Bræðrabandið - 01.05.1978, Qupperneq 8
að tungutalsgáfann byggi upp einstakl-
inginn en spádómsgáfan byggi upp allan
söfnuðinn. Hann segir einnig að hann
vildi fremur tala fimm orð með skiln-
ingi en tíu þúsund orð á óþekktri tungu.
Tungutal er sjaldan nefnt nema á
tímum Biblíunnar. Gjöfin virðist hafa
dáið úr þegar frá leið. Sirniir telja að
tungutalsgáfan hafi verið sérstaklega
ætluð til þess að hjálpa til að koma
hinum kristna söfnuði á fastan grund-
völl, að fá boðbera til að ganga
fagnaðarerindi á hönd meðal hinna ýmsu
málahópa og yrðu þeir síðan til þess
að boða boðskapinn sínu fólki. Þar
sem ekki væri eftir það þörf á
gjöfinni hlyti hún að hætta.
Chrysostom og Augustinus létu
til dæmis þá skoður í ljós að tungutal
væri fyrirbæri úr fortíðinni. Chrysos-
tom hafði þetta að segja um l.Kor.12,1:
"Allt þetta mál er augljóst. En það
kemur af því að við þekkjim lítið þær
staðreyndir sem vitnað er í og að tungu-
talið hefur hætt. Það átti sér áður
stað en fer nú ekki lengur fram."
Augustinus skrifaði um tungutalsgáfuna
að hún væri tákn "sem átti við á þe^m
tíma", og hún væri um garð gengin."
"Allt frá tímum Origen, hins bráð-
gáfaða kristna heimspekings sem kenndi
og ritaði í Alexandríu um miðja þriðju
öld," skrifar Morton T.Kelsey, "virtust
kirkjufeðurnir ekki viðurkenna að
tungutal hafi nokkurn tíma verið
almennt iðkað. Þaðan í frá eru flestar
tilvitnanir í tungutal útskýringar á
því hvers vegna fyrirbæri það sem átti
sér stað á Biblíutímum sæist ekki
lengur.^
Frá þessvim tíma og um allar miðald-
ir er lítið eða ekkert sagt um tungu-
tal, svo lítið að einn höfundur kallar
þetta tímabil "þyrkingstímabilið langa"
Hvítasunnxnnenn segja að ástæðan fyrir
því að tungutalið hafi horfið á þessum
öldum sé sú að syndin hafi ríkt í söfn-
uðinum (kirkjunni) og fólk ekki trúað
(fyrirheitum Guðs og^einnig að kærl'eikur
margra hafi kólnað.
TUNGUTAL 1 DAG
Á sautjándu öld kom tungutalið fram
í Frakklandi þegar ofsóknir brutxast út
gegn Húgenottum eftir að tilskipunin
frá Nantes var tekin til baka og
hreyfing kom fram um að koma aftur á
kaþólskri trú sem trúarbrögðum þjóð-
arinnar. Isabeau Vincent dóttir smá-
bónda nokkiirs, sem talaði aðeins mál-
lýsku á að hafa spáð klukkustundum
saman á óaðfinnanlegri frönsku.
í Englandi á nítjandu öld kom
tungutalið fram og var forsprakki
þeirrar hreyfingar Edward Irving.ÞÓ að
hann bæði til Guðs um að hljóta þessa
gjöf fékk hann hana aldrei. Hreyfingin
hóf feril sinn með bóndastúlku í Skot-
landi sem Mary Campbell hét og stuttu
síðar kom hreyfingin fram í London. 1
fyrstu reyndi Irving að halda öllu inn-
an hreyfingarinnar í rósemi en eftir
nokkurn tíma varð hún að því sem náinn
vinur hans, Thomas Carlyle, kallaði
"blátt áfram geðveikrahæli".® Þar kom
að að Irving var settur af og gerður
brottrækur úr kirju Skotlands.9
Hvítasunnustefnan eins og við
þekkjum hana í dag kom fram um alda-
mótin að sumu leyti sem angi úr Heilag-
leikahreyfingunni sem var nokkurs
konar uppreisn gegn kenningum Meþódista
um fullkomnun.Einn Heilagleikaprest-
ur sem Charles F.Parnham hét og var að
kenna við lítinn Biblíuskóla í Topeka
í Kansas lagði hendur sínar yfir einn
af nemendum sínum, Agnes Ozman, sem
hlaut þá gáfu að tala andlegri tungu.
Hreyfingin sem óx út frá þessu var
með ýmsu móti, allt frá litlum hópum
hér og þar til stórra vakninga samkoma.H
Ót frá þessari hreyfingu spruttu all-
margir söfnuðir Hvítasunnumanna svo sem
Assemblies of God, The Church of God,
og The International Church of the
Foursquare Gospel.
Á síðari árum hefur tungutal komið
fram í rótgrónum mótmælenda söfnuðum.12
Reyndar má segja að tuntutal hafi komið
fram í öllum höfuðsöfnuðum mótmælenda
og Rómversk-kaþólsku kirkjunni. Á
síðari árum hefur þessi hreyfing valið
miklum áhyggjum á meðal kristinna
manna.
Tungutal er undarlegt og athyglis-
vert fyrirbrigði. Oft telur sá sem
talar hið óþekkta tuntutal sitt vera
tungumál engla. Eru þessar nútíma
tungur í raun og veru gjöf frá Guði?
Ellen White segir að sumir "tali
þvoglumáli sem þeir kalli óþekkta
tungu sem er ekki aðeins ókunnug mönnum
heldirr einnig Guði og öllum himninum.
8