Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Blaðsíða 28
n
28 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005
Helgarblað W
Berglind Ólafsdóttir ákvað að hætta í sálfræði í kennaraverkfalli árið
1997 þegar henni bauðst að taka þátt í keppninni Hawiian Tropic í Los
Angeles. Hún varð strax heilluð af borginni og bauðst fjölmörg verkefni
sem fyrirsæta. Fáum íslendingum sem freistað hafa gæfunnar í
Hollywood hefur gengið eins vel og Berglindi en stjarna hennar ris
skært og hefur hún nú verið tilnefnd sem ein kynþokkafyllsta
kona í heimi af hinu þekkta karlatímariti FHM.
Hættað
vera liósk
Eg veit ekki hversu merkilegt þetta er,“ sagði Berglind þegar DV hafði
samband við hana í vikunni. Berglind var hógvær og vildi alls ekki
gera mikið úr þessum eftirsótta titli sem margar frægustu og kyn-
þokkafyllstu konur heims keppast um. í fyrra var það Britney Spears
sem hlaut titillin. Berglind var á leiðinni út á flugvöll þaðan til Hawaii þegar
DV náði tali af henni. Frami hennar hefur verið skjótur þó hún segi mikla
vinnu framundan ef hún ætli að ná þeim markmiðum sem hún hefur sett sér.
það að komast áfram hér,“ segir Berg-
lind sem saknar fjölskyldu sinnar mik-
ið en bætir það upp með því að vera í
góðu sambandi við þau í gegnum
síma og netið auk þess sem hún hafl
stórt málverk af Hafiiarfirði, heima-
bænum sínum, uppi á vegg sem henni
þykir afar gott að horfa á.
„Ég hef h'tinn tíma núna það er
verið að sækja mig, ég er á leiðinni til
Hawaii," segir Berglind sem býr í
Beveriy Hills ásamt eiginmanni sínum
George Santana í glæsilegu húsi sem
þau keyptu af engum öðrum en tón-
skáldinu og píanóleikaranum Burt
Bacharach. Húsið tóku þau allt í gegn
enda hafði það verið innréttað á átt-
unda áratugnum í glamúrstíl diskó-
tímabilsins. Aðspurð segist Berglind
enn vera mikill íslendingur í sér þó svo
að hún hafi haft h'tinn tíma til að koma
heim síðustu ár þar sem hún hefur
verið upptekin við að byggja upp
frama sinn í Hollywood. „Ég er alltaf
mikill íslendingur í mér og hugsa oft
heim. Maður þarf að fóma miklu fyrir