Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Side 20
20 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005
Helgarblað DV
Fréttaskýring
I kjölfar sjálfsmorðs
blaðamannsins og rithöfundarins Hunters
S.Thompson hefur flóð minningargreina
og umQallana birst í vestrænum flölmiðl-
um. Mikið er rætt um gonzo-blaða-
mennskuna í þessu sambandi enda var
Hunter frumkvöðull hennar. En hvað er
gonzo og á fyrirbærið framtíð fyrir sér?
Getur gonzo lifað
án Hunters S.
Thompson?
;;;
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstartil
kynningar tillögur að breytingum deiliskipulagi í Reykja-
vík.
Kleifarsel 28 - Seljaskóli.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Kleifarsel 28, lóð
Seljaskóla.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingarreitur breytist lítil-
lega að norðanverðu, færist út um þrjá metra og að
vestanverðu við íþróttahús Seljaskóla, verður komið fyrir
upplýstum sparkvelli með gerfigrasi með tilheyrandi
girðingum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Reitur 1.173.1.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.1 sem
afmarkast af Laugavegi, Vitastíg, Grettisgötu og
Frakkastíg.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt verði að byggja á
baklóðum húsa við Laugaveg 52, 56 og 58, við nokkur
hús á reitunum verður leyfð hækkun og stækkun húsa.
Lóðirnar að Grettisgötu 33b og 35b verði sameinaðar og
á ónýttri lóð við Grettisgötu 37b verði leyfð nýbygging á
tveggja hæða húsi og eins er hægt að nýta lóðina undir
aðflutt hús. Við nokkur hús verða leyfðar viðbyggingar og
hækkun.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skeifan - Fenin.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Skeifunni vegna
lóðarinnar að Skeifunni 5.
Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að reka sjálfs-
afgreiðslustöð fyrir eldsneyti á afmörkuðum hluta
lóðarinnar að Skeifunni 5.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 - 16:15, frá 25. febrúar til og með 11.
apríl 2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og
athugasemdum við þær skal skila skriflega eða á netfangi
skipuiag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt
skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 11. apríl 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 25. febrúar 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK ♦ SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219
Hunter S. Thompson „Við vorum með
tvo poka afgrasi, 75 töflur af meskallni,
fimm arkir afsterkri sýru, saltbauk hálffull-
an afkókaini, og heila vetrarbraut afmarg-
litum örvandi, róandi, öskrandi og hlæjandi
pillum og einnig lltra aftekíla, lltra af
rommi, kassa af Budweiser, hálfpott afhrá-
um eter og tvær tylftir afamyls."
Sjálfur hefur Hunter S. Thompson sagt að það hafi verið Bill Car-
dosa sem fann upp orðið gonzo. Hann sagði að það væri eitt-
hvað Boston-orð yfir skrýtna hluti eða furðulega. Hugsanlega er
það komið úr ítalska orðinu gonzo eða spænska orðinu gonso,
en bæði orðin þýða bjáni. í nýlegri umfjöllun á BBC online kafar
blaðamaðurinn Andrew Walker í málið og veltir því fyrir sér
hvort Gonzo-blaðamennskan muni lifa af andlát Hunters.
Gonzo-blaðamennskan á rætur
sínar að rekja til fyrirbrigðisins „nýja
blaðamennskan" eða „new joumal-
ism“ sem kom fram í lok sjötta ára-
tugar liðinnar aldar og við upphaf
hins sjöunda. Menn á borð við Tom
Wolf, Truman Capote, Norman Mail-
er og Hunter sjálfan þróuðu þessa
stefiiu þar sem mörkin á miili skap-
andi skrifa og blaðamennsku voru
óljós og þessu tvennu oftast blandað
saman. Blaðamaðurinn sjálfur var
lykilpersóna í skrifunum sem voru í
fyrstu persónu eintölu. Á þessum
tíma var hippakynslóðin að koma
fram ásamt blómaaflinu, brimbretta-
köppum, „hot-rod“-bflum, uppák-
omum og ástarsamkomum. Tónninn
í skrifunum var litríkur og leitandi þar
sem tilfinningar og hugsanir höfund-
arins léku lausum hala í umfjöllun-
inni.
