Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Síða 11
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 11
Golf í
góðviðrinu
Þrátt fyrir að það sé
febrúar samkvæmt alman-
akinu hafa nokkrir kylfingar
ekki látið vetrartíðina aftra
sér frá því að leggja stund á
áhugamál sitt og leikið golf
á Meðaldalsvelli í Dýrafírði
að undanförnu, að því er
segir í BB á ísafirði. Það
eru þeir allra hörðustu
sem iðka golf þessa
dagana, en leitaðir eru
uppi snjólausir blettir og
notaðar litaðar kúlur svo
þær glatist ekki. Völlurinn í
Dýrafirði var opnaður mun
fyrr en vant er.
Hólamenn
íálaeldi
Von mun vera á full-
trúum frá fiskeldisdeild
Hólaskóla til þess að
kynna sér aðstæður til
álaeldis á Reykhólum.
Þetta kemur fram í nýju
fféttabréfi hreppsins.
Eins og DV hefur sagt frá
íhugar einkahlutafélag
þriggja manna nú að
koma upp slílcu eldi í
hreppnum. Og enn er til
skoðunar af hálfu sveit-
arfélagsins sjálfs að
koma upp risarækjueldi
á staðnum í samvinnu
við Orkuveitu Reykjavík-
ur. Sagt er að fljótt á litið
s?u aðstæður á Reykhól-
um býsna góðar fyrir
risarækjuna.
Samningar
útrunnir
Samningur Félags sjálf-
stætt starfandi sjúkraþjálf-
ara við Tryggingarstofhun
ríkisins fellur úr gildi um
mánaðamótin. Samninga-
viðræður um nýjan sam-
ning standa nú yfir milli
samninganefndar heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðherra og samninga-
nefndar sjúkraþjálfara en
vonast er til að samningar
náist á fundi nefndanna á
mánudaginn, þann 28.
febrúar. Ef samningar nást
ekki hefur Tryggingastofn-
un ekki heimild til að taka
þátt í greiðslu fyrir sjúkra-
þjálfun eftir 28. febrúar. Þar
með verða þeir sem þarfn-
ast sjúkraþjálfunar að
greiða reikninga sína að
fullu. Sjúklingar eru hvattir
til að geyma kvittanir sínar
ef samningar verða aftur-
virkir, þegar þar að kemur.
Leiðrétting
Sá leiði misskilningur
kom fram í
blaðinu á
fimmtudag
aðNfls
Gíslason
uppfinn-
ingamaður
var sagður eiga sjö stráka
en hið rétta í málinu er
að hann á fimm stráka
og eina dóttur sem var
að vonum sár.
Ungliðar koma upp um læknamafluna
Lyfjafyrirtæki gefa læknum milljónir
Ungir jafnaðarmenn, ungliða-
hreyfing Samfylkingarinnar, skora
á íslenska lækna og samtök þeirra
að veita almenningi allar upplýs-
ingar um þær boðsferðir sem farnar
séu á kostnað lyfjafyrirtækja. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
ungliðunum sem segjast hafa undir
höndum upplýsingar sem sanni
spillinguna innan þess sem Andrés
Jónsson, formaður hreyfingarinnar,
kallar „læknamafíuna".
„Ungir jafnaðarmenn hafa undir
höndum upplýsingar um að al-
vanalegt sé að lyfjainnflytjandi
sendi starfsmann sinn með í hóp-
ferðir íslenskra lækna til útlanda.
Starfsmaðurinn er þá nokkurs kon-
ar fararstjóri í ferðinni og sér hann
um að greiða „allt" fyrir læknanna á
meðan á ferðinni stendur. Gisting á
fimm stjörnu hótelum, kvöldverðir
og vínföng á fínum veitingahúsum
og önnur skemmtan sé þá jafnan
greidd með fyrirtækjakorti lyfja-
heildsalans og segja heimildamenn
Ungra jafnaðarmanna að kostnað-
ur við hverja slíka ferð geti hlaupið
á milljónum króna," segir í fréttatil-
kynningunni.
DV fjallaði um hópferð íslenskra
lækna í boði lyfjafyrirtækja á ráð-
stefnu í Stokkhólmi 14. október síð-
astliðinn. Sögðust fyrirtækin Eli
Lilly, Wyeth, Astra-Zeneca og Pfizer
ýmist vera með lækna á sínum veg-
um á ráðstefnunni eða stunda slíkt.
Lundbeck neitaði að svara.
Síðan þá hefur Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir tekið málið upp á
Alþingi. í kjölfar þess hefur Lækna-
félag íslands óskað lögffæðiálits.
Ungir jafnaðarmenn
gagnrýna Læknafé-
lagið fyrir að letja
lækna til að veita
upplýsingar með
þessum hætti.
Andrés Jónsson for-
maður jafnaðarmanna
Gagnrýnir lyfjafyrirtæki
fyrir að bjóða læknum á
fimm stjörnu hótel.
2 2 4 *
***** /
£
S X**t* i
m j*
2 V 5
2 5 * * # t „S1
• - \ \ : **•«**•*«, % **»*■ i
**»!***« Ug, fff fgf yfA
Si«n liu* ^»11111111«' ********
niif >*Iiiih ’!•»*•
BRIMKLÓ í KLÚBBNUM VIÐ GULLINBRÚ í KVÖLD
ALLIR UM BORÐ ÞVÍ NÚ VERÐUR KÁTT í KLÚBBNUM
OPIÐ TIL KL. 04.00
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á www.klubburinn.is og í síma 567-3100
SJÓFERÐ ( KLÚBBNUM