Bræðrabandið - 01.10.1978, Qupperneq 11
Þriðjudagur 31. október
Kærleikur er að gefa
Eftir E. C. Ward.
Kærleikur er að gefa og okkar litli heimur er
kennslubók í kærleika fyrir alheiminn.
Lítill drengur stóð með föður sínum á hæð þar sem
mátti sjá Golden Gate brúna í San Francisco flóanum.
í norðri reis Tamalpais fjallið og hæðahryggur fyrir
handan. Þegar þeir litu í austur sáu þeir flóann og
borgirnar. I suðurátt mátti greina landið þakið húsum
og þjóðvegum. Er þeir virtu fyrir sér þetta svið sagði
faðirinn: „Sonur, kærleikur Guðs er eins víður og allt
þetta.“ Pilturinn leit í allar áttir um stund og svaraði
síðan: „þá hljótum við að standa í honum miðjum.“
Já, rétt er það að við stöndum umvafin kærleika
Guðs, kærleika sem felst í því að gefa, kærleika sem
Guð hefur verið að veita okkur öllum, allri sköpun
hans frá eih'fum tímum.
Kærleikur er það að gefa og okkar litli heimur er
kennslubók í kærleika fyrir alheiminn. „Dýrðin sem
skín af ástjónu Jesú er dýrð sjálfsfórnandi kærleika. í
ljósinu frá Golgata mun sjást að lögmál sjálfsfórnandi
kærleika er lögmál lífsins fyrir himinn og jörð, að sá
kærleikur sem „leitar ekki síns eigin á uppsprettu sína
í hjarta Guðs.“ DA 20. Mesta dæmi um kærleika sem
gefur er sá kærleikur sem birtist í lunderni Krists, hins
auðmjúka og lítilmótlega. Við erum umvafin þeim
kærleika og höfum verið það frá eilífum tíðum.
Kærleikur erþað að taka tíma
Lítill drengur spurði móður sína við hverja af
persónum Pilgrims Progress henni hkaði best. Hún
svaraði: „Hinn kristna auðvita. Hann er hetja sögunn-
ar.“
Sonurinn sagði: „Það finnst mér ekki mamma. Mér
líkar best við Christianiu af því að þegar Kristinn fór í
pílagrímsför sína lagði hann af stað einn en þegar
Christianía fór af stað tók hún börnin sín með sér.“
Ellen White segir: „Hann (Guð) mun samstarfa
með þeim foreldrum sem leggja sig fram við uppeldi
barna sinna og biðja Guð um hjálp og vinna að sinni
eigin sáluhjálp og barna sinna. Hann mun verka í
þeim að vilja og gjöra honum til velþóknunar" AH
207.
„Foreldrarnir ættu að nota kvöldin fyrir fjölskyldu
sína. Leggið til hliðar áhyggjur og vandamál um leið
og þið hættið störfum dagsins." Sama bók bls. 102.
„Feður og mæður ættu að heita Guði því hátíðlega,
þeim Guði sem þau segjast elska og hlýða, að fyrir náð
hans ætli þau ekki að vera ósammála heldur muni í
eigin lífi og lund sýna hugarfar sem þau vilja að birtist
hjá börnum þeirra.“ Sama bók bls. 108.
„Mannleg viðleitni ein dugar ekki til þess að hjálpa
bömunum til þess að fullkomna lunderni fyrir himin-
inn en með guðlegri hjálp má koma til leiðar göfugu
og heilögu verki.
Þegar þú tekur á þig foreldraskyldur í styrk Guðs
skaltu aldrei slaka á í viðleitni þinni og staðfestu eða
hverfa frá þeirri skyldu þinni að leitast við að gera
bömin þín að því sem Guð vill að þau verði og mun þá
Guð líta á ykkur með velþóknun. Hann veit að þið
eruð að gera það besta sem þið getið og hann mun
auka mátt ykkar. Hann mun sjálfur vinna þann hluta
verksins sem faðirinn og móðirin geta ekki gert. Hann
mun vinna með guðhræddri móður sem er vitur,
þolinmóð og beinskeytt í viðleitni sinni.“ Sama bók
bls. 207
„Foreldrar verða að hafa náið samband við börnin
sín og Guð. Ef foreldrar starfa með þolinmæði og
kærleika og leitast við af einlægni að ná hæsta staðli
hreinleika og háttvísi mun þeim takast það.“ Sama
bók bls. 208.
„Þegar þú sinnir því starfi að bjarga börnunum
þínum og halda þér sjálfum á vegi heilagleikans munu
mjög erfiðar reynslur koma. En misstu ekki móðinn.
Haltu þér fast við Jesúm. Hann segir: „Náðu taki á
mínum styrk, til þess að þér getið gjört frið við mig og
þér munuð gera frið við mig.“ Erfiðleikar munu koma
upp. Hindranir munu verða í veginum. En lítið
stöðugt til Jesú. Þegar hætturnar koma skuluð þið
spyrja Drottin hvað þið eigið nú að gera?“ Sama bók
bls. 207. 208.
Kærleikur er það að taka tíma með börnum okkar
og fjölskyldum svo við getum hjálpað þeim á leið
þeirra með okkur til hins himneska ríkis.
Kærleikur erþað að láta
í Ijós vingjarnleika
Dr. Courtland Myer átti að tala í ákveðinni borg og
steig um borð í lest til þess að komast þangað og
vonaðist til að geta undirbúið ræðuna á leiðinni. Hann
breiddi úr bókum sínum og fór að lesa. Þybbin kona
og fjögur óhrein börn sátu fyrir aftan hann. Einn
drengurinn fór að klifra upp á sæti Dr. Myers og í
slysni setti hann óhreina fingur sína á flibba hans. Dr.
Myers langaði helst til þess að stinga drengnum á
11