Bræðrabandið - 01.09.1985, Blaðsíða 12
jarðvistardögum hennar vera okkur öllum
til eftirbrevtni. Blessuð veri minning
Kristbjargar Olafsdóttur.
Lilja og Steini.
börnum þeirra ásamt ættingjum hans og
vinum heima.
Oúlíus Guðmundsson.
INGÓLFUR KRISTJÁNSSON
F. 31.okt. 1902 D.7.des. 1984.
FRÁ SXARFINU^
Hann var sonur sæmdarhjónanna
Kristsjáns Þórðarsonar og Guðnýar
Elíasdóttur, sem lengi bjuggu í Reykja-
dal í Vestmannaeyjum. Þau hjónin voru í
þeim 30 manna hóp, sem skírðist í
Vestmannaeyjum árið 1924 og fvrstur
myndaði söfnuð aðventista þar. A næsta
ári skírðist þar annar myndarlegur
hópur, flestir þeirra voru ungir, og var
Ingólfur einn þeirra - þá 23 ára gamall.
Það var á árinu 1928, að ég kynntist
Ingólfi, og vorum við starfsfélagar um
tíma. Hafði hann þá orð á því,að hugur
hans stæði til að afla sér menntunar í
skóla okkar erlendis, og varð þetta
sameiginlegt áhugamál okkar. Árangurs-
ríkt bóksölustarf okkar árið 1929 kom
því til leiðar, að þessi draumur varð að
raunveruleika, og við innrituðumst sem
nemendur í Nærum Missionsskole um
haustið. Á næsta ári hóf Ingólfur
sjúkraþjálfunarnám í Osló, og að því
loknu var hann beðinn að taka að sér
starf í endurhæfingarstöð okkar í
Kaupmannahöfn. Þar vann Ingólfur
ævistarf sitt við góðan orðstí og miklar
vinsældir sjúklinga í rúmlega 40 ár.
Hin síðari ár var Ingólfur farinn að
heilsu, og síðustu tvö árin dvaldi hann
í hjúkrunarheimili. Þetta tímabil sagði
hann hafa sína björtu hlið. "Minningar
æskuáranna og bernskuheimilisins eru mér
svo skýrar í huga - yndislega eyjan mín,
og það, sem þar gerðist, er mér allt svo
dýrmætt", sagði hann. Þeir, sem lifðu
fyrstu ár safnaðarins í Vestmannaeyjum
og kynntust þeim áhrifum, sem boðskapur
okkar skapaði þar, munu skilja, hvað
hann átti við. Minningar þess tíma báru
birtu og blessun yfir ævikvöld hans. -
Blessun Guðs fylgi eiginkonu hans,
HLÍÐARDALSSKÓLI - NÝR SKÓLAST3ÓRI.
í sumar lét Einar Valgeir Arason af
störfum sem skólastjóri Hlíðardalsskóla
og við tók 3ón Hjörleifur Oónsson. Um
leið og við þökkum Einari hjartanlega
fyrir vel unnin störf á skólanum sem
kennari síðast liðin 5 ár og síðasta
árið sem skólastjóri og einnig konu hans
Karen fyrir kennslu og húsmóðurstörf sem
hún hefur unnið af stakri samviskusemi
og dugnaði, bjóðum við 3ón Hjörleif
Oónsson og konu hans Sólveigu Oónsson
hjartanlega velkomin til starfa. Það
þarf ekki að kynna Oón og Sólveigu því
fáir ef nokkrir hafa unnið jafn lengi
við skólann og þau. Megi Guð blessa
Hlíðardalsskóla og allt það starf sem
þar er unnið, starfslið og nemendur.
H3ÁLPARSTARF AÐVENTISTA -HAUSTSÖFNUNIN
Haustsöfnunin hefur gengið vel það
sem af er þegar þetta er skrifað 22.
september. Ferðirnar út á land voru
farnar í ágúst og var góð hækkun á
Akureyri og bæði í austur- og vestur-
ferðinni. Á Snæfellsnesi var einnig
hækkun. í heimasöfnuðunum hefur
haustsöfnunin verið í gangi frá 1.
september og sérstaklega í Reykjavík
hefur þátttaka verið góð. Þegar þetta
blað kemur í hendur lesenda verður
söfnun væntanlega lokið en leyfi er
fyrir söfnun til 10. október. Væntanlega
verður hægt að skýra frá lokatölum
söfnunarinnar í ár í desemberblaðinu en
að venju verður nóvemberblaðið bæna-
vikulestrarnir.
12