Sá svalasti á jörðinni
En þótt Hunter S. Thompson sé
talinn frumkvöðull gonzo lögðu
margir aðrir hönd á plóginn í upphafi
eins og t.d. Terry Southem sem New
York Times sagði eitt sinn að væri
svalasti maður jarðarinnar. Terry
vann sem dálkahöfundur og hand-
ritshöfundur í myndum á borð við Dr.
Strangelove, Barbarefia og Easy Rider
- svölustu vegamyndina. Andlit
Terrys, prýtt sólgleraugum, er að
finna á umslagi Bítlaplötunnar
Sargent Pepper Lonely Hearts Club
Band. Munurinn á Hunter og öðrum
var sá að hann var tilbúinn til að prófa
allt þegar kom að vímuefnum, lögleg-
um sem ólöglegum. Tom Wolf lét það
til dæmis ekki eftir sér að taka inn
LSD eða sým er hann skrifaði költ-
bókina Electric Kool-Aid Acid Test.
En eins og Wolf sagði um Hunter:
„Hann var eitthvað algerlega nýtt í
blaðamennsku og bókmenntum."
Héðan í vom engar hömlur. Höfund-
urinn varð að sögunni/fréttinni.
Hefðbundinni uppbyggingu var
fleygt út um gluggan og í staðinn kom
mglingsleg og töfrum hlaðin rússí-
banareið þar sem allt var leyfilegt.
Ótti og angist í Las Vegas
Úr bókinni Fear and Loathing in
Las Vegas: „Við vorum með tvo poka
af grasi, 75 töflur af meskalíni, fimm
arkir af sterkri sým, saltbauk hálffull-
an af kókaíni, og heila vetrarbraut af
marglitum örvandi, róandi, öskrandi
og hlæjandi pillum og einnig Ktra af
tekfla, fitra af rommi, kassa af Bud-
weiser, hálfpott af hráum eter og tvær
tylftir af amyls." Eins og Andrew Wal-
ker segir þá hlýtur þetta að hafa verið
ein heljarinnar skógarferð. Þótt bókin
teljist kannski ekki til bestu verka
Hunters er hún samt lýsandi fyrir stfl
hans og fif og hún er hrein gonzo-bók.
En bókin sem kom Hunter á kortið í
nýju blaðamennskunni var sagan um
Hells Angels. Hunter bjó með
nokkrum meðlimum mótorhjóla-
gengisins og átti raunar sjálfúr Harl-
ey-hjól á þeim tíma en sagan er skrif-
uð, árið 1966. Hunter dregur ekkert
undan í skrifum sínum um Hells Ang-
els, lýsir fifi þeirra eins og það var, og
er, með tilheyrandi dópsölu, vændi
og eififum hópferðum þvers og kruss
um Bandaríkin. Skömmu eftir að
bókin kom út tóku nokkrir Hells Ang-
els-meðlimir sig til og börðu Hunter
næstum því til bana. Ekki af því að
þeir voru óánægðir með bókina,
heldur bara af því að þeir voru þannig
gaurar.
Breytti pólitískum skrifum
Segja má að Hunter hafi haft svip-
uð áhrif á pólitísk skrif í Bandaríkjun-
um og Woodward og Bemstein höfðu
á rannsóknarblaðamennskuna.
