Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Blaðsíða 23
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 23
Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Edda Jónsdóttir í i8 galleríi og þakkarviðurkenningu hlaut
Guðrún Steingrímsdóttir eigandi Lífstykkjabúðarinnar. Margar helstu athafnakonur landsins voru
viðstaddar athöfnina og samglöddust kynsystrum sínum í atvinnurekstri.
Katrín í Lýsi hlýtur viðurkenningu
fyrir framúrskarandi árangur
Viðurkenningar FKA voru veittar í sjötta sinn á fimmtudag-
inn. FKA stendur fyrir Félag kvenna í atvinnurekstri og veitir
konum árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur
í heimi viðskipta.
Allar helstu framakonur ís-
lands komu saman af þessu til-
efni og skáluðu í kampavíni og
gæddu sér á snittum. Ingibjörg
Sólrún Gfsladóttir borgarfulltrúi
stýrði hófinu við góða lukku en
þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti íslands, og Einar
Sveinsson, stjórnarformaður ís-
landsbanka, sáu um að afhenda
viðurkenningarnar.
Endurreisti Lýsi
í ár fékk Katrín Pétursdóttir,
framkvæmdastjóri Lýsis hf., við-
urkenninguna. Árið 1999 stóð
Lýsi hf. mjög höllum fæti en
Katrín sá möguleika í rekstrinum
og keypti fýrirtækið. Síðan þá
hefur leiðin legið upp á við og
ársveltan er nú 5 milljarðar. Um
90% framleiðslunnar fer til
útflutnings og er stöðug þróun-
arvinna í gangi. Með útsjónar-
# staðinn fyrir að klaga mútaði hún systkin-
unum og fékk nokkrar krónur fyrir að kjafta
ekki í foreldrana.
semi og framkvæmdaelju hefur
Katrínu tekist að ná þessum stór-
kostlega árangri með fyrirtæki
sem allir aðrir höfðu gefið upp á
bátinn.
Mútaði systkinum sínum
Katrín hélt ræðu við afhend-
inguna og minntist þar á að hún
hefði alltaf verið mikil viðskipta-
kona. Rifjaði upp að þegar hún
var 6 ára komst hún að því að
eldri systkini hennar voru farin
að fikta við að reykja. Þarna sá
hún tromp í hendi og í staðinn
fyrir að klaga mútaði hún
systkinunum og fékk nokkrar
krónur fyrir að kjafta ekki í for-
eldrana. Hún sagði þessa aðferð
þó ekki vænlega og lagði áherslu
á að til að viðskipti væru farsæl
yrðu þau að vera heiðarleg.
Guðrún í Lífstykkjabúðinni
Tvær aðrar viðurkenningar
voru veittar þessu sinni. Þakkar-
viðurkenninguna hlaut Guðrún
Steingrímsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lífstykkjabúðarinnar, en
hún hefur rekið búðina með dug
og dáð og er hvatning annarra
kvenna sem standa í slíkum
atvinnurekstri. Lífstykkjabúðin
skipar háan sess á sínum mark-
aði og hefur orð á sér fyrir að
veita fyrsta flokks þjónustu enda
skipta margar konur eingöngu
við þessa rótgrónu verslun.
Gallerí i8 virt um víða
veröld
Edda Jónsdóttir í Galleríi i8
hlaut hvatningarverðlaunin fyrir
sitt framlag en hún hefur verið
ötul við að koma listamönnum á .
framfæri gegnum tíðina, ekki
síst á erlendri grundu. Edda hef-
ur einstaklega næmt auga fyrir
list og virðist alltaf veðja á réttan
hest þegar hún tekur að sér lista-
menn. Hún hefur líka einbeitt sér
að því að koma erlendum lista-
mönnum á
framfæri
hér á
landi
með
góðum
árangri.
-
Katrín Pétursdóttir Zar |
að vonum glöðyfir viður-
kenningunnipg hvatti
aðrar kgniírtil döða.
Katrín S. Óladóttir formaður FKA, Vigdís Finn-
bogadottir fyrrverandi forseti fslands, Edda
Jonsdóttir framkvæmdastjóri i8, Guðrún Stein-
grimsdottir eigandi Lífstykkjabúðarinnar, Einar
Sveinsson stjórnarformaður íslandsbanka og
Ingibjorg Sólrún Gfsladóttir borgarfulltrúi.
RYMUM FYRIR NYJUMUOSUM
LAGERUTSALAN FER FRAM Á LAGER OKKAR AFTAN VIÐ LUMEX BÚÐINA SKIPHOLTI 37, GENGIÐ INN FRÁ BOLHOLTI
OPIÐ: FÖSTUDAG 12-20 / LAUGARDAG 10-18 / SUNNDAG 13-18 / MÁNUDAG 12-20