Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Ólgavegna
Straums
Fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í menningarmála-
nefnd Hafnarfjaröar, Helga
Ragnheiður Stefánsdóttir,
hefur óskað eftir því að
málefni listamiðstöðvar-
innar Straums verðir rædd
á næsta fundi nefndarinn-
ar. DV greindi frá því í vik-
unni að eldur hefði komið
upp í Straumi og í kjölfarið
hefði lögreglan lagt hald á
kannabisplöntu sem lista-
maðurinn Tryggvi Hansen
ræktaði í húsinu. Málið var
tekið fyrir á bæjarstjórnar-
fundi í Hafnarfirði á þriðju-
daginn og vilja bæjarfuil-
trúar að málið verði kann-
að.
Vill ekki
samstöðu
Framsóknarkonan Eirný
Vals sagðist verða fyrir von-
brigðum ef eftirmæli
flokksþings ffamsóknar-
manna væru að fufltrúar
hefðu verið sammála, sam-
stíga og ánægðir með stöð-
una. Hún vonast eftir átök-
um á flokksþinginu í grein
sem hún skrifar á vef fram-
sóknarmanna, Hrifla.is.
Hún segir að það versta
sem getur komið fyrir
stjórnmálaafl sé að Uðs-
menn kjósi heldur að þegja
en halda fram annarri
skoðun en varðhundar.
Henni finnst Framsóknar-
flokkurinn of hægrisinnað-
ur og óttast að samstarfið
við Sjálfstæðisflokkinn
verði banabiú.
Fimm þúsund
króna styrkur
Ákveðið hefur verið í
Rangárþingi ytra að sveitar-
félagið styrki Rauða kross-
inn með peningagjöf eftir
að beiðni um slíkt
barst frá samtökun-
um. Samkvæmt
ákvörðun hrepps-
ráðsins nemur styrk-
urinn fimm þúsund
krónum. Á fundi sínum á
fimmtudag neitaði hrepps-
ráðið hins vegar að veita
styrki til nemenda Garð-
yrkjuskólans á Reykjum, til
SÍBS-blaðsins og til Land-
samtakanna Hjartaheiila.
Læknamistök gerðu Sævar Líndal Helgason á unga aldri að öryrkja fyrir lífstið.
Hann hefur staðið á eigin fótum frá 16 ára aldri. Sævar hefur verið á götunni
eftir að honum var hent út úr listamiðstöðinni Straumi í Hafnarfirði.
Sævar Líndal Helgason, 26 ára öryrki, neyðist til að selja lyf sem
læknar stíla á hann vegna örorku til að hafa í sig og á. Sævar seg-
ist þekkja menn í rugli sem séu tilbúnir að borga mikla peninga
fyrir lyfin hans og á meðan hann hefur ekki til hnífs og skeiðar
eigi hann ekki annarra kosta völ. Sævar hefur verið í húsnæðis-
hraki síðan um jólin og bjó um tíma í bflnum sínum ásamt unn-
ustu sinni.
Saga Sævars er alvarleg áminn-
ing um það að ekki er allt með felldu
í velferðarsamfélaginu á íslandi.
Fullyrðingar Sævars eru grafalvar-
legar en samkvæmt Matthíasi Hall-
dórssyni aðstoðarlandlækni er lækn-
um skylt að hætta að skrifa upp á lyf
fyrir Sævar ef hann verður uppvís að
því að selja þau.
Læknar hrúga á mig lyfjum
„Það er erfitt að geta ekki unnið
fyrir sér,“ segir Sævar en hann er
með slit í mjöðminni vegna mistaka
„Þetta er bara það
semég þarfað gera
til að eiga fyrir mat."
sem gerð voru í uppskurði á
mjöðminni þegar hann var aðeins
fimm ára gamall. „Það eina sem
læknarnir gera er að hrúga á mig
verkjalyfjum sem ég neyðist til að
selja tfl að hafa í mig og á,“ segir
hann og útskýrir að þetta sé aðeins
gert í neyð þar sem örorkubæturnar
dugi ekki. „Ég þekki menn sem vilja
éta þessi lyf og vilja kaupa þetta af
mér, þetta er bara það sem ég þarf
að gera tfl að eiga fyrir mat," segir
hann.
Velferðarkerfið hefur brugð-
ist
„Mér er sagt að ég fái svo liúar
bætur því ég sé svo ungur en það
er erfitt að vita tfl þess að það eru
menn úti í bæ sem eru að drekka
kardimommudropa með hærri
bætur en ég, ég fæ lægri bætur en
Lalli Johns,“ segir Sævar og segist
sár og reiður út í velferðarkerfið
sem hann segir að hafi brugðist
sér.
