Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2005, Blaðsíða 25
DV Menning
FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 25
Á föstudagskvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á stóra sviöi Borgarleikhússins leikgerö eftir skáld-
sögu Böðvars Guðmundssonar, Híbýli vindanna. Stór hópur listamanna kom að tilurð sýningarinnar og
hefur hún vakið nokkra eftirvæntingu því uppselt er á fyrstu sýningar. Sýningin rekur aðstæðurnar
sem verða til þess að Ólafur Jensson ákveður að slást í hóp eins fyrsta hópsins sem hélt vestur, segir
frá harðbýlisárum hans þar og lýkur þessum hluta verkins þar sem hann stendur einn uppi. Sagan
gefur glögga mynd af þeim örlögum sem þúsundum íslendinga voru búin í landnámi Vesturheims.
Það er miðvikudagur og komið að
hádegi. Framundan eru tökur fyrir
sjónvarp og boðun er tímastillt eftir
gervum: þeir sem em með mestu
gervin mæta fyrst í smínk og þær Guð-
rún Þorvarðardóttir, yfirmaður förð-
unardeildar, og Filippía Elísdóttir
búningahönnuðurinn þurfa að vera
snöggar. Guðrún kallar fólk inn um
leið og það birtist í almenningnum og
Filippía segir, um leið og hún hleypur
upp stiga: „Það liggja nótur inni í her-
berginu þínu ffá mér." Það er þessi
kyrra spenna í loftinu sem er oftast
góðs viti, fólk er ömggt. í kvöld er fjöl-
miðlarennsli, á morgun lokaæfing og á
fostudag mætir leikhópurinn
áhorfendum og skilar verki sínu til
samfélagsins.
Falinn heimur á pappír
Það hefur lengi verið hugsað um
sviðsetningar á sögum Böðvars um
Vesturheim. Þær öðluðust þegar við
útgáfu Ffíbýla vindanna miklar vin-
sældir þótt ekki fæm þær hátt, en sett-
ust svo á metsölulista og sátu þar
misseri efdr misseri. Þær opnuðu
nýjum kynslóðum og eldri heim vest-
urfaranna sem hafði um árabil verið
hulinn, geymdur í bókum og bréfum,
skjölum og munnmælum.
Löngu fyrr hafði Halldór Laxness
að hluta gert sér mat úr vesturferðum
mormónanna og Jóhannes úr Kötlum
skrifað um þær sagnabálk. Víða um
Evrópu vom höfundar á síðustu öld að
minnast þessara ferða: Moberg hinn
sænski skrifaði um þær miklar sögur
sem urðu fyrst að kvikmynd og sjón-
varpsþáttum og síðar að söngleik
þeirra Abba-manna. Svo seint sem í
fyrra var Roddy Doyle að halda áff am
sagnabáfki sínum um írskan strák úr
Páskauppreisninni sem fer til Ameríku
og feril hans þar. Vesturfarimar em
enn að kalla á athygli Evrópubúa. Með
skipulegri útgáfu bréfa frá þeim tíma
heim og heima eykst aðgangur að
þeim erfiðu örlögum sem biðu
innflytjenda um alla austurströndina,
ekki vom þau skárri örlögin sem biðu
þeirra sem komu yfir Kyrrahafið til
fyrirheitna landsins. Þessi saga er enn
lifandi veruleiki.
Fiðlungur og kona hans
í Híbýlum vindanna segir ff á Ólafi
Jenssyni fióh'n og ættmennum hans en
um leið er þetta saga lífsbaráttu
íslendinga austan hafs og vestan á
ofanverðri nítjándu öld og í upphafi
þeirrar tuttugustu. Sagan styðst við
fjölda sögulegra atvika frá landnámi
Islendinga í Kanada og rekur sumpart
atvik sem gerðust á þeirri erfiðu för. í
fréttatilkynningu leikhússins segir:
„Híbýh vindanna er leikrit um
drauma, brosmar vonir og söknuð, en
fjallar síðast en ekki síst um
þrautseigju og fómir fóUcs í leit að nýj-
um samastað í tilverunni."