Hunter varð pólitískur ritstjóri tíma-
ritsins Rolling Stone fyrir forsetakosn-
ingamar 1972 og hann skrifaði ítar-
legar greinar í hreinum gonzo-stfl,
fyrst um baráttu demókrata til að
verða útnefndir ffambjóðandi
flokksins og síðan um baráttu þeirra
Georges McGovem og Richards
Nixon um embættið. Greinar hans
vöktu mikla athygli enda var Hunter
ófeiminn við að segja skoðun sín á
frambjóðendum. Til dæmis sagði
hann að Humbert Humfrey gaggaði
eins og fimm hænur á spítti og að Ric-
hard Nixon væri dökka hliðin á
bandaríska drauminum. Blaðamenn-
imir sem fylgdu frambjóðendunum í
sérstökum rútum um landið byrjuðu
að slást um eintökin af Rolling Stone
um leið og tímaritið kom á sölustað-
ina og brátt vildu ailir skrifa eins og
Hunter. Síðan þá hefur fjölmiðlaum-
ræðan í kosningabaráttunni verið
mun opnari og ákafari en hún var
áður en Hunter kom til sögunnar.
Fyrirmyndin að Duke frænda
Hunter varð að átrúnaðargoði
meðal blaðamanna sem skrifuðu um
pólitlk í Bandaríkjunum og hann var
auðþekkjanlegur í hópnum með
flugmannasólgleraugun sín, sígar-
ettumunnstykkið og barðamikinn
hatt sinn. Teiknimyndasöguhöfund-
urinn Gary Trudeau notaði Hunter
sem fyrirmynd að persónunni Duke
frænda í Doonesbury-myndasög-
unni. Ferill hans hjá Rolling Stone
varð endasleppur eftir að tímaritið
sendi hann til Víetnam til að fjalla
um stríðið. í stað þess að fjalla um
stríðið eyddi Hunter tíma sínum í
drykkju á bar í Saigon og reifst
stöðugt í símanum við Jann Wenner
útgefanda Rolling Stone því Jann
hafði afturkallað líftryggingu Hunt-
ers. Sakaði Hunter útgefandann um
að vera að breytast í gróðapung sem
hugsaði meir um að þéna peninga
en velferð starfsmanna sinna.
Sískrifandi
Hunter S. Thompson var sískrif-
andi allt fram að sjálfsmorði sínu. Á
síðustu tveimur árum var hann
dálkahöfundur á vefsíðu ESPN og
skrifaði þar um íþróttir, einkum
bandarískan fótbolta í gonzo-
stflnum. Margar umíjallanir hans
fjölluðu um reiði eða gleði Himters
yfir því að hafa unnið eða tapað veð-
málum við hina og þessa um úrslit
leikjanna, en veðmál voru alltaf ein
helsta ástríða Hunters, að byssum
frátöldum. Hunter hataði Repú-
blikanaflokkinn eins og pestina en
hann var stoltur meðlimur í
Rifflasambandi Bandaríkjanna,
National Rifle Association. Á heimili
hans í Aspen Colarado var heilt
vopnabúr til staðar auk sérstaks
æfingasvæðis fyrir skotfimi. Hunter
var vanur að skjóta af byssum sínum
á öllum tímum sólarhringsins, ná-
grönnum sínum til nokkurrar
armæðu. Og hvað varðar spuming-
un um hvort gonzo lifi af án Hunters
má vitna aftur í Andrew Walker sem
segir að mergurinn málsins sé
sennilega sá að í sínu hreinasta
formi var eini sanni gonzo blaða-
maðurinn Hunter S. Thompson
sjálfur.
Dó eins og hann lifði
Hunter S. Thompson framdi
sjálfsmorð 67 ára gamall með því að
skjóta sjálfan sig í höfuðið. Hann dó
því eins og hann lifði - á eigin for-
sendum. Lokaorðin hér eru hans: „Ef
ég hefði skrifað allan sannleikann
eins og ég hef þekkt hann á síðustu
tíu árum væru í dag um 600 manns,
ásamt sjálfum mér, rotnandi í fang-
elsisklefum allt frá Ríó til Seattle. Al-
ger sannleikur er mjög sjaldgæf og
hættuleg vara í tengslum við
atvinnublaðamennsku."
Teiknimyndasöguhöfundurinn Gary Trudeau Notaði Huntersem fyrirmynd að persónunni Duke frænda iDoonesbury-myndasögunni.