Bræðrabandið - 01.07.1984, Blaðsíða 12

Bræðrabandið - 01.07.1984, Blaðsíða 12
stöðin er við Atlandic Road í Serakunda þar sem Dr. Louis Nielsen og kona hans Rut vinna að því er virðist 24 tíma í sólarhingnum. Þeim til aðstoðar er Esther systir Rutar og svo innfæddir. Dr. Nielsen er forstöðumaður kristni- boðsstöðvarinnar og stjórnar þar ýmsum verkefnum. Við kristniboðsstöðina er fræðsla fyrir fullorðna í endurnýjaðri stjórnunarbyggingu. Óskar Sensen trésmiður frá Skodsborg heilsuhælinu, sjálfboðaliði sem nú er kominn á eftir- laun kom og hjálpaði til í nokkra mánuði. Einnig er veitt fullorðins fræðsla í félagsmiðstöðinni við kirkjuna okkar í Kanifing. Þessi sama bygging er notuð sem barnaskóli á morgnana. Börnin munu fljótlega fara í skóla í New Oeshwang þar sem hinn nýji skóli mun gera það mögulegt fyrir 400 börn að fá menntun. Þetta verkefni er að mestu leyti fjármagnað af SIDA (Þróunnarsamvinnu- stofnun Svíþjóðar) og mun skólinn verða tekinn í notkun í haust. IIDA (Sam- vinnuþróunarstofnun íslands) veitti styrk í vatnsöflunarverkefni við skólann. Grunnskólamenntun mun verða veitt á morgnana og fullorðnir geta svo komið í skólann á kvöldin og síðdegis. Níutíu prósent fullorðinna kunna ekki að lesa né skrifa og 40% yngri kynslóðar- innar skortir enn viðunandi menntun. Hinir fullorðnu læra ensku, stærð- fræði, sauma, tréiðn og landbúnað. Dr. Nielsen er ekki aðeins skólamaður og guðfræðingur, hann er einnig garðyrkju- maður með matjurtagarða sem sitt sérsvið. Konan hans og Esther kenna heimilisfræði. Þeim til aðstoðar er Samuel Mendy sem er prestur og kennararnir Elisabeth Frazer, Sampa Korea, Oalimank Gibba, og Ooseph Writer, allt innfæddir menn. Það er búið að grafa brunna á New Oeshwang svæðinu og fljótlega munu þeir hafa eigin vatnsturn og áveitukerfí svo að þorpsbúar geti ræktað grænmeti sjálfir og auk þess eru þarna tvö önnur garðyrkjusvæði. SENIGAL: Eftir að við vorum búnir að vera í Gambíu heimsóttum við sjúkrastöð aðventista í Niaguis, ekki langt frá Ziquinchor í Suður Senigal. Sjúkraskýl- ið mun fljótlega verða betrumbætt og gert að sjúkrastöð með 12-16 rúmum og aðallega sinna því hlutverki að mæður og börn. Hjúkrunarkonan Ishmael Kongo frá Fílabeinsströndinni og aðstoðar- hjúkrunarkona hafa ábyrgð á heislugæslu 11 þorpa þar á meðal holdsveikraþorps. Á fundi með fulltrúum þorpanna varð það fljótlega ljóst hversu mikils virði sjúkraskýlið var íbúum þessa svæðis og sérstaklega var þeim hlýtt til íshmael Kongo. Ishmael heimsækir þorpin og kennir fólkinu grundvallarmeginreglur hreinlætis og heilbrigðis. Þegar sjúkrastöðin verður opnuð mun verða þörf á meira starfsfólki til heilbrigðis og kennslustarfa - presti/kennara, hjúkrun- arkonu og ljósmóður. SIERRA LEONE: Oft og mörgum sinnum hefur sagan verið sögð af holdsveikra sjúkrahúsinu í Masanga og jafnvel fest á kvikmynd. Masanga er staður þar sem fólk fer til þess að hjálpa fólki. Dr. Roland og Birgitta Kazen, Dr. Lars Goran Westmann, hjúkrunarkonan Betty Hewitt, sjúkraþjálfarinn Max Chevalier og aðrir starfa saman ásamt stórum hópi innfæddra í Sierra Leone til hjálpar holdsveikra- og lömunarveikissjúklingum. Terre des Hommes (Holland, SIDA, (Svíþjóð) og NORAD (Noregur) hjálpa fólki til að hjálpa fólki. Vinir Masanga senda peninga til að hjálpa við menntun barn og fullorðinna. Að lækna fólk er eitt. að kenna þeim iðn svo þau geti séð fyrir sér er annað. Fólkinu er kennt að rækta grænmeti og cassava til þess að lifa af. í nágrenni Masanga eru reknir litlir grunnskólar. Rekstur þeirra er möguleg- ur vegna gjafa vina og ættingja þeirra sem starfa við Masanga. Hvað þarf til til þess að reka stofnun með 150 sjúklinga innan dyra og miklu stærri hóp göngusjúklinga? Svarið er: farartæki til þess að flytja þá til sjúkrahússins alls staðar að af landinu og sjúkragögn. Á meðan við heimsóttum Masanga notaði Dr. Kasen síðustu gifsumbúðirnar sem til voru en þær eru notaðar eftir uppskurð á höndum og fótum. Hvar átti að fá meiri gifsumbúðir og hvenær og hvað mundu þær kosta? Rannsóknarstofan þurfti nýjar birgðir af efnum. Einnig er þörf á lyfjum fyrir sjúklingana og holdsveikraeftirlitið í þorpunum. Þá vantar bækur og önnur kennslugögn. Sem betur fer þarf maður ekki að ferðast alla leið til Masanga til þess að rétta hjálparhönd. Ávísana- hefti og penni getur komið í staðinn fyrir það! 12

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.