Bræðrabandið - 01.07.1984, Page 11
Sjúkraskýlið í
Niaguis, S enegal
til þess að taka á móti hjálp biður ekki
aðeins um efnisleg gæði heldur er þessi
hönd einnig að leita eftir stuðningi og
samúð.
Að gefa peninga án þess að gefa
okkur sjálf hefur litla þýðingu. Hönd
vanþekkinga, sjúkdóma, atvinnuleysi og
ólæsis biður um hönd sem leiðbeini,
elski og styrki.
Söfnuður Sjöunda dags aðventista er
alþjóðlegur söfnuður með ákjósanlegt
stjórnsýslu- og dreifingarkerfi sem nýta
mætti sem farveg fyrir aðstoð stjórn-
valda eða þróunarsamvinnustofnana. Fá
samtök hafa stjórnsýslu- og dreifingar-
kerfi sem er eins vel hannað til þess að
fólk hjálpi fólki eins og söfnuður
Sjöunda dags aðventista. Þetta kemur
vel í ljós þegar maður flettir í árbók
Sjöunda dags aðventista. Telex og
símaþjónusta gerir það mögulegt fyrir
deildir, sambönd, samtök og stofnanir
safnaðarins að hafa samskipti og
boðskipti án mikilla erfiðleika. Auðvelt
er að flytja fjármuni frá einu landinu
til annars. Stjórnsýslu- og dreifingar-
kerfi á hinum ýmsu landsvæðum gera það
mögulegt fyrir viðtökuaðilann að dreifa
sjóðum og vörum á skjótan og góðan hátt.
Sem aðventisti á ferðalagi frá landi
til lands í þróunarlöndunum er maður
stoltur og jafnframt undrandi hversu
skipulag safnaðarins virkar bæði skjótt
og vel. Hvar sem maður kemur tekur
fulltrúi safnaðarins á móti manni og
hann veit nákvæmlega hvað þarf að gera
og hvert á að fara. í flestum tilfellum
er starf safnaðarins vel þekkt og
nauðsynleg formsatriði við landamæri, í
tolli og á öðrum skrifstofum yfirvald-
anna valda ekki miklum töfum. Söfnuður-
inn hefur getað komið fólki fyrir á
stöðum og í stöðum þar sem þeir virðast
nýtast til fullnustu.
Þegar fjármunir eru í boði til þess
að byggja skóla, sjúkrastöð eða munaðar-
leysingjaheimili þá verður það fólk sem
þarf til þess að líta eftir verkefninu
og þjálfa innfædda til starfa jafnvel
ennþá mikilvægara en fjármunirnir
sjálfir. Fólk að hjálpa fólki með eða
án fjármuna.
Styrkur stjórnsýslu- og dreifinga-
kerfis Sjöunda dags aðventista er fólk.
Það er maðurinn, konan, sjálfboðaliðinn
og kennarinn sem gerir það að verkum að
áætlunin tekst.
MÁ ÉG KYNNA FYRIR YKKUR FÓLKIÐ SEM
H3ÁLPAR FÓLKI
GAMBÍA: í þessu landi eru mörg
verkefni í nágrenni Banjul undir
yfirumsjón aðventista. Kristniboðs-
11