Bræðrabandið - 01.07.1984, Side 13
Hluti af heimavist
stúlkna viö Techiman
iönskólann í Ghana
GHANA: Þetta er land sem þarfnast
alls - en aðallega matvæla og hjúkrunar-
gagna. Alþjóðahjálparstarf aðventista
(ADRA - International (áður SAWS)) og
Norður-Evrópudeild hjálparstarfsins
ásamt aðstoð frá stjórnvöldum í Banda-
ríkjunum og Evrópu hafa sett upp
matvælakerfi. Vörubifreiðir hafa verið
keyptar og leigðir vörubílar fengið
rafgeyma og hjólbarða svo að hægt sé að
koma matvælunum til dreifingarstöðvanna.
Heikki Luukko frá Hjálparstarfi
aðventista í Finnlandi og Öan Reith frá
Hjálparstarfi aðventista í Hollandi
samræmdu aðgerðir þarna og gáfu skýrslu
um þetta verkefni upp á 3 milljónir
Bandaríkja dala.
Stjórnsýslu- og dreifingarkerfi
aðventsafnaðarins í Ghana og fotstöðu-
maður safnaðarins þar séra Bediako og
starfslið hans tryggðu snurðulausa og
góða framkvæmd þessa verkefnis.
Techiman, iðnskólastofnun fyrir stúlkur,
var opnuð og vígð á meðan á heimsókn
okkar stóð. Á þessari hátíðarstund
urðum við vitni að þakklæti og gleði
þeirra sem fengu hjálpina, þakklæti til
samvinnuþróunarstofnananna og sjálfboða-
liðanna sem störfuðu í mörg ár til þess
að ná þessu lokamarki.
Verkefnisstjórinn Arnold Sóreide kom
fyrst ásamt fjölskyldu sinni, síðan kom
hann aftur einn til þess að ljúka við
verkið. Hvað hefði verið hægt að gera
án Willis Palm, annars sjálfboðaliða og
Lise Svendsen og Carita Krekling, sem
störfuðu sem hjúkrunarfræðikennarar og
heimilisfræðikennarar, fólk frá Norður-
löndum sem yfirgáfu norðlæg heimalönd
sín til þess að þjóna undir hitabeltis-
sól? Grace Amankwa sem er húsmóðirin og
Stella Lartey heimilisfræðiskennarinn og
allir hinir hjálpa á einn eða annan veg
ungu stúlkunum til þess að verða betri
mæður og kennarar. Fólk að hjálpa fólki.
Litarháttur, kynþáttur og trúarbrögð
eru engar hindranir. Andi einingar og
samstöðu fjarlægir sérhvern ásteitingar-
stein auðveldlega. Þannig starfar
einnig Andi Guðs.
ASSAMANG: Sjúkrastöð x litlu þorpi
í Mið-Ghana. Stórt svæði er háð því að
fólk hjálpi fólki í Assamang sjúkrastöð-
inni. Tuttugu til tuttugu og fimm þúsund
manns treysta á þessa sjúkarastöð með
heilsugæslu og minniháttar aðgerðir.
Mæður fajra á þessa sjúkrastöð til þess
að eiga börn sín. Þarna er þörf á
lækni. Hver vill fara og starfa hér?
Læknir á meðal innfæddra eða einhver frá
Evrópu? ICCO frá Hollandi og SIDA frá
Svíþjóð hafa sameiginlega lagt fram
fjármuni ásamt Aðventsöfnuðinum.
Þessi sjúkrastöð er vígð fólkinu í
Ghana og Guði og færir mikinn fögnuð og
þakklæti. Megi hún vinna vel og eignast
traust og trúnað þeirra sem þar njóta
umönnunnar.
TOGO: Þarna er sjúkrastöð nálægt
bænum Glei ekki langt frá frumstæðu
þorpi. Þetta fólk er lánsamt að búa
svona nálægt heilsugæslustöð. Eins og
með öll verkefnin hefur byggingin verið
framkvæmd í samráði við heilbrigðisyfir-
völd í landinu. Þarna eru deildir fyrir
verðandi mæður, fæðingadeildir og
barnadeild.
Bifreið útbúin hjúkrunargögnum fer
13