Sú hugmynd hafði verið lengi á
kreiki meðal leikhúsfólks að þessa
sögu mætti leikgera. Þegar Leikfélag
Reykjavíkur fékk réttinn til vinnslu
verksins var Guðrúnu Vilmundardótt-
ur fahð að vinna að leikgerðinni í
samvinnu við Þórhildi Þorleifsdóttur
sem átti að leikstýra sviðsetningunni.
Fór svo að Bjama Jónssyni var fahð að
halda leikgerðinni áfram og um síðir
kom aUur leUchópurinn af vinnunni
undir stjóm ÞórhUdar.
Tuttugu og fimm á sviði
Með hlutverk Ólafs fiölíns og
Sæunnar, fyrri konu hans fara Bjöm
Ingi Hilmarsson og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir. I öðmm hlutverkum
em: Bergur Þór Ingólfsson, Bima Haf-
stein, Guðmundur Ólafsson, Gunnar
Hansson, HaUdór Gylfason, HaUdóra
Geirharðsdóttir, Hanna María Karls-
dóttir, Jóhanna Vigdís Amardóttir,
Margrét Helga Jóhannsdóttir, Pétur
Einarsson, Sigrún Edda Bjömsdóttir,
Sveinn Geirsson og Theodór Júhus-
son. Auk þeirra koma 6 böm og nokkr-
ir aukaleikarar frá Stúdentaleikhúsinu
fram í sýningunni. Höfundur tónhstar
er Pétur Grétarsson. Láms Bjömsson
lýsir. Höfundur búninga er FUippía I.
Ehsdóttir. Höfundur leikmyndar er
Vytautas Narbutas.
Dökkir litir leysast upp
„Þetta em um 120 búningar," segir
FUippía. „Við höfum verið að stytta
síðustu æfingar svo það hefur eitthvað
fækkað. Þetta em núklar sldptingar.
Það er ansi mikið. Við vUdum ekki fara
í Jdisjur, ekki afmarka efnið of mikið í
tíma í búningagerðinni. Þetta fólk var
á sauðskinnskóm, en við setjum það á
gúmrm'túttur. Þetta em mest dökkir
litir sem leysast svo upp í brúnt. Við
vUdum leggja áherslu á heUdarmynd-
ina, þetta væri einn líkami." FUippía
segir hluta af föðurfóUd sínu hafa farið
vestur. „Það var eitthvað samband
lengi. Það eiga alhr einhverja sem fóm
vesmr." Ems og aðrir starfsmenn sýn-
ingarinnar sem rætt var við er fint
hljóð í fólkinu. „Það er búinn að vera
óvenjugóður samhljómur í þessari
vinnu. Alhr lagst á eitt, sem einn lík-
ami.“
Mikil saga
„Það em að ég held tíu ár síðan ég
fór að tala um þetta," sagði Guð-
mundur Ólafsson leikari. „Það er
búið að vera gaman að vera með í
þessu með höfundi og leikstjóranum.
Þetta er mikU saga, en á endanum þá
emm við í þessari sýningu bara með
fyrri hlutann. Leikhópurinn hefur
fengið að koma miklu meira að sjálffi
leUcgerðinni en tíðkast hefur. Við
emm búin að vera með bókina í
höndunum aUan tí'mann. Höfum
fengið að spinna upp kafla sem okkur
þóttu áhugaverðir og sannreynt
hvernig þeir standa á eftir. Þetta er
búin að vera svona vinna eins og
mann hefur margoft dreymt um."
Guðmundur fer með þrjú hlutverk,
og er svo í þremur öðmm smálegum.
