Bræðrabandið - 01.09.1985, Blaðsíða 6
trúfrelsisdeildar Aðalsamtakanna sagði
að þrátt fyrir framgang í trúfrelsis-
málum í vissum löndum í heiminum væri
víða að trúarhópar væru hindraðir í að
iðka trú sína.
í löndum sem ekki eru kristin er
vaxandi andstaða frá ekki kristnum
trúarbrögðum. í Mið-Austurlöndum lítur
út fyrir að kristin trú líði undir lok.
Búddatrú er aftur í vexti í Austurlöndum
fjær og Tha.iland hefur lýst því yfir að
þar muni engar aðrar kristnar kirkju-
deildir viðurkenndar aðrar en þær 5 sem
þegar hafa fengið viðurkenningu. í
Burundi í Afríku eru Sjöunda dags
aðventistar ekki lengur viðurkenndir sem
loggilt trúfélag. Aðventprédikarar hafa
ekki leyfi til þess að starfa og margir
þeirra eru í fangelsi sökum trúar
sinnar. Fyrir þessu eru margar ástæður
og ein þeirra er að þess er krafist af
öilum borgurum Landsins að þeir vinni á
Laugardögum við þróunarverkefni stjórn-
vaida.
Kristniboðsvíðsjá.
HvíLdardagssíðdegið þann 6. júií var
sérstök hátíðarsamkoma, kristniboðs-
víðsjá, þar sem minnst var fyrsta
trúboóa Sjöunda dags aðventista, dohn
Andrews, sem fór tii Evrópu árið 1874.
Svo komu þar fram hjónin DoyLe og
PauLeen Barnett frá Washington þau höfðu
þá verið 43 ár sern kristniboðar í Kína
og Austuriöndum fjær. Þarnæst komu fram
Dr. Kristian Hogganvik og kona hans frá
Noregi,. Hann hefur verið trúboðslæknirí
Eþíópíu í 30 ár. Martin Mathiesen frá
Takoma Park í Bandaríkjunum var fyrsti
nemendatrúboðinn. Hann fór tii Mexíkó
árið 1959. Þar starfaði hann sem
sjúkrahússprestur. Sonur hans er nú
nemendatrúboði í Zambíu. Meira en
tíuþúsund nemendatrúboðar eða sjáifboða-
Liðar eins og við köiium þá núna hafa
gefið meira en árs vinnu til starfsins
frá 1959.
Þeir sem næst komu fram á þessari
hátíðarsamkomu voru Oohonny 3ohnson,
prstur og kona hans. Hann var áður
hnefaleikamaður í Bandaríkjunum en fann
Desú sem sinn frelsara í aðventboðskapn-
um. Hann hefur starfað í 28 ár í Afríku
sem skólastjóri, sjúkrahúsprestur og
útbreiðsluprédikari í Líberíu, Ghana og
Nígeríu. Síðan kom löng röð kristniboða
í sínum litríku þjóðbúningum og með fána
síns lands. Þessari kristniboðsskrúð-
göngu var stjórnað af Paul Sundquist.
Þessi hátíöarsamkoma ásamt krisytniboðs-
skrúðgöngunni er einn af hápunktum
heimsráðstefnunnar sem allir biða eftir
með mikilli eftirvæntingu.
Deildarformenn
Formenn hinna ýmsu heimsdeilda eru
sem hér segir:
Norður-Ameríku: Charles Bradford.
Suður-Kyrrahaf: Walter Scragg; Austur-
Afríka: Bekele Haye; Austurlönd fjær:
Ottis Edwards; Suður-Evrópa/Norður-
Afríka: Edwin Ludescher; Mið-Amerika:
George Brown; Suður-Ameríka: Ooao Wolf;
Suður-Asía: Gerald Christo;
Afríka/Indlandshaf: Oacob Nortey og í
okkar deild sem viðköllum, hér til
bráðabirgaö Þver-Evrópudeild þar til
betra nafn fæst var Oan Paulsen endur-
kjörin sem formaður, Pekka Pojola sem
ritari og Oohn Muderspach, sem gjald-
keri. Auk þess voru eftirfarandi
deildarformenn kjörnir: Safnaðarstarfs-
deildin: Donald Lowe, Mark Finley, Dames
Huzzey; Hjáiparstarf aðventista: Heikki
Luukko; Bóksölu- og útgáfustarf: Kaj
Pedersen; Trúfrelsisdeild og Almennings-
deild: Raymond Dabrowski; Menntamál og
???bindindisdeild: Prestadeildin: Mark
Finley; Endurskoðandi Graham R. Barham
og matvæladeildin: Oohn Muderspach.
Meðlimatala safnaðarins
Eftirfarandi tölulegar upplýsingar
sýna hversu langan tíma það hefur tekið
söfnuð okkar aó eignast hverja hálfa
milljón nýrra meðlima.
Fyrsta hálfa milljónin kom á
92 árum (1848-1940).
Önnur hálfa milljónin kom á
15,1 ári (1940-1955).
Þriðja hálfa millj. kom á
9,1 ári (1955-1964).
Fjórða hálfa milljónin kom á
5.7 árum (1964-1970).
Fimmta hálfa milljónin kom á
4.3 árum (1970-1974).
Sjötta hálfa milljónin kom á
3,5 ári (1974-1978).
Sjöunda hálfa milljónin kom á
2.8 ári (1978;1981).
Áttunda hálfa milljónin kom á
2.3 árum (1981-1983).
Níunda hálfa milljónin kom á
1,9 árum (1983-1985).
6