Bræðrabandið - 01.05.1978, Qupperneq 4
hefur lyft upp hæl sínum á móti mér."
Jóh.13,11.18. En síðar, þegar merking
orða hans varð auðskilin, höfðu þeir
íhugunarefni þar sem var þolinmæði og
miskunn Guðs gagnvart hinum verstu
afbrotamönnum.
ÞÓ að Jesús hefði þekkt JÚdas frá
upphafi, þá laugaði hann fætur hans.
Og svikarinn naut þeirra forréttinda að
sameinast Kristi í neyslu sakramentis-
ins. Hinn þolinmóði frelsari beitti
öllum fortölim til þess að syndarinn
veitti honum viðtöku, að hann iðraðist
og yrði hreinsaður af saurgun syndar-
innar. Þetta er okkur fordæmi. Þegar
við teljum að einhver sé vegvilltur og
í synd, þá eigum við ekki að forðast
hann. Við eigum ekki fyrir neinskonar
undanbrögð að láta hann eftir varnar-
lausan gegn freistingum eða hrekja hnn
út á áhrifasvæði Satans. Það er ekki
aðferð Krists. Það var vegna ávirðinga
og villu lærisveinanna að hann þvoði
fætur þeirra, og allir nema einn þeirra
fengust fyrir það til að iðrast.
Fordæmi Krists bannar manngreinar-
álit við borð Drottins. Að sönnu úti-
lokar opinber synd þann seka. Það
kennir Heilagur andi ótvírætt.
l.Kor.5,11. En fram yfir það má enginn
fella dóm. Guð hefur ekki eftir skilið
mönnvun að ákveða hver skuli gefa sig
fram við slíka athöfn. Því hver getur
lesið hjörtun? Hver þekkir hismið frá
hveitinu? "Hver maður prófi því sjálf-
an sig og síðan eti hann af brauðinu
og drekki af bikarnum." Og "Hver sem
þess vegna etur brauðið eða drekkur
bikar Drottins óverðuglega, hann verður
sekur við líkama og blóð Drottins."
"Sá sem etur og drekkur, hann etur og
drekkur sjálfum sér til dóms ef hann
gjörir ekki greinarmun á líkamanum."
l.Kor.11,28; 2 7;29
Þegar trúaðir koma saman til að
halda boðin, þá eru þar viðstaddir
sendiboöar ósýnilegir mannlegum augum.
1 hópnum getur verið einhver JÚdas, og
sé svo, þá eru þar sendiboðar myrkra-
höfðingjans, því að þeir standa að baki
öllum sem neita að láta stjórnast af
Heilögum anda. Himneskir englar eru
einnig þar. Þessir ósýnilegu gestir
eru viðstaddir allar slík.ar athafnir.
í hópinn geta komiö menn sem í hjarta
sínu er ekki þjónar sannleikans og
heilagleikans, en vilja samt taka þátt
í athöfninni. Ekki skal banna þeim það.
Vottar eru þar staddir er einnig voru
við þegar Jesús laugaði fætur lærisvein-
anna og Júdasar. Fleiri augu en mann-
leg voru þar sjónarvottar.
Kristur er þar fyrir Heilagan anda
til þess að innsigla sitt eigið boð.
Hann er þar til að sannfæra og mýkja
hjartað. Ekkert augnatillit, engin
iðrunarhugsun, fer framhjá honum.
Hann bíður eftir hinum iðrandi hinxim
sorgmædda. Allt er reiði^búið til að
veita slíkri sál viðtöku. Hann sem
þvoði fætur Júdasar þráir að þvo blett
syndarinnar af hverju hjarta.
Enginn skyldi útiloka sig frá
sakramentinu af því að einhverjir
óverðugir kunna að taka þátt í því.
Sérhverjum lærisveini er ætlað að vera
þar opinberlega og bera því þannig
vitni að hann meðtaki Krist sem per-
sónulegan frelsara. Það er við slík
tækifæri, við athafnir sem hann sjálfur
hefur átt frumkvæði að, sem Kristur
hittir fylgjendur sína og veitir þeim
þrótt með návist sinni. óverðug hjörtu
og hendur geta jafnvel útdeilt sakra-
mentinu, en Kristur er þar engu að
síður til þess að annast börn sín. All-
ir sem koma með trú sína staðfasta í
honum mxinu hljóta ríkulega blessun.
Allir sem vanrækja þessar stundir guð-
dómlegra forréttinda munu bíða tjón. Um
þá má með réttu segja: "Þér eruð ekki
allir hreinir."
Með því að neyta af brauðinu og vín-
inu með lærisveinunum hét Kristur þeim
að verða frelsari þeirra. Hann fól
þeim í hendur hinn nýja sáttmála, sem
allir er hann meðtaka verða Guðs börn
fyrir, og samarfar Krists. Með þessimi
sáttmála öðluðust þeir alla þá blessun
sem himinninn gat veitt þeim þessa lífs
og annars. Þessi sáttmálagjörð átti að
fullgildast með blóði Krists. Og út-
deiling sakramentisins átti að vera
lærisve inxinum áminning vim hina óendan-
legu fórn sem færð var fyrir hvern
einstakan þeirra sem hluta af hinni
miklu heild fallins mannkyns.
En sakramentisþjónustan átti ekki
að vera sorgarathöfn. Það var ekki
tilgangur hennar. Þegar lærisveinar
Drottins safnast saman við borð hans
er ekki ætlunin að þeir minnist ófull-
komleika síns og harmaheima.
eiga ekki að hafa hugann bundinn við
4