Bræðrabandið - 01.07.1984, Blaðsíða 6
nöfn þeirra sem ekki eru viðstaddir
þegar tilkynningin er flutt og síðan
heimsækja þá í vikunni og bjóða þeim að
koma, eða ritarinn láti þau vita um
athöfnina og hvetji þá til að koma.
í sumum söfnuðum er talað um
mikilvægi væntanlegrar kvöldmáltíðar-
athafnar á hvíldardeginum næst á undan.
Allir safnaðarmeðlimir eru hvattir til
að undirbúa hjörtu sín og gera upp öll
mál við hvert annað. Þegar þeir síðan
koma að borði Drottins viku síðar getur
athöfnin orðið þeim miklu meiri blessun.
FRAHKVÆMD KVÖLDMÁLTÍÐARATHAFNARINNAR
Á kvöldmáltíðarguðsþjónustunni ætti
presturinn eða safnaðarformaðurinn að
koma fram fyrir hinn bíðandi söfnuð með
sannarlega andlegan boðskap sem hefur að
þungmiðju endurlausnarstarf Krists og
andsvar hins kristna. Ræðan ætti að
vera stutt, gagnorð og markviss. Ef tími
leyfir ætti að nota um það bil 10
mínútur til vitnisburðasamkomu í lok
ræðunnar. Síðan ætti fólkið að tjá sig
sameiginlega með því að söfnuðurinn rísi
á fætur og helgist Drottni á meðan
presturinn eða safnaðarformaðurinn
flytur stutta bæn. Söfnuðurinn tekur þá
síðan þátt í fótaþvottarathöfninni þar
sem karlar og konur eru hver í sínu
lagi.
I kirkjum þar sem aðeins er um að
ræða einn sal með engum hliðarherbergjum
má nota tjald til þess að skipta salnum
þannig að bræðurnir geti notað annan
hlutann og systurnar hinn. Safnaðar-
þjónar og safnaðarsystur ættu að hafa
vatnsílát, handklæði og vatn til reiðu.
í kaldri veðráttu skyldi vatnið hitað.
Þeir sem stjórna athöfninni eiga að sjá
til þess að enginn verði útundan.
Eftir fótaþvottarathöfnina koma
bræðurnir og systurnar aftur saman til
kvöldmáltíðarinnar sjálfrar. Safnaðar-
systurnar ættu að hafa komið brauðinu og
víninu fyrir á kvöldmáltíðarborðinu áður
en guðsþjónustan hefst. Presturinn/
prestarnir og safnaðarformaðurinn/safn-
aðarformennirnir fara á sinn stað við
borðið með brauðinu og víninu. Eftir að
sálmur hefur verið sunginn tekur
presturinn eða þjónandi safnaðarformaður
hvíta dúkinn af brauðinu og les síðan
1Kor 11.23,24 eða viðeigandi ritningar-
grein úr guðspjöllunum. Síðan er beðið
um blessun Guðs yfir þessum táknmyndum.
Alls staðar þar sem því verður við
komið krýpur allur söfnuðurinn á meðan
blessunar er beðið yfir brauðinu. Á
meðan brauðið er brotið lætur þjónandi
prestur eða safnaðarformaður viðeigandi
orð falla eða fer með viðeigandi
ritningargrein eða söfnuðurinn syngur
vers úr viðeigandi sálmi eða organistinn
leikur lágt viðeigandi trúarlega tónlist
og heldur því áfram á meðan táknmyndunum
er deilt út.
Presturinn/prestarnir og safnaðar-
formaðurinn/safnaðarformennirnir rétta
safnaðarþjónunum diskana með brauðinu á:
safnaðarþjónarnir gefa það söfnuðinum
þannig að hver kvöldmáltíðarþátttakandi
geti fengið hluta af hinu brotna brauði.
Þegar safnaðarþjónarnir koma aftur eftir
að hafa gefið söfnuðinum þá réttir
presturinn eða þjónandi safnaðarformaður
þeim brauð, síðan tekur annar safnaðar-
þjónninn diskinn og gefur prestinum eða
þjónandi safnaðarformanni . Hver
einstaklingur heldur á sínum hluta af
brauðinu þar til þjónandi presturinn eða
safnaðarfomaðurinn hafa fengið þannig að
allir neyti brauðsins saman. Ef tveir
vígðir menn (vígðir sem prestur eða
safnaðarformaður) þjóna þá gefa þeir
hvor öðrum brauð. Allir skyldu setjast
og fara með hljóða bæn á meðan brauðsins
er neytt.
Presturinn rís síðan á fætur og
lætur dúkinn yfir brauðið, tekur dúkinn
af víninu, og les 1Kor 11.23,26 eða
viðeigandi ritningargrein úr guðspjöll-
unum. Söfnuðurinn ætti alls staðar þar
sem því verður við komið að krjúpa afur
á meðan blessunar er beðið yfir víninu.
Eftir að allir hafa fengið af víninu
ættu allir þátttakendur að flytja hljóða
bæn. Þegar þjónandi prestar eða
safnaðarformenn hafa fengið af víninu
ætti að breiða dúk yfir það sem eftir er
af táknmyndunum.
HVER3IR MEGA TAKA ÞÁTT
"Þegar trúaðir koma saman til að
halda kvöldmáltíð eru þar viðstaddir
sendiboðar ósýnilegir mannlegum augum.
í hópnum getur verið einhver Oúdas og sé
svo, þá eru þar sendiboðar myrkrahöfð-
ingjans því að þeir standa að baki öllum
sem neita að láta stjórnast af Heilögum
anda. Himneskir englar eru einnig þar.
Þessir ósýnilegu gestir eru viðstaddir
allar slíkar athafnir." DA bls. 656.
6