. Niður-
halsforritið er svo keyrt á meðan kveikt er
á tölvunni og efnið skilar sér oftast stuttu
s(ðar. Annar kostur er sá að (BitTorrent er
ekki hægt að hala niður án þess að hlaða
upp á móti. Algengt var að notendur
Kazaa slepptu því að gefa á móti því sem
þeir þáðu.