Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Side 15
DV Helgarblað
LAUCARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 15
hlut í félaginu sem þau greiddu
tæpar hundrað milljónir króna fyrir.
Arla'tektinn að yfirtökunni var eigin-
maður Elínar Hirst, Friðrik Friðriks-
son rekstrarhagfræðingur, sonur
Friðriks Kristjánssonar sem fór fyrir
meirihlutanum og hafði starfað
með Óla sem stuðningsmaður
knattspyrnufélagsins Þróttar.
Hríslan fer að blómstra
Rekstur Olís var lengi í járnum og
um tíma munaði litlu að hjónin
misstu fyrirtækið í gjaldþrot. Talið
var að Landsbankinn hefði unnið á
móti hjónunum sem höfðu eignast
fyrirtækið í andstöðu við bankann
sem var langt kominn með að koma
því í hendurnar á Skeljungi. ÓU og
Gunnþórunn náðu svo að tryggja
rekstur fyrirtækisins þegar þau
fengu olíurisann Texaco til að fjár-
festa í 30 prósenta hlut í Olís.
Árið 1990 varð Olís fyrst íslenskra
fyrirtækja til að fara í hlutabréfa-
útboð. Bréfin í Olís seldust á háu
gengi eins og heitar lummur og þar
með var rekstrargrundvöllur félags-
ins tryggður til framtíðar. Félagið
hafði nú öðlast gríðarlegan styrk og
meðbyr samfélagsins sem fylgdist
með þessum rösku alþýðuhjónum
sigra í baráttunni við íslenskar
valda- og ættarklíkur fortíðarinnar.
Sigurinn var sögulegur og sætur,
upphafið að nýjum tímum í ís-
lenskri viðskiptasögu sem endur-
speglast í blómlegu viðskiptaum-
hverfi samtímans. Gunnþórunn
hefur sjálf líkt vexti fyrirtækisins við
líflitla hríslu sem þeim tókst að
rækta með þeim árangri að hún
varð að stóru og blómlegu tré.
Óli Kr. deyr óvænt
Skömmu eftir að Óh og Gunn-
þórunn höfðu komið Olís á lygnan
sjó féll Óli skyndilega frá eftir
hjartaáfall. Óli Kr. Sigurðsson lést
9. júlí 1992. Sorg Gunnþórunnar var
gríðarleg og minnstu máttí muna að
hún bugaðist og seldi frá sér allar
eigur þeirra hjóna. Hún hefur sagt
að hluti af henni hafi hreinlega dáið
með Óla en skyndilega hafi hún
fengið kraft til þess að taka málin í
sínar hendur. Hún reis hratt upp og
hefur sagt að hún hafi frestað sorg-
arferlinu til þess að hugsa um fýrir-
tækið sem hafði verið þeim hjónum
svo mikils virði og í raun eins og
barnið þeirra.
Gunnþórunn, sem hafði átt
helmingshlut í Sundi á móti Óla,
byrjaði á því að kaupa hlut sona Óla
sem þeir höfðu erft í félaginu en
helstu verðmæti fýrirtækisins lágu í
45 prósenta hlutnum í Olís. Þar með
var Sund komið alfarið í eigu Gunn-
þórunnar sem öllum að óvörum
ætlaði sér mikil áhrif innan karla-
veldisins Olís sem hún átti meiri-
hluta í. Fyrir henni var þetta mikið
tilfinningamál, þar sem Olís hafði
verið þeirra hjartans mál.
Gunnþórunn tekur málin í
sínar hendur
Gunnþórunn þótti sýna það að
hún hefði mikið viðskiptavit og kom
af miklum krafti inn í rekstur Olís
með margar nýjar hugmyndir sem
menn voru mishrifnir af. Þetta fór
fyrir brjóstið á mörgum starfs-
mönnum fyrirtækisins sem þótti
hún of afskipta- og smámunasöm.
Henni fór smám saman að leiðast
erfið samskipti við suma stjórnar-
og starfsmenn Olís en Gunnþórunn
hefur tilhneigingu til að forðast það
sem hún flokkar sem slæma orku,
en kann þá kúnst að láta umtal ekki
hafa áhrif á sína innri ró.
Auk þess að berjast innan fýrir-
tækisins sem hún hafði byggt upp
með manni sínum barðist hún við
sorgina sem hún hafði í raun aldrei
látið yfirbuga sig. Hún var farin að
leitast eftir því að finna irmra jafn-
vægi og það fór að spyrjast út að hlut-
ur Gunnþórunnar í Ólís væri til sölu.
Fékk milljarð fyrir Olís
Á þessum tíma hafði kanadíski
olíurisinn Irwing sýnt því áhuga að
koma inn á íslenska markaðinn. Það
endaði með því að hart var barist
um hlut Gunnþórunnar þar sem
Skeljungur, Olíufélagið og Irwing
höfðu öll áhuga á að eignast hann.
Gunnþórunn hagnaðist vel á þessu
kapphlaupi risanna en að lokum
seldi hún Olíufélaginu og Texaco
hlut sinn og hagnaðist um einn
milljarð króna á sölunni.
Hún ákvað að einfalda viðskipta-
umsvif sín og seldi heildsöluhlut-
ann til Danól. Við það breyttust all-
ar áherslur Sunds sem síðan hefur
komið við sögu í eignaumsýslu og
sem fjárfestir í fjölmörgum ólíkum
verkefnum. Gunnþórunni hefur
tekist að ávaxta Olísgróðann með
undraverðum hætti en áætlað er að
auðævi hennar skipti nú mörgum
milljörðum. Hún fjárfesti snemma í
deCODE, keypti á lágu gengi og
seldi á marföldu kaupverði.
Börnin tekin við
Gunnþórunn hefur að mestu
hætt afskiptum af Sundi sem er nú
stjórnað af syni hennar Jóni Krist-
jánssyni og tengdasyni Páh Magn-
ússyni. Systkinin Jón og Gabríela
eiga nú jafnan hlut í Sundi á móti
móður sinni. Fjölskyldan er sögð
afar samrýmd og hefur uppgangur
Sunds verið stöðugur síðustu ár.
Jón, sonur Gunnþórunnar, virðist
hafa erft viðskiptavit móður sinnar
og fer um viðskiptalífið eins og
huldumaður sem lítið sem ekkert
ber á þó svo hann sé með mestu
fjársýslumönnum landsins. Sund
átti um tí'ma stóran hlut í Samskip-
um sem var seldur með góðum
hagnaði. Sjóvík, sem er að hluta til í
eigu fjölskyldunnar, keypti nýlega
Iceland Seafood Corporation sem
áður var dótturfélag SÍF í Bandaríkj-
unum. Fyrirtækið var selt til Sjóvík-
ur fyrir 4,8 milljarða króna. Sjóvík
var fýrir með umfangsmikinn rekst-
ur í Asíu með um 3000 starfsmenn.
Styrkurinn sóttur inn á við
Gunnþórunn eyðir nú mestum
tí'ma í að njóta þess að vera með
barnabörnunum eftir að hafa kom-
ið afrakstri stórkostlegs ævistarfs í
hendur barna sinna. Andlega sviðið
hefur alltaf heillað Gunnþóru sem
meðal annars þakkar velgengni sína
því að vera andlega meðvituð.
Meðvituð handleiðsla hefur verið
hennar hægri hönd í viðskiptum
með þeim árangri sem raun ber
vitni. Þangað sótti hún styrkinn sem
bar hana áfram þegar á móti blés,
þar til hún sigraði að lokum.
freyr@dv.is