Mjög krefjandi
Theodór Júlíusson er að taka sig
tU: „Þetta hefur verið skemmtileg
vinna en mjög, mjög krefjandi. Þetta
er svo frábær saga. Við fengum að
eiga þátt í að skapa sýninguna, kom-
um ekki að tilbúnu handriti, fengum
að leggja okkar til, impróvisemðum
atriði sem okkur þótti akkur í sem
Bjarni tók svo og skrifaði um. Það
hefur verið mjög gaman. Nú síðustu
daga eru styttingarnar og þá verður
maður að sjá eftir ýmsu. Þetta er
nærri þriggja tíma sýning eins og hún
stendur í dag. Furðulegt hvernig hef-
ur tekist til miðað við hvað þetta er
stór hópur og allir hafa lagt sitt tU.
Það er ánægjulegt." Theodor fer með
þrjú hlutverk í sýningunni. „Pabbi
var með vesturfarirnar á heilanum-
svo ég hef alltaf haft áhuga á þessari
sögu og lesið margt um vesturfarirn-
ar. Svo löngu löngu seinna fór bróðir
minn til Kanada og bjó þar í tvo ára-
tugi."
Langömmubróðir fór
Fyrri hluta verks Böðvars lýkur
þegar Ólafur missir fyrri konu sína
sem Katla Margrét leikur: „Þau kynn-
ast hér heima og hún fer með honum
vestur þar sem hún deyr úr bólunni.
Þau er samheldin en hún er ekki upp-
litsdjörf þegar komið er vestur. Svo
fer að renna í henni blóðið. Hún er >
jarðbundin og hlý kona," segir Katla
um hlutverkið sitt sem er annað af
stórhlutverkum sýningarinnar. „Þetta
er búin að vera mikil vinna og
strembin, en skemmtileg". Fór eitt-
hvað af fólkinu hennar vestur?
„Langömmubróðir minn fór." Svo er
hún farin. Frumsýning á Híbylum
vindanna er á föstudagskvöld og er
þegar uppselt á lokaæfinguna og
fyrstu fjórar sýningarnar.
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélay Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reyk]avík
STÓRA SVIÐ
HIBYLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar
Aðalæfing í kvöld kl 20 - VFPmJ
Frumsýning fö 7/1 kl 20 - IIPPSBJ
Lau 8/1 kl 20 - gul kort - UPPSé&T
Su 9/1 kl 20 - aukasýning - ÍÍPPS&J
Lau 15/1 kl 20 - rauð kort - tíPPS&J
Su 16/1 kl 20 - græn kort
Fö 21/1 kl 20 - blá kort
Lau 22/1 kl 20 - UPP5ÖJ
Lau 29/1 kl 20
Su 30/1 kl 20___________
HERI HERASON
e. Coline Serreau
Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20
LINA LANGSOKKUR
e. Astríd Lindgren
Su 9/1 kl 14, Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14
Su 30/1 kl 14
tAið&sM&n i Bofgerlfrfkhúvínu er og>m:
ÍO-18 ménudaga c»g þrtðjudaga,
10-20 miSvíku-, fimmtu- wg fóuudaga
12-20 íaugardaga og vurtrtudaga
Miðavöluvímí 56b 8000
mtdasalas borgaríeikhuiij
Mlðasaia á rtelínu www.borgarleikhusis
Börn ,2 ára og yngri iá friP,
i Swgáfiefkhúsíð í f/Igd fuliwðinng
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
—TlT íi....... 11 I I I I ■
e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta 1eik í aðalhlutverki
Fö 7/1 kl 20
Fö 14/1 kl 20
Su 16/1 kl 20
ÁUSA eftir Lee Hati o
STÖLARNIR eftir fonesco
/ samstarfi við LA
Lau 8/1 kl 20, Su 9/1 kl 20, Fi 13/1 kl 20,
Lau 15/1 kl 20
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fö 14/1 kl 20
Fi 20/1 kl 20__________________
SAUMA.STOFAN 30 ARUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson
í samstarfi við TÓBÍAS
Frumsýning Su 16/1 kl 20
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
LEiKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDl -
Kl 18:00 Cleðistund I forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðiil kvöldsins
KI 20:00 Leiksýning kvðidsins
NÆRINC FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ í TÍMA