Bræðrabandið - 01.07.1984, Síða 10

Bræðrabandið - 01.07.1984, Síða 10
FÚLK A9 HJÁLPA PÓLKI Eftir Hermann 3. Smit, aðstoðarforstjóra Hjálparstarfs aðventista í Norður-Evrópu Það er ekki hægt að lýsa þessu betur. Þróunar- og hjálparstarf er fólk að hjálpa fólki. Allt veltur á því að fólk er reiðubúið að hjálpa fólki. 3esús sagði að hinir blessuðu föður hans væru þeir sem bættu úr lífskjörum annarra, sem gæfu hinum hungruðu að borða og hinum þyrstu að drekka sem tækju á móti heimilislausum og sem klæddu hina bástöddu. Að gera það sem þarf að gera fyrir hina minnstu smælingja í fjölskyldu mannkynsins sagði 3esús að myndi verða úrslitaþáttur í lokadómnum. Það virðist sem ekkert rúm sé í ríki Guðs fyrir þá sem ekki láta trú sína koma fram í samskiptum sínum við aðra menn. Einungis trú sem starfar öðrum til góðs ekki síður en okkar eigin sálum mun færa okkur eilífðina. Kærleiki okkar til Guðs og annarra manna verður að koma fram í ummönnun fyrir öðrum og viður- kenningu á þeim sem bræðrum okkar og systrum í fjölskyldu Guðs. Með því að hjálpa öðrum komumst við nær meistaranum og þjóninum sem gerðist eitt með mannlegum verum og uppfyllti þarfir þeirra. "Eins og faðirinn hefur sent mig, eins sendi ég yður", sagði 3esús. AFRÍKA A OKKAR DÖGUM Þegar maður ferðast um Vestur-Afríku sér maður sannleikann í orðum Edem Kodjo (fyrrverandi aðalritara einingarsamtaka Afríku), "okkar forna álfa er nú á barmi hörmunga og ógæfu, á fleygiferð niður í hyldýpi átaka, í heljargrageipum ofbeldis. Horfið er brosið og gleðin í lífinu." (Time, 16/1/84) Myndin sem dregin er upp í Time greininni "A continent Gone Wrong" er sú að eftir að Afríka hefur notið sjálf- stæðis í heila kynslóð stendur hún andspænis erfiðum aðstæðum og erfiðum valkostum. Matvælaframleiðsla hefur minnkað í flestum löndum og flest eru á barmi hungursneyðar. Heilbrigðisþjónust- an, skólamál og önnur þjónusta yfirvald- anna er í ólestri. Samgönguæðar vega- kerfis og járnbrauta hefur hrakað. Tuttugu prósent álfunnar er eyðimörk og sérfræðingar spá því að á næstu 50 árum gæti 45% af Afríku verið eyðimörk ef ekki verður breyting á því hvernig landið er notað núna. Milljónir Afríkubúa eru heimilis- lausir og hafa orðið flóttamenn af pólitískum og efnahagslegum ástæðum. Fólksfjölgun og flótti af landsbyggðinni til borganna hefur valdið yfirvöldum gífurlegum vandamálum þar eð landbúnaður hefur verið vanræktur vegna áherslu á iðnþróun og matvælaframreiðslan er því nú ákaflega lítil. Afríka þarf á hjálp að halda án fordóma og án gagnrýni á stjórnarstefnu yfirvalda sem valin hefur verið til þess að leiða fólkið í gegnum þau vandamál og takast á við þau verkefni sem fylgja því að vera sjálfstæð þjóð. Þjóðir Afríku, eins og svo mörg þróunarlönd, þurfa fólk sem hjálpar fólki. ST3ÓRNSÝSLU- 0G DREIFINGARKERFI (infrastructure) Þróunarsamvinnustofnanir ýmissa ríkja eru einmitt að leita að aðilum sem eru færir um að koma aðstoðinni áfram þannig að fólkið fái hjálpina. Það verður að vera hægt að rekja þá aðstoð sem veitt er þannig að hægt sé að leiðrétta mistök og gera umbætur. Þegar stjórnsýslu- og dreifingarkerfi hefur verið þróað verður fólk lykilþáttur í dreifingu fjármuna og í því að miðla af reynslu og kenna og þjálfa. Auk gífurlega stórra fjárhæða er þróunarhjálpin algjörlega háð hinum mannlega þætti. Höndin sem út er rétt 10

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.