Bræðrabandið - 01.09.1985, Side 13
i^FRÁ STARFINU^*
SKÓLADAGHEIMILIÐ í VESTMANNAEY3UM.
SKóladagheimilið í Vestmannaeyjum er
að hefja 4. starfsár sitt eða 3. heila
árið. Eins og í fyrra og þar áður er
fullskipað í skóladagheimilið og það er
rekið með svipuðu sniði og verið hefur
af Ástu Arnmundsdóttur og Kristínu
Eggertsdóttur. Bæjarbúar eru mjög
ánægðir með þessa starfssemi skóladag-
heimilisins og þá ekki síður börnin en
sum þeirra eru að koma í þriðja sinn,
þriðja árið í röð, og auðvitað bætast
alltaf ný börn við.
Rétt áður en skóladagheimilió
byrjaði núna í haust hringdi Smári
Guðsteinsson, sem býr í Vestmannaeyjum,
í skóladagheimilið og spurði hvort ekki
væri þörf fyrir leikföng. Því var
auðvitað svarað játandi og þá komu þau
hjónin Smári og kona hans með 2 fulla
kassa af leikföngum sem var kærkomin
viðbót við það sem fyrir var í skóladag-
heimilinu. í vor var vetrarstarfinu
lokið á hefðbundin hátt sem er rútuferð
um Eyjuna með Páli Helgasyni sem ávallt
hefur farið með börnin og starfsfólkið
ókeypis í skoðunarferð og fjöruferð.
Þetta er ákaflega vinsæll og skemmtileg-
ur háttur að ljúka skóladagheimilis-
starfinu að vori.
Það er mikið gleðiefni að vita af
þessari blómlegu starfsemi safnaðarins í
Vestmannaeyjum undir góðri og öruggri
stjórn Ástu Arnmundsdóttur og þá er
skóladagheimilið ekki síður í góðum
höndum þar sem Kristín Eggertsdóttir er.
BÓKSÖLUSTARFIÐ
Bóksalan í sumar hefur gengið mjög
vel og nemendur frá Newbold College hafa
komið hér að venju og farið um landið á
3 mánuðum eða svo. Þeir sem voru við
bóksölu í sumar heita: Sergio
Bertarelli, Cleber Felix, Hanz
Gutierres, Miquel Gutierres, Vera
Gareia, Yri Gomes, Itamar Siqueira og
Ashley Kongari.
Helstu bóksölubækurnar hafa verið
Trúfastir vinir, fimm binda bókaflokkur
og einnig Sögur Biblíurmar, tíu binda
bókaflokkur. Markaðurinn er svo til
mettaður hvað þessar bækur snertir þó
alltaf komi upp nýjar kynslóðir sem hafa
áhuga á þessum bókum. Þá hefur einnig
verið seld matreiðslubókin Hollt og gott
og litlu fimm bækurnar bæði þær fyrri
eftir Vandfeman og hinar síðari eftir
ýmsa höfunda. En nú er von á nokkrum
nýjum bókum næsta sumar. Aðal bóksölu-
bókin mun verða Biblíusögur í mynda-
söguformi og væntanlega verður ný
barnasögubók.
Um miðjan september s.l. kom hingað
formaður bóksölu og bókaútgáfustarfs
Norður-Evrópudeiidarinnar Kaj Pedersen.
Hann kynnti sér starfsemi bókaforlagsins
og verslunarinnar og miðlaði okkur af
mikilli og góðri reynslu sinni. Hann
lét í ljósi ánægju með starfssemi
bókaforlagsins og óskaði okkur til
hamingju með þessa skemmtilegu verslun
forlagsins.
FRÁ BARNASKÓLANUM
Barnaskólinn okkar hér í Reykjavík
hóf starf sitt þ. 9.þ.m.
Á síðasta skólaári urðu börnin 15
talsins, en þá var nú "þröngt setinn
bekkurinn" einkum í eldri deild. í ár
eru börnin aðeins 9, 6 í eldri deild en
3 í þeirri yngri. Að vísu er þetta ekki
æskileg þróun en við vonum að breyting
verði á þessu skólanum í hag.
Börnin virðast una sér vel við hinar
venjulegu námsgreinar, þó held ég að
smíði, föndur og leikfimi í þrengslunum
svo og að baka kökur séu mesta tilhlökk-
unarefnið. Ef til vill má segja að í
sjálfu sér sé ólíkt þægilegra að börnin
eru ekki fleiri en þetta. Okkur sem
störfuðum hér á síðasta ári, fannst nóg
til um þrengslin hér, svo við urðum að
skáskjóta okkur á milli borðanna.
Við lítum með mikilli eftirvæntingu
fram á við til þess tíma er við fáum
nýtt húsnæði með betri vinnuaðstöðu
fyrir okkur sjálf og börnin. Við vonum
fastlega að söfnuðurinn sjái hina brýnu
þörf fyrir nýjum barnaskóla.
Börnin okkar eru lömb hjarðarinnar.
Engin hjörð heldur tilveru sinni án
lamba. Þannig ekki heldur söfnuður án
barna og unglinga.
Biðjum fyrir börnunum okkar og cliu
okkar skólastarfi.
13