Bræðrabandið - 01.07.1984, Blaðsíða 7
"Fordæmi Krists bannar manngreinar-
álit við borð Drottins. Að sönnu
útilokar opinber synd þann seka. Það
kennir Heilagur andi ótvírætt. En fram
yfir það má enginn fella dóm. Guð hefur
ekki eftirskilið mönnum að ákveða hver
skuli vera við slíka athöfn. Því að
hver getur lesið hjörtun? Hver þekkir
hismið frá hveitinu? Hver maður prófi
sjálfan sig og eti síðan af brauðinu og
drekki af bikarnum." "Hver sem etur
brauðið eða drekkur bikar Drottins
óverðuglega, verður þess vegna sekur við
líkama og blóð Drottins." "Því að sá sem
etur og drekkur án þess að dæma rétt um
líkamann, hann etur og drekkur sjálfum
sér til dóms." ...
"í hópinn geta komið menn sem í
hjarta sínu eru ekki þjónar sannleikans
og heilagleikans en vilja samt taka þátt
í athöfninni. Ekki skal banna þeim það.
Vottar eru þar staddir er einnig voru
við þegar öesús laugaði fætur lærisvein-
anna og Oúdasar. Fleiri augu en mannleg
eru þar sjónarvottar." Sama.
SÉRHVER SAFNAÐARMEÐLIMUR ÆTTI AÐ VERA
VIÐSTADDUR
"Enginn skyldi útloka sig frá
kvöldmáltíðinnivegna þess að einhverjir
óverðugir kunna að vera viðstaddir.
Sérhverjum lærisveini er ætlað að vera
þar opinberlega og bera því þannig vitni
að hann meðtaki Krist sem persónulegan
frelsara. Það er við slík tækifæri, við
athafnir sem hann hefur sjálfur boðað
til sem Kristur hittir fylgjendur sína
og veitir þeim þrótt með návist sinni.
Óverðug hjörtu og hendur geta jafnvel
útdeilt sakramentinu en Kristur er þar
engu að síður til þess að annast börn
sín. Allir sem koma með trú sína
staðfasta í honum munu hljóta ríkulega
blessun. Allir sem vanrækja þessar
stundir guðdómlegra forréttinda munu
bíða tjón. Um þá má með réttu segja:
"Þér eruð ekki allir hreinir."" Sama
ÓSÝRT BRAUÐ OG ÓGER3AÐ VÍN
"Kristur er enn við borðið sem
páskamáltíðin hefur verið fram borin á.
Ósýrðu brauðin sem etin voru um páskana
eru fyrir framan hann. Páskavínið er á
borðinu óspillt af gerjun. Þessi tákn
notar Kristur til að útskýra sína eigin
flekklausu fórn. Ekkert mengað af
gerjun, ímynd syndar og dauða, gæti
verið tákn "lýtalauss og óflekkaðs
lambs"." Sama bls. 653.
TIL MINNINGAR UM KROSSFESTINGUNA
"Með því að taka þátt í kvöldmáltíð-
inni, hinu brotna brauði og ávexti
vínviðarins, boðum við dauða Drottins
þangað til hann kemur. Svið þjáninga
hans og dauða standa okkur þannig skýrt
fyrir hugskotssjónum." Early Writings
bls. 217.
"Þegar við meðtökum brauðið og vínið
sem eru tákn um brotinn líkama Krists og
úthellt blóð hans, tengjumst við í
7