„Það er erfitt að vera upp á aðra
kominn en ég get ekkert farið nema
til féló en kerfið er mér mjög erfitt.
Umsókn mín um félagslegt hús-
næði hefur týnst þrisvar sinnum
hjá féló og ég hef verið á götunni
síðan á þrettándanum.
Hústökumaður í Straumi
Ég þurfti að sofa í bflnum mín-
um um tíma eða þangað til hann
eyðflagðist og síðan var ég tfl
skamms tíma uppi í listamiðstöð-
unni Straumi hjá manni sem bjó
þar. Þá hélt ég að þetta væri loksins
að koma hjá mér en komst síðan að
þvf að maðurinn var þarna í leyfisl-
eysi. Hann var að rækta þarna
kannabisplöntur og kveikti í pleis-
inu, húsið hefði lfldega brunnið he-
fði ég ekki náð að slökkva eldinn.
Menningarfulltrúi Hafnarfjarðar
mætti síðan og öskraði á okkur að
snauta burt,“ segir Sævar að lokum
en bætir við að nú fái hann að vera
hjá góðhjörtuðum manni sem veiti
honum og unnustu hans skjól yfir
höfuðið. andrí@dv.is
sína. Hann var með lambhúshettu,
ruddist móður og másandi fram fyr-
ir röðina í bankanum og rumsaði út
úr sér að hann þyrfú firnm þúsund
krónur strax. í stað þess að flýta sér
töfðu gjaldkeramir soninn kærleiks-
ríka og biðu lögreglunnar sem lamdi
hann með kylfú í hnakkann og brák-
uðu nokkur rifbein vegna mótmæla
við handtöku. Bankaránstflraunin er
í rannsókn.
Svaithöföi
Lærum af Geir Ólafssyni
Svarthöfði deilir sárindum stór-
söngvarans Geirs Ólafssonar sem
var hindraður sárkvalinn í að kom-
ast heim til sín að kasta upp þegar
lögreglumenn misskfldu magaveiki
hans sem ölvun.
Fátt er verra en þegar kerfið tekur
viðbragð út frá sínum eigin forsend-
um sem reynast rangar. Kerfið er
nefnflega stórhættulegt því það
heldur að það kunni ekki að hafa
rangt fyrir sér. En stundum er ekki
allt sem sýnist.
Sjálfur hefur Svarthöfði lent í
svipaðri reynslu og Blue Eyes. Fyrir
nokkrum misserum síðan ferðaðist
hann um Italíu og eins og oft tíðkast
var áfengi haft um hönd. Kvöld eitt
hafði Svarthöfði fengið sér um of af
rauðvíni í aðra tána með pítsunni og
galt fyrir með ofurölvun. Sú ölvun
olli því að hann leið dómgreindar-
skort og drakk ótæpflega af blöndu
með nafninu Sex on the Beach. Á
leiðinni heim, eins og gengur og ger-
ist, hné hann niður í rósemdarölv-
unarsvefn á gangstéttarkanúnum.
Fór þá ítalska kerfið í gang af tómum
misskilningi. Óbreyttir borgarar
Hvernig hefur þú það?
„Ég hef það bara mjög gott, “ segir Þóröur Pálsson yfirmaður greiningardeildar
KB banka.„Helgin er komin, sólin skín utandyra og þvíóhætt að segja að lífíð
leiki við mann þessa stundina."
töldu sofandi Svart-
höfða dauðan úr öll-
um æðum. Kallað var
á sjúkrabfl sem flutú
Svarthöfða höfugan á
spítala þar sem hann
vaknaði furðu losúnn
árla morguns við að
hjúkrunarkona
strauk votum klút yfir
lflcama hans.
En á íslandi er Uúð
fram hjá sannarlega deyjandi manni
í nauð vegna gruns um ölvun. Fleiri
tegundir misskflnings eru landlægar
hérlendis. Sá er tahnn heimskur sem
opnar sína sál og ef hann kann ekki
að ljúga verður haus hans talinn kál.
Allt þetta mælir gegn of sterkum
viðbrögðum. Lflct og félagi Svart-
höfða lærði þegar hann barðist
gegnum fárviðri til að komast í
bankann svo hann gæti farið í apó-
tekið og keypt lyf fyrir veika móður