Bræðrabandið - 01.05.1978, Page 3

Bræðrabandið - 01.05.1978, Page 3
Þeir skildu ekki hvernig nokkur þeirra skyldi geta svikið hinn guðdómlega lærimeistara. Hvaða orsök gæti valdið því að þeir svikju hann? Og í hendur hverra? í hvaða hjarta gætu slík vél- ráð leynst? Sannarlega ekki neinn af þeim tólf útvöldu, sem notið höfðu þeirra forréttinda umfram alla aðra að hlýða á kenningar hans, sem notið höfðu hins dásamlega kærleika hans og hann hafði sýnt svo mikinn trúnað með þvx að taka þá í náið samfélag við sig. Þegar augu þeirra opnuðust fyrir þýðingu orða hans og þeir minntust þess hversu sönn orð hans voru, þá urðu þeir gripnir efasemdum og ótta. Þeir tóku að kanna eigin hug, hvort nokkiir hugsun gegn meistara þeirra leyndist þar. í mikilli geðshræringu spurði hver eftir annan: "Er það ég, herra?" En Júdas þagði. Að síðustu spurði JÓhannes í mikilli geðshræringu: "Herra, hver er það?" og Jesús svaraði: "Sá sem dýfði með mér hendinni í fatið sá mun svíkja mig. Manns-sonurinn fer að sönnu héðan, eins og ritað hefur verið um hann, en vei þeim manni sem því veldur að manns-sonurinn verður framseldur; betra væri þeim manni að hann hefði aldrei fæðst." Lærisvein- arnir höfðu rannsakað hver annars svip þegar þeir spurðu: "Er það ég herra?" Og nú, þegar JÚdas þagði, beindust augu allra að honiim. Meðan hver spurningin rak aðra og undrun lýsti af hverri ásjónu, hafði JÚdas ekki heyrt svar Jesú við spurningu JÓhannesar. En til þess að losna undan tortryggnislegu augnaráði lærisveinanna spurði hann nú, eins og hinir höfðu gjört: "Er það ég, rabbí?" Jesús svaraði alvarlega: "ÞÚ sagðir það." Undrandi og ringlaður eftir upp- ljóstrun áform síns reis JÚdas snöggt á fætur til að yfirgefa salinn. "Þá segir Jesús við hann: Það sem þú gjör- ir, það gjör þú skjótt...Þegar hann nú hafði tekið við bitanum gekk hann þegar út. En þá var nótt." Það var svikar- anum nótt er hann sneri burt frá Kristi og fór út í hið ytra myrkur. Allt til þess er hann steig þetta skref hafði Júdas ekki hrundið frá sér öllum möguleikum til iðrunar. En þegar hann fór frá Drottni og meðlærisveinum sínum var endanleg ákvörðiin tekin. Hann var kominn yfir markalínuna. Dásamlegt hafði verið langlundargeð Jesú í samskiptum sínum við þessa af- vegaleiddu sál. Ekkert hafði verið látið ógert sem unnt var til að bjarga júdasi. Eftir að hann hafði tvisvar sinnum samið um að svíkja Drottin sinn gaf Jesús hon\im enn tækifæri til að iðrast. Með því að lesa hin duldu áform í hjarta svikarans gaf Kristur honum hina síðustu, sannfærandi sönnun fyrir guðdómi sínum. Þetta var hinum falska lærisveini síðasta kallið til iðrunar. Ekkert úrræði sem hið guð- mannlega hjarta Jesú átti völ á hafði verið sparað. Öldur náðarinnar sem brotnað höfðu á þvermóðskufullum hrok- anum flæddu í enn sterkari straumum hins sigrandi kærleika. En þótt Júdasi væri komið í opna skjöldu og sekt hans opinberuð, þá stappaði það aðeins í hann stálinu. Frá þessari heilögu mál- tíð hélt hann rakleitt út til að full- komna svikin. Þegar Jesús lýsti ógæfu yfir Júdasi var einnig í því fólginn miskunnsamur boðskapur til lærisveinanna. Með því gaf hann þeim lokavitnisburð um messí- asardóm sinn. "Héðan af segi ég yður það áður en það kemur fram," sagði hann, "til þess að þér trúið þegar það er komið fram, að ÉG ER". Ef Jesús hefði ekkert sagt, svo sem hann vissi ekki hvað í vændum var fyrir hann, hefðu lærisveinarnir getað ímyndað sér að meistari þeirra hefði ekki til að bera guðlega framsýn, að hann hefði verið tekinn að óvörum og svikinn í hendur morðóðum skrílnum. Ári áður hafði Jesús sagt lærisveinunum að hann hefði útvalið þá tólf og að einn þeirra væri djöfull. NÚ mundu orðin sem hann sagði við JÚdas og sýndu að honum var fullkunnugt um svikráðin styrkja trú hinna sönnu fylgjenda Krists í niður- lægingu hans. Og þegar JÚdas hefði hlotið sín hræðilegu örlög mundu þeir minnast þess er Jesús hafði lýst ógæfu yfir svikaranum. Og frelsarinn hafði einnig annan tilgang. Hann hafði ekki dulið hirðis- starf sitt fyrir þeim manni er hann vissi að var svikari. Lærisveinarnir skildu ekki orð hans þegar hann var að þvo fætur þeirra: "Þér eruð ekki allir hreinir," né heldur þegar hann sagði við borðið: "Sá sem brauð mitt etur

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.