Bræðrabandið - 01.07.1984, Qupperneq 19
**FRA STARFlNU^a
SaÓNVARPSÞÁTTURINN "RITAÐ ER".
Þegar sjónvarpsþáttur George
Vandeman sem heitir "It Is Written"
(Ritað er) hafði sent út fyrstu þættina
undir nafninu "Sjöunda dags aðventistar
- hverjir eru þeir?" hringdu 2700 manns
sem óskuðu eftir að fá bók Vandemans
"Cry Of A Lonely Planet". 276 báðu um
rit um trú aðventista, 58 vildu fá
heimilisfang nálægustu aðventkirkju, 56
innrituðu sig í Biblíubréfaskólann, 62
báðu um fyrirbæn og 19 óskuðu eftir að
prestur læsi með þeim Biblíuna.
BÓKSALA í SVÍÞ3ÓÐ
í Svíþjóð varð 132% hækkun í bóksölu
frá árinu áður. Þessi mikli árangur
hefur náðst vegna nemenda frá Afríku og
Indlandi sem selja bækur í sumarleyfinu
sínu.
BRETLAND
í Bretlandi bættust við í söfnuðinn
á árinu 1983 825 meðlimir. Meðlimatala
Sjöunda dags aðventista á Bretlandseyjum
er nú 15.643.
SVÍKJÓÐ
Á árinu 1983 bættust 91 meðlimur í
söfnuð Sjöunda dags aðventista í
Svíþjóð. Fjörutíu prósent þeirra sem
skírn tóku voru undir þrítugsaldrinum.
HERNAÐARÚTG3ÖLD í HEIHINUH
í öllum heiminum voru hernaðar-
útgjöld á árinu 1983 samsvarandi tuttugu
og tveim þúsund og fimmhundruð milljörð-
um íslenskra króna. Það mun vera erfitt
að gera sér grein fyrir hvílíkar
gífurlegar fjárhæðir hér er um að ræða.
En þetta mun þá vera um tveir og hálfur
milljarður á hverri klukkustund eða sem
næst sjöhundruð og fjórtán þúsund krónur
á hverri sekúnku allt árið um kring. Til
samanburðar mun öll aðstoð við þróunar-
löndin um heim allan aðeins ná þeirri
upphæð sem hernaðarútgjöldin eru í 18
daga.
NYIR STARFSHENN
Eric^Guðmundsson^ Nýlega lauk Eric
Guðmundsson M.Div. prófi frá Andrews
University í Michigan í Bandaríkjunum.
Hann mun vinna að útbreiðslustörfum og
taka við af Dóni Hj. Oónssyni sem
prestur Reykjavíkursafnaðar um áramótin
en þá er reiknað með að 3ón taki við
auknu starfi á sviði bindindismála.
Verður væntanlega greint nánar frá því í
Bræðrabandinu síðar. Við óskum Eric
innilega til hamingju með prófið og
bjóðum hann og fjölskyldu hans hjartan-
lega velkomin til íslands. Megi Guð
ríkulega blessa hann í starfi svo og
fjölskyldu hans.
Lilja Sveinsdóttir. Það er ekki
ósjaldan sem Lilja Sveinsdóttir frá
Neðri-Hundadal hefur kennt við skóla
okkar, ýmist barnaskólana eða Hlíðar-
dalsskóla. Nú hefur hún verið kölluð til
starfa við Barnaskólann í Reykjavík. Hún
mun taka við skólanum og Oeanette sem
hefur stýrt skólanum undanfarin ár mun
láta af þeim störfum en þó starfa að
hluta við skólann. Við þökkum Oeanette
fyrir vel unnin störf og bjóðum Lilju og
fjölskyldu hennar hjartaníega velkomin
suður. Megi Guð blessa Barnaskólann,
börnin og þá sem starfa við skólann.
Cecilia BjTÖrqvinsdóttir. Hlíðardals-
skóli mun njota starfskrafta Kristins
Olafssonar og konu hans Ceciliu. Þau
munu bæði kenna við skólann en sjálfsagt
falla fleiri störf til eins og þeir
kannast við sem þar hafa starfað.
Kristin höfum við boðið velkominn í
starfsmannahópinn áður og þá sögðum við
reyndar að hann væri frá Egilsstöðum en
hið rétta mun vera að hann er frá
Reykjavík. Cecilia og Kristinn eru bæði
stúdentar frá Tyrifjord Videregaende
Skole í Noregi. Við bjóðum þau hjartan-
lega velkomin til starfa og biðjum Guð
að blessa þau og Hlíðardalsskóla, alla
nemendur skólans og starfslið.
BRÆRRARANDID
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur
ERLING B. SNORRASON
Útgefendur
S. D. AÐVENTISTAR A ISLANDI
19