Bræðrabandið - 01.07.1984, Blaðsíða 16

Bræðrabandið - 01.07.1984, Blaðsíða 16
PATRIARCHS AND PROPHETS ÆTTFEÐUR OG SPAHENN ELLEN G. WHITE Nýlega fengum við þýðingarstyrk til að gefa út bókina Patriarchs and Prophets eftir Ellen G. White. Þessi bók er fyrsta bindið í bókaflokknum Conflict of the Ages (Átök aldanna) . I þeim bókaflokki er Deilan mikla fimmta og síðasta bindið og Desire of Ages (sem oft hefur verið kölluð Þrá aldanna) þriðja bindið. Síðast nefnda bókin kemur út um leið og prentsmiðjan okkar í Finnlandi getur prentað hana sem verður fljótlega eftir að þeir hafa sjálfir prentað þá bók á finnsku. Bókin verður ríkulega myndskreytt með tveggja dálka blaðsíðum og í tveim bindum. Allur bókaflokkurinn, fimm bindin, verður í átta bindum sem er nýmæli. ÚRDRÁTTUR FRÁ PENNA ELLEN WHITE ÚR BÓKINNI PATRIARCHS AND PROPHETS BLS. 85-89 Enok gekk með Guði í 300 ár. "Þessi ganga hans var ekki í sýn eða leiðslu, heldur í öllum skyldustörfum daglega lífsins. Hann gerðist ekki einsetumað- ur, sem lokaði sig algjörlega frá umheiminum, því að hann hafði verk að vinna fyrir Guð í heiminum. í fjöl- skyldunni, í samneyti sínu við aðra menn, sem eiginmaður og faðir, vinur og borgari var hann hinn staðfasti, dyggi þjónn Drottins. Hjarta hans var í samræmi við vilja Guðs, því að "mega tveir menn verða samferða, nema þeir mæli sér mót" (Amos 3,3). Og þessi helga ganga með Guði hélt áfram í 300 ár. Það eru fáir kristnir menn, sem ekki væru miklu einlægari og leituðu meira eftir Guðs vilja, ef þeir vissu, að þeir ættu aðeins stuttan tíma eftir ólifað eða að koma Drottins væri rétt fyrir dyrum. En trú Enoks óx því meir og kærleik- ur hans varð því sterkari eftir því sem aldirnar liðu. Enok var maður, sem átti sterkan og mjög þjálfaðan huga og bjó yfir mikilli þekkingu. Honum hlotnuðust sérstakar opinberanir frá Guði. En þótt hann væri í stöðugu samfélagi við himininn og hefði ávallt fyrir augum hinn guðlega mikilleika og fullkomnun, þá var hann þó einn hinna auðmjúkustu meðal manna. Því nánara samfélag hans við Guð, því dýpri var tilfinning hans fyrir eigin veik- leika og ófullkomnun.... Enok ... varði ... miklum tíma ... til íhugunar og bænar. Þannig beið hann frammi fyrir Guði og leitaði skýrari skilnings á vilja hans, svo að hann mætti framkvæma hann. Fyrir honum var bænin eins og andardráttur sálarinnar. Hann lifði í andrúmslofti himinsins. ... "Sælir eru hjartahreinir. því að þeir munu Guð sjá," (Mt 5.8). I 300 ár hafði Enok leitað eftir hreinleika sálarinnar, að hann mætti vera í samræmi við himininn. Dag eftir dag hafði hann þráð nánari tengsl og nánara og nánara varð þetta samfélag, uns Guð tók hann til sín. Hann hafði staðið við þröskuld hins eilífa heims, aðeins skref á milli hans og lands hinna sælu, og nú opnuðust hliðin og gangan með Guði, sem hafði varað svo lengi á jörðinni, hélt áfram, og hann gekk gegnum hlið hinnar helgu borgar - hinn fyrsti á meðal mannanna að ganga þar inn." Systir White segir okkur, að hin guðlega lyndiseinkunn þessa spámanns tákni þá helgi, sem þeir verði að hafa öðlast, sem endurleystir verði frá jörðinni, þegar Jesús kemur aftur. Þá mun illska og óguðleiki verða mikill, en eins og Enok mun fólk Guðs leita hreinleika hjartans og samræmis við vilja hans, uns þeir endurspegla líkingu Krists. Eins og Enok mun það segja fólkinu frá endurkomu Clesús og þeim dómum, sem vitjað mun verða, og með guðlegum samræðum og fordæmi munu þeir álasa syndir hinna óguðlegu. Eins og Enok var hafinn upp til himins, áður en heiminum var eytt í vatni, þannig munu hinir réttlátu, sem á 